Er þetta sukk?

Frétt í DV:

Bílasalan Úranus keypti nítján lúxusbifreiðir af Kaupþingi í janúar og fór salan fram fyrir luktum dyrum og án útboðs. Tíu dögum eftir að Úranus fékk bifreiðirnar hjá Kaupþingi keypti bílasalan Range Rover af Ingunni Svölu Leifsdóttur, en hún starfar í skilanefnd Kaupþings.

Nýi Kaupþing banki hf. seldi tuttugu og sjö bifreiðar bankans fyrir luktum dyrum. Almenningi var ekki gefinn kostur á að bjóða í bifreiðirnar heldur voru þær seldar starfsmönnum bankans og bílasölunni Úranusi en það fyrirtæki keypti nítján af þessum tuttugu og sjö bifreiðum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Magdalena Ágústsdóttir

Það vantar rannsóknar blaða menn hér á þessu landi til að afhjúpa spillinguna. Ég mæli með því að þið lesið baugsmalid.is síðuna hans Jóns.

Þarna er alvöru blaðamaður að verki.

Ekki það, þú stendur þig vel Jakobína, en það er svo óþolandi að það er verið að koma svona fréttum í sjónvarp og það látið eins og þetta sé hið eðlilegasta mál.

Kristín Magdalena Ágústsdóttir, 11.3.2009 kl. 13:38

2 identicon

Ég er mjög sáttur, ég fékk að kaupa TVO flotta bíla og borgaði með "kúluláni", þ.e.a.s. það lán felur á mig 2020 og þá er ég auðvitað löngu stunginn af landi brott og lánið mun þannig falla á ríkið.  Ég hef einnig ákveðið að selja 20.000 tonn af kvóta sem ég fékk GEFINS áður en ég sting af landi brott.  Hlutabréf mín í Geysir Green, hafa skilað miklum "grænum pening til mín" og ég er að hugsa um að fjárfesta i annari skíðabrekku hérna í Sviss.  Arðgreiðslur sem ég fékk frá BYR gáfu síðan "byr í segl min" þannig að ég gat keypt "dýrari & flottari seglbát" og nú sigli ég þöndum seglum í BURTU frá þessari ÆVINTÝRAEYJU.  Ævintýra eyja fyrir mig og mína ættingja, apapláneta fyrir hina "bjánanna".  Reyndar eru flestir að tala um að landið sé í raun "djöflaeyja & þrælaeyja", en það er ekki mitt vandamál. Ég fæ greidd mín laun í Evrum og ég hef fyrir löngu stungið af með alla mitt fé til Tortola.....  En ég er til í að koma tilbaka síðar og taka þátt í uppbyggingu landsins, þ.e.a.s. eftir ca. 15 ár þegar búið er að byggja upp fyrirtækina aftur, þá er ég alveg til í að koma og kaupa þau á "gjafaverði" svo framarlega sem RÁNFUGLINN nái að komast aftur til valda fyrir árið 2030...!  Ég er nefnilega "sjálfstæður maður" sem hef gríðarlega gaman af því að "grilla á kvöldin", og ég skil ekki þessa "öfundsýki fára íslendinga" sem eru að setja út á "mig & aðra víkinga...".  Óli GRÍS - frændi er búinn að lofa mér að ég fái riddarakross áður en hann hættir, og Solla stirða lofaði að ég fengi listamannalaun síðar í ár, ca. 3 ára styrkur - reyndar aðeins 270.000 krónur, en margt "SMÁTT gerir eitt STÓRT".  Græddur er geymdur eyrir - lærum að spara - gaman - saman..! 

kv. Heilbrigð skynsemi

Jakob Þór Haraldsson (IP-tala skráð) 11.3.2009 kl. 13:55

3 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Já Jakob það eru skemmtilegir tímar framundan hjá þér

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 11.3.2009 kl. 16:59

4 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 11.3.2009 kl. 17:00

5 Smámynd: Arinbjörn Kúld

góður húmör hjá Jakobi.

Arinbjörn Kúld, 11.3.2009 kl. 22:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband