Myrkraverk fyrri ríkisstjórna vofa yfir okkur

Það er aumkunarlegt að hlusta á foringja myrkraverka síðustu ríkisstjórna bera af sér sakir. Ingibjörg Sólrún má eiga það að hún horfist í augu við misgjörðir sínar en það breytir ekki alvarleika þeirra og afleiðingum þeirra fyrir þjóðina.

Þeir sem staðið hafa í framvarðarlínu flokkana hafa ávallt verið tilbúnir til þess að selja stefnu og hugsjónir fyrir völd. Langur ferill spilltrar ákvörðunartöku sem leidd hefur verið af leppum auðvaldsins í ríkisstjórn hefur skilið þjóðina eftir í grafalvarlegri stöðu. Þessu eigum við ekki að gleyma nú rétt fyrir kosningar. Það er of snemmt að fyrirgefa.

Sökudólgarnir sitja nú fastir í sekt sinni og koma ekki auga á lausnir sem afneita auðhyggjunni og klíkusamfélaginu sem ríkt hefur hér um áratugi. Þeir eru ekki tilbúnir til þess að horfast í augu við að lausnir auðhyggjunnar duga skammt við nýjar aðstæður.

Múgsefjunin er í hámarki nú rétt fyrir kosningar en þjóðin er sem lömuð. Þórólfur Árnason kom með bróður sínum Árna Páli í Spjallið á Skjá einum og telur að redding Íslands liggi í framleiðslu og útflutningi hugbúnaðar sem nú fáist fleiri krónur fyrir. Þetta er nokkuð undarlegur málflutningur þar sem ekki fæst meira fyrir hugbúnaðinn í erlendum gjaldmiðli og ekki hef ég séð nein gögn sem benda til þess að útflutningur hugbúnaðar hafi aukist.

Það er svo sannarlega gott ef vel tekst til að auka útflutning hvort sem það er í hugbúnaði eða öðru því viðskilnaður síðustu ríkisstjórnar gerir það að verkum að þörf er fyrir allan gjaldeyrir sem unnt er að afla til þess að standa skil á erlendum vaxtagreiðslum. Þórólfur sagði að ekki væri þörf fyrir sjálfsþurftarbúskap og ég spyr hvort að hann ætli að sjá um að afla þeirra 87 milljarða í vaxtagreiðslur sem ríkissjóður þarf að standa skil af á þessu ári.

Þetta er ábyrgðarlaust hjal. Til þess að takast á við þau gríðarlegu vandamál sem sjálfstæðisflokkur, framsóknarflokkur og samfylking hafa skapað þjóðinni þarf tiltekna heildarsýn.

Í fyrsta lagi grunnvandinn er gjaldeyrisvandi. Við öflum ekki nægilegs gjaldeyris til þess að standa undir innflutningi eins og hann er í dag auk þess að standa undir gríðarlegri vaxtabyrði vegna erlendra lána.

Til þess að leysa þennan vanda þarf að ráðast á alla þætti hans. Það þarf að auka útflutning (gjaldeyrisöflum) það þarf að minnka innflutning (auka sjálfbærni) og það þarf að gera hagstæðari samninga við erlenda lánadrottna.

Til þess að auka útflutning og minnka innflutning þarf að efla atvinnulíf í landinu. Það þarf að auka matvælaframleiðslu bæði á hráefni og fullunnum vörum. Það þarf að nýta hugvit til þess að framleiða hér iðnaðarvörur sem nýta hráefni sem fæst innanlands. Það þarf að auka menntun og þekkingu sem eflir framleiðsluiðnað. Það þarf að aflétta einokun milliliða sem draga máttinn úr öðrum atvinnuvegum. Það þarf að taka á spillingunni.

Ýmsum finnst hallærislegt þegar talað er um aukna sjálfbærni en það er enn hallærislegra ef fólk þarf að líða neyð. Þá er ekki síður hallærislegt að láta börnin okkar greiða skuldir okkar.

Sjálfstæðismenn, framsókn og samfylkinguna dreymdi um að á Íslandi myndi rísa stórfenglegasta fjármálamiðstöð í heimi. Það er hallærislegt. Þegar yfirvöldum varð ljóst að allt stefndi í óefni, landið orðið stórskuldugt var farið að selja hinn raunverulega bjargvætt, auðlindirnar, fyrir slikk.

Þegar Títanik var að sökkva fóru þau að selja björgunarbátanna.

Auðlindirnar sem skapa raunveruleg verðmæti eru bjargvættur Íslendinga. Fiskurinn sem syndir í sjónum, vatnið í iðrum jarðar, orkan og mannvitið er vopnið sem þarf að beita í baráttunni.

Múgsefjun, villandi upplýsingar, áróður, lygar og fals eru hindrun á veginum til uppbyggingar og til lítils sóma fyrir þá sem taka þátt í að koma slíku á framfæri.


mbl.is Átti að gera skýrari kröfur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Margrét Sigurðardóttir

Þetta er aldeilis frábær lesning.

Margrét Sigurðardóttir, 28.3.2009 kl. 07:36

2 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessuð Jakobína.

Mikið, mikið, mikið sammála þér.  Ef þú hnýtir saman þessa pistla þína í einn greinarflokk um furðuveröldina þá ertu komin með greinar sem eiga fullt erindi til þjóðarinnar og þær greinar mun skapa von handa öllum þeim sem sjá að það eina sem er gert er eitthvað sem endurskapar skrípamynd af öllu því sem kom okkur til helvítis á sínum tíma.  

Landsfeður okkar og hagfræðingahjörðin virðast ekkert hafa lært og hvorki skynja vandann né koma með eitthvað vitrænt tillausnar.  Þín nálgun er sú rétta og þó komandi kosningar munu ekki snúast um vitrænar lausnir þá mun sú umræða grassera í sumar og þá verður hlustað.  Unga fólkið mun krefjast nýrrar gjafar og uppgjörs við Frjálshyggjuna.  Hún mun lesa þá sem eitthvað segja af viti og réttsýni.  Hún mun hafna gamla tóbakinu og vilja nýtt lífrænt hollustu grænmeti í staðinn.

Þinn tími á eftir að koma.

Kveðja, Ómar.

Ómar Geirsson, 29.3.2009 kl. 10:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband