Heimskuleg ummæli prófessors

Samfylkingin hefur tekið við hlutverk Sjálfstæðisflokksins sem flokkur atvinnurekenda um leið og hún gætir hagsmuna launafólks.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Bárðarson

Bara setningin og fjögur síðustu orðin vekja hjá manni hroll

Finnur Bárðarson, 4.5.2009 kl. 16:27

2 Smámynd: Hlédís

Þið segið nokkuð, Jakobína og Finnur!!

Ekki svo galinn prófessor. SF viðist telja sig geta sinnt þessum tveim hlutverkum og það takist bara vel

Hlédís, 4.5.2009 kl. 16:35

3 identicon

Eitthvað hafið þið lesið pistil hans skakkt.

Þið gleymið því alveg að á bakvið þessa stefnu og ályktun Samfylkingarinnar í Evrópunefndinni, voru ekki aðeins atvinnurekendur heldur líka launafólk. Þ.e. bæði fulltrúar atvinnulífs og ASÍ. Er það ekki áhugavert? - jú, auðvitað er það mjög áhugavert (burtséð frá afstöðu Samfylkingarinnar) að nú skulu þessir hefðbundnu "andstæðingar" á vinnumarkaði vera sammála um þetta veigamikla atriði, að sækja um aðild að Evrópusambandinu og taka upp evru.

Þetta hefur sem sagt ekkert með ummæli Baldurs að gera. Hann benti eingöngu að þessa staðreynd, að helstu samtök atvinnurekenda og helstu samtök launþega vilja sömu stefnu í þessum málum. Og á meðan Samfylkingin er eini flokkurinn sem skrifar uppá stefnu bæði atvinnurekenda og launþega - þá hlýtur hún að vera að gæta hagsmuna beggja á þessu sviði, hvort sem ykkur líkar það betur eða verr.

Evreka (IP-tala skráð) 4.5.2009 kl. 17:00

4 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Er það sami hluturinn að Gylfi Arinbjarnarson sitji á einhverjum koppafundi með samfylkingunni og segist vilja ESB og hitt hvað launafólk vill.

Eureka hefur þú ekki heyrt um viðtökur launafólks við málflutningi Gylfa um ESB á Austurvelli.

Samfylkingin er að sanna sig sem hagsmunasamtök fárra sem gengur fram fyrir almenning á fölskum forsendum.

Þjófnaður á skoðunum launafólks á málinu er samfylkingunni til mikils vansa sem og málflutningur hennar um ESB.

Samfylkingin er að taka sér sjálfstæðisflokkinn til fyrirmyndar í því að keyra yfir almenning en er kannski öllu verri vegna þess að hún rembist í sama skrefinu við að halda uppi ásýnd jöfnuðar sem hún sýnir í raun sviksemi við.

Athafnir innan samfylkingar sýna að hún er föst í hugarfari últrakapítalismans og þar ætla menn að komast að kjötkötlunum.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 4.5.2009 kl. 17:31

5 identicon

Jú, auðvitað fylgdist ég með hrópum að Gylfa á Austurvelli. En það kemur ESB-aðildinni bara ekkert við - fólk var ekki að mótmæla því.

Í fyrsta lagi er rétt að halda því til haga að Gylfi ræður þessu ekkert aleinn. Þarna er öll verkalýðshreyfingin samstiga, svo einfalt er það. Lestu bara blogg Guðmundar Gunnarssonar, svo dæmi sé tekið. Langflest verkalýðsfélög landsins eru þessarar skoðunar, þannig að þetta er ekkert bundið við Gylfa. Sem sagt, verkalýðshreyfingin og atvinnurekendur eru sammála um þetta atriði, sem telst sögulegt í sjálfu sér. Að því leyti voru ummæli Baldurs Þórhallssonar einfaldlega sönn og rétt.

En mótmælin gegn Gylfa á Austurvelli voru fyllilega eðlileg. Verkalýðshreyfingin brást í vetur og undanfarin ár, rétt einsog fjölmargar aðrar stofnanir í okkar samfélagi. Hún svaf á verðinum í "gróðærinu" og brást svo vitlaust við eftir hrunið með því að lýsa yfir stuðningi við ríkisstjórnina! Enda voru Gylfi og fleiri verkalýðsforkólfar teknir í bakaríið á einum borgarafundanna í Háskólabíói, ekki síst vegna hárra launa til þeirra sjálfra.

Þessu var fólk að mótmæla yfir ræðu Gylfa á Austurvelli, en ekki ESB aðild. Og það var enda ærin ástæða til þess. Ekki ætla ég að fara að verja sofandahátt verkalýðshreyfingarinnar undanfarin ár - og enn síður launakjör forystumanna þeirra.

Evreka (IP-tala skráð) 4.5.2009 kl. 17:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband