Bullið í valdhöfum ekki samboðið siðuðu samfélagi

Meðan stjórnvöld gera allt til þess að teyma almenning til þess að greiða skuldir Björgólfs Thors rignir bullinu yfir þjóðina. ESB, Gordon Brown, Bjögólfur Thor og Rússneska mafían beita fyrir sig AGS til þess að mjólka íslenskan almenning þangað til valkosturinn er ekki annar en að afhenda þeim auðlindirnar.

Stjórnvöld sem vilja sópa sukkinu undir teppið eru í raun strengjabrúður þessara aðila.

Það er ekkert sem réttlætir það á neinn rökrænan, siðlegan eða lögmætan hátt að þriðji aðili eigi að ganga í ábyrgð fyrir aðila sem hafa átt í viðskiptum.


mbl.is Ekki ríkisábyrgð á leynisamning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sammála, gæti ekki orðað það betur. En þetta er merkileg árátta að vilja endilega láta fólk samþykkja eitthvað sem ekki má sjást. Mér finnst að það eigi að birta þetta almenningi í heild sinni og fá umræðu um þetta.

Vð "sölu" ( í raun brunaútsala)  Kaupfélags Héraðsbúa var það reynt að fá félagsmenn til að samþykkja sölu án þess að fá að sjá samninginn, en þar áttu í hlut Landsbankinn, Samkaupskeðjan og N1 og gefið í skyn af fulltrúa Landsbankans að ef allt yrði birt öllum þá væru kaupin út af borðinu, og má segja að þeir hafi haft sitt í gegn, því örfáir fegnu aðgang og ekki að öllu eftir því sem mér skilst, en hvað var verið að fela og hvað á að fela???  Er búin að fá mig fullsadda af svona leynimakki, því í skjóli slíkra vinnubragða þrífst allur fjárinn.

(IP-tala skráð) 15.6.2009 kl. 18:59

2 Smámynd: Jóhann Hallgrímsson

Samfylkinging er greinilega skithrædd um að þessi ósköp hafi áhrif á aðild að ESB og virðist vera til í að samþykkja hvað sem er.

Jóhann Hallgrímsson, 15.6.2009 kl. 19:04

3 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Ég held að það sé meiri skítur á ferðinni en bara aðildin að ESB.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 15.6.2009 kl. 19:05

4 identicon

Við greiðum ekki skuldir óreiðumanna.

Hákon Jóhannesson (IP-tala skráð) 15.6.2009 kl. 19:20

5 Smámynd: Jóhann Hallgrímsson

Ég er ekki viðskpafræðilega menntaður, en veit þó samt að maður undirritar ekkert án þess að lesa það.  Þar að auki þá egum við ekkert að bera ábyrgð á þessu, við eigum bara að hafna samningnum og seta afar ströng skylirði sem Hollendinar og Bretar geta ekki gengið að, þá væri bara tvent í stöðunni hjá þeim, gefast upp eða fara í mál, bæði hentar okkur vel.  Hvar er íslenska samningsharkan!!!

Jóhann Hallgrímsson, 15.6.2009 kl. 20:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband