Vilja gleypa Ísland?

Stefna Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er að drepa atvinnulíf á Íslandi. Með því að drepa niður atvinnulíf á Íslandi ná þeir hreðjataki í íslenskum ráðamönnum. Í stað frelsis til atvinnusköpunar til sjávar og sveita vill Össur framselja atvinnuvegina til útlendinga.

Erlendir auðjöfrar hafa engan áhuga á velmegun þjóðarinnar.

Erlendir auðjöfrar vilja kúga þjóðir og koma þeim undir fátækramörk

Til þess að ná fram markmiðum sínum múta erlendir auðjöfrar ráðamönnum þjóða

Veiklyndir ráðamenn þjóða snobba fyrir því að láta taka af sér myndir með valdamönnum

Við verðum að bjarga þjóðinni frá veiklyndum ráðamönnum

Berjumst fyrir betra Íslandi

Og hver fjandinn er þetta með LANDSHÖFÐINGJA á vegum Alþjóðasjóðsins?

Landshöfðingi/Governor á vegum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur nú aðsetur á Íslandi

Sjálfstæðisflokkur, Össur og Ingibjörg Sólrún afsöluðu sjálstæði Íslands til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins

Hverjir eru draumar Össurar?

 


mbl.is Áhugi á samstarfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Offari

Því miður vantar skilning á vandamálinu.

Offari, 5.4.2009 kl. 20:12

2 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Mig vantar þennan sama skilning.

Rut Sumarliðadóttir, 5.4.2009 kl. 20:45

3 Smámynd: Guðrún Jónína Eiríksdóttir

 

Guðrún Jónína Eiríksdóttir, 5.4.2009 kl. 20:49

4 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Já Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hver tekið hér völd í efnahagslífi þjóðarinnar. Hann skikkar íslensk yfirvöld til þess að hafa háa stýrivexti og háir stýrivextir eru að drepa niður atvinnulíf á Íslandi.

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur líka skyldað íslensk yfirvöld til þess að skera niður velferðarkerfið. Nánast slátra því á þremur árum.

Þessur ræður Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn vegna þess að Geir og ISG framseldu þetta vald til hans í skiptum fyrir dollara

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 5.4.2009 kl. 23:12

5 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Tja... skiljiði kannski núna hvers vegna sumar þjóðir hafa farið þá leið að þjóðnýta náttúruauðlindir, orkufyrirtæki o.fl.? Það er til að forða þeim frá hættunni á að verða seld úr landi.

Guðmundur Ásgeirsson, 5.4.2009 kl. 23:58

6 identicon

Það er alltaf sami hitinn í þér. Og ályktanirnar eftir því. Sammála mönnum hér að ofan að það vantar skilning á vandamálinu.


Öll þessi skrif þín byggja á því að fría Vinstri Græna öllu. Þrátt fyrir að vera í ríkisstjórn. Þrátt fyrir að bera þannig ábyrgð á því sem er að gerast hér.
Þessi pólitísku trúarbrögð þín eru með endemum. Hvaða gleraugu settir þú upp til að sjá það út að erlendir auðjöfrar séu að múta ráðamönnum þjóðarinnar. Hvaða blaður er þetta eiginlega?


Eru ekki Vinstri grænir sammála þátttöku Íslendinga og samningum okkar við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn? Annað hefur ekki heyrst.


Eru ekki Steingrímur J. Sigfússon, Katrín Jakobsdóttir, Kolbrún Halldórsdóttir og Ögmundur Jónasson ekki samþykk þessu ráðahag við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn? Það væri frétt til næsta bæjar ef þau væru á móti.

Eru Vinstri grænir ekki í ríkisstjórn sem styður samningana við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn?


Var það ekki ríkisstjórnin sem bauð Alþjóðagjaldeyrissjóðnum aðstöðu hér?
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur ekki skyldað íslensk yfirvöld til þess að skera niður velferðarkerfið, hvað þá slátra því á þremur árum.  Ef svo er af hverju eru Vinstri Grænir að kvitta upp á þetta? Þeir eru í ríkisstjórn og geta ekki fyrt sig allri ábyrgð!


Eru það ekki Vinstri Grænir sem vilja viðhalda íslensku örmyntinni – sem enginn treystir og enginn vill. Þess vegna þarf að halda uppi okurvöxtum til að verja þessi trúarbrögð um krónuna.


Ef „stefna Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er að drepa atvinnulíf á Íslandi“ þá er það ríkisstjórn og Alþingi að kenna. Þeir kvitta jú upp á þetta allir. Líka Vinstri grænir.

G.

Gunnar (IP-tala skráð) 6.4.2009 kl. 01:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband