Mútur er það heillin

Nú keppast sjálfstæðismenn við að sverja af sér spillinguna. Ef ríkisskattstjóri hefði ekki upplýst um þessar mútur hvað hefði sjálfstæðismenn gert þá? jú þagað um ódæðið.

Laumuspil flokkanna á öllum sviðum er óverjandi

Leynimakk um sölu jarðvarmaauðlinda

Leynimakk um styrki

Leynimakk um prófkjörsstyrki

Leynimakk um orkusamninga við stóriðjuna

Leynimakk um eigarhald stjórnmálamanna í viðskiptalífinu

Leynimakk um hagsmunatengsl


mbl.is Allt of háir styrkir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Því miður er ég hrædd um að þú hafir rétt fyrir þér. Bananalýðveldi Norðursins er orðspor sem er sennilega ekki óverðskuldað.

Panikkosningar eiga ekki eftir að breyta miklu. Þjóðin þarf að fá áfallahjálp, verst að öll umræða um aðstoð erlendis frá litast af hvort við ætlum að selja okkur undir okkur æðri stjórn...

Eða hvað finnst þér? 

Káta (IP-tala skráð) 15.4.2009 kl. 04:00

2 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

já það er engi viðleitni hjá flokkunum að grípa til aðgerða sem verja okkur yfirgangi erlendra fjárfesta og lánadrottna.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 15.4.2009 kl. 10:45

3 Smámynd: Herbert Guðmundsson

Nú spyr ég hvaða forsendur magister í stjórnsýslufræðum gefur sér til þess að tala um spillingu sjálfstæðismanna og "þessar mútur"? Hvaða spillingu, hvaða mútur?

Herbert Guðmundsson, 15.4.2009 kl. 10:54

4 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Hvers vegna ætla sjálfstæðismenn að skila peningunum ef þeir eru ekki skítugir? Maður þarf ekki að vera nema meðalhálfviti til þess að koma auga á spillingu sjálfstæðisflokks.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 15.4.2009 kl. 11:16

5 Smámynd: Herbert Guðmundsson

Ef þú Jakobína Ingunn hefur fylgst með því sem forysta Sjálfstæðisflokksins hefur sagt um mat sitt á þessum hæstu styrkjum og um skil á þeim, er það einfaldlega um að þarna hafi mönnum orðið á vegna tiltekinna aðstæðna og það verði leiðrétt. Þessar aðstæður voru gríðarlegar skuldir flokksins á þessum tíma 2006, en sami vandi hrjáði fleiri flokka á þeim tíma, sem gripu allir til sams konar ráða það árið.

Ef þú Jakobína Ingunn ferð yfir samtíma fréttaskýringar í fjölmiðlum sem tengjast þróun borgarmála og landsmála 2006 og 2007, spyr ég hvar þú finnur því stað að Sjálfstæðisflokksmenn hafi látið stjórnast af mútum?!

Herbert Guðmundsson, 15.4.2009 kl. 11:36

6 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessuð Jakobína.

Það er eins gott að þú sért ekki doktor í stjórnsýslunni.  Netið myndi hrynja útaf krókódílatárum vandlætara.

En er ekki alltaf hver sárreiðastur  sannleikanum?

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 15.4.2009 kl. 13:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband