Eru skilanefndir bankanna óvinir ríkisstjórnarinnar og almennings?

Ekki virðist hægt að toga upplýsingar úr skilanefndum bankanna og jafnvel ekki fjármálaeftirliti nú 6 mánuðum eftir bankahrunið.

Skilanefndir bankanna eru í raun bara þrotabússtjórar á ofurlaunum. Þeir þyggja milljónir á mánuði og virðast gera lítið. AGS getur ekki afgreitt lán til Íslands vegna slappleika skilanefndanna við að reiða fram upplýsingar.

Núverandi eigindur bankanna, þ.e. ríkið fær ekki einu sinni upplýsingar um það sem hefur gerst í bönkunum. Skildu fyrrverandi eigendur bankanna hafa þurft að hlýta svona skilmálum?

Mistúlkun laga á íslandi er absúrd. Menn hunsa tiltekin lagaákvæði þegar það þóknast þeim og oftúlka önnur. Svo er talað um hefð eins og að það sé goðgá að hlutir breytist.

Þessi menning fáránleikans hefur fengið að þróast óáreitt í tíð sjálfstæðisflokks.


mbl.is Fráleit bankaleynd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er góð "pæling" hjá þér Jakobína, ekki síst hugleiðingin um það hvort fyrrum eigendum bankanna hafi/hefði verið synjað um upplýsingar um hvað sé að gerast eða hafi gerst í bönkunum. Þeir hefðu aldrei ekki sætt sig við slíkt enda er það ótrúlegt að starfsmenn ríkisbanka komist upp með að neita að afhenda umbeðin gögn til sérstaks saksóknara sem er í vinnu hjá eigendum bankanna og í raun að vinna fyrir þá. Hvar annars staðar en á Íslandi gæti svona nokkuð gerst?

Hörður Hilmarsson (IP-tala skráð) 17.3.2009 kl. 13:38

2 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Burt með þessa bankaleynd núna eða strax!

Rut Sumarliðadóttir, 17.3.2009 kl. 13:43

3 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Eva Joly kallað þetta absurd í norska sjónvarpinu

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 17.3.2009 kl. 13:49

4 Smámynd: Margrét Sigurðardóttir

Fyrrverandi ríkisstjórnin setti neyðarlögin og vildi greinilega hafa þetta svona. Hvað vildu þeir fela?

Margrét Sigurðardóttir, 17.3.2009 kl. 13:53

5 Smámynd: Ómar Geirsson

blessuð Jakobína.

Við eigum að vera þakklát ef þær hindra afgreiðslu lána IFM. Þá er smá von að ég og þú getum búið með börnum okkar í þessu landi.

Ef við notum lánið frá IFM, þá er þetta búið nema fyrir byltingarfólk í anda Castró.  Það eru ekki til peningar til að borga gengislán til baka.  Þó ég og þú spörum þá krefst endurgreiðslan gjaldeyris.

Hvað heldur þú að það sé mikið að honum til ráðstöfunar í heimskreppunni.  Þó við verðum 150 ára þá mun það aðeins duga fyrir vöxtum. 

Ísland þolir ekki meir skuldir.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 17.3.2009 kl. 13:53

6 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Tek undir þetta Ómar við þolum ekki þessi IMF lán en það er ekki kjarni málsins í þessari færslu.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 17.3.2009 kl. 14:25

7 Smámynd: Andri Geir Arinbjarnarson

Lögfræðingar vinna á tímakaupi 20,000kr klst!  Annar eins uppgangstími hefur aldrei verið hjá íslenskri lögfræðistétt.  Auðvita reyna þeir að láta þetta endast eins lengi og þeir geta.

Andri Geir Arinbjarnarson, 17.3.2009 kl. 14:59

8 Smámynd: Offari

Að gera einfalda hluti flókna er bara tímaeyðsla og kostnaður. Þegar svona er statt er nauðsynlegt að allt sé sýnilegt svo hægt sé að finna rót vandans.

Offari, 17.3.2009 kl. 15:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband