Lokum sjúkrahúsum, elliheimilum, skólum, leikskólum og vinnumálastofnun......

.....og byggjum frekar hallir, kaupum einkaþotur fyrir ráðherrana, höldum veislur fyrir framsóknarmenn, stofnum ný ofurlaunaembætti.....Borgum skilanefndum betur....Hví að vera að hugsa um velferð almennings?

Nýfrjálshyggjuhugsjónin í sinni tæru mynd

og ef ég verð veik horfi ég bara á tónlistarhöllina í boði VG og sjálfstæðisflokks

Og sérfræðingar eru gáttaðir491087B

Volcker sagði ekki hvað hann teldi að kreppan muni vara lengi. Bíddu Volcker fer það ekki eftir því hvort við höldum okkur við arfavitlausar kenningar þínar um velferð í samfélagi manna?

ÚBS hann segir að hann hafi ekki misst trúna á kapítalismann.

Kannski þarf hann að rannsaka málið aðeins betur
mbl.is Jafnvel sérfræðingar eru gáttaðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: TARA

Ég er alveg sammála þér Jakobína...vil endilega eyða aurunum mínum að byggja ráðherrahallir, kaupa einkaþotur og snekkjur og ekki má gleyma 300 fermetra sumarbústöðunum !!

Ég hef ekkert betra við peningana mína að gera !!

TARA, 21.2.2009 kl. 20:23

2 identicon

Nýfrjálshyggjusjón og kapítalismi felur í sér lítil eða engin umsvif ríkis í efnahagnum. Það sjónarmið felur einnig í sér að ríkið á að hafa enn minni umsvif í að spreða peningum, og þá sérstaklega í "hallir og einkaþotur fyrir ráðherra".

Það sem þú ert að kvarta útí kallast blandað hagkerfi. Þessvegna segist fyrrverandi seðlabankastjóri USA ekki hafa misst trúna á kapítalisma, einfaldlega vegna þess að ekki hefur fengið að reyna á kapítalisma í hans hreinustu mynd.

Agnar Darri (IP-tala skráð) 21.2.2009 kl. 21:33

3 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Mér sýnist að svartsýni þín sé með verra móti og held að þér hljóti að líða fremur ílla. Kannski væri bara gótt ráð að taka sér frí frá bölsýninni í nokkra daga og safna í hinn pokann, það er að sjá aðeins til sólar. Það sem þú ert að halda fram í þessari færslu er ekki svara vert að mínu mati. Góða helgi

Hólmfríður Bjarnadóttir, 21.2.2009 kl. 22:09

4 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Hólmfríður mér líður ekki sérlega illa. Ég er bara raunsæ. Annað hvort verður að snúa þessari þróun við eða ég flyt úr landi. Svo einfalt er það.

En ég er hjartahlý manneskja og mér er ekki sama um þá sem eftir sitja hér við hörmungarkjör. Þess vegna berst ég núna.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 21.2.2009 kl. 22:13

5 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Ég leifi ekki skítkast í skjóli nafnleyndar við þessa færslu eða aðrar. Þeir sem vilja ástunda skítkast gerið svo vel að gera það undir réttu nafni.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 21.2.2009 kl. 22:52

6 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Agnar Darri það sem hefur ríkt hér er fyrst og fremst spilling og hún mun vaða upp áfram nema valdakerfið hér verði brotið niður.

Þetta sem þú kallar blandað hagkerfi er birtingarmynd nýfrjálshyggjunar sem býður upp á aðhaldsleysi og kennir græðgi og býður upp á einhvers konar ný-fasisma en ekki mannúð og mannréttindi.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 21.2.2009 kl. 22:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband