Gjaldeyrisforðinn hvarf

Grunnvandi samfélagsins, íslensku þjóðarinnar, er að hún á ekki fyrir skuldum. Erlendum skuldum.

Það er ekki til gjaldeyrir og nægilegs gjaldeyris er ekki aflað til þess að standa skil á gríðarlegri vaxtabyrði í erlendum gjaldeyri.

Til þess að takast á við þennan vanda er frumskilyrði að vandinn sé kortlagður og skilningur sé aukinn á eðli hans.

Hvað gera valdhafarnir. Þeir umvefja vandann þoku og leika blekkingarleik. Atferli þeirra er uggvænlegt.

Margir þeirra sem sköpuðu þennan vanda og eru vörn og afneitun bjóða sig nú fram í komandi kosningum. Þeir halda dauðahaldi í stefnuna sem þeir mótuðu og kenna hinum um ófarirnar.

Ráðherrar samfylkingar sem tóku þátt í að bjóða upp á pönnukökur hjá Sameinuðu þjóðunum meðan allt brann hér heima telja sig þess umkomna að stýra rústabjörgunum.

Sjálfstæðisflokkurinn sem telur þá stefnu sem setti þjóðarbúið í þrot fullgilda vill völdin.

Framsóknarflokkurinn sem í græðgi sinni kom fjölskyldum í skuldaánauð og gaf góðvinum sínum réttinn til þess að hirða ríkiseignir og almannafé vill fá völd.

Enginn þessara flokka er þess umkominn að horfast í augu við veruleikann.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessuð Jakobína.

Mikið sammála þér um vandann og afneitun þeirra sem komu okkur í hann.  En hvert er svarið?  Er það Borgarahreyfingin?  Eða VinstriGrænir?  Ögmundur hefur sýnt mikla forystuhæfileika í heilbrigðisráðuneytinu en Steingrímur flytur ræðurnar hans Árna um gildi hárra vaxta á umbrotatímum.  Núverandi Seðlabankastjóri framfylgir sömu helstefnunni og fyrirrennari hans.  Til hvers var barist til að sitja svo uppi með sömu vitleysuna? 

Hvaða svör fást við þessum spurningum þínum um ráðstöfunum takmarkaðs gjaldeyrisforða?  Af hverju er verið að semja við breta og Hollendinga um ICEsave?

Af hverju nýtur Andstaðan ekki meira fylgis?

Gaman væri að fá pistil frá þér um þína sína á þessar vangaveltur mínar.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 29.3.2009 kl. 18:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband