Vorum við svikin?

Hafi þingmennirnir samþykkt handónýta fyrirvara hvet ég alla til þess að kjósa framsóknarflokkinn í næstu kosningum.


mbl.is Samkomulag að nást
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Páll Blöndal

kom ekki gamla framsóknarkellan upp í minni

Páll Blöndal, 14.8.2009 kl. 21:55

2 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

En sko eru Samfylkingin og VG samningsfulltrúar Englendinga og Hollendinga? Ég skil ekki þessi átök um málið og er farinn að spurja hvað fá kosningasjóðir þeirra fyrir að koma málinu í gagnum alþingi.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 14.8.2009 kl. 22:16

3 identicon

Kjósa x-B eftir að hann rústaði íslensku samfélagi, með aðstoð X-D?

Endurreisa bankahruns drottninguna Valgerði?

Ólafur Sveinsson (IP-tala skráð) 14.8.2009 kl. 22:18

4 identicon

Þá er ég að fara að pakka mínu dóti og flyt mig og mína fjölskyldu héðan.Það er ekki séns í helvíti að krakkarnir mínir eigi að borga þetta sukk.Ansi hart að vera hrakin af landi brott vegna ESB grægi sumra(Og nei,Ég flyt ekki í eithvert Evrópuland)

sigurbjörn (IP-tala skráð) 14.8.2009 kl. 22:27

5 Smámynd: Jens Guð

  Jakobína,  ertu að tala um flokkinn sem hannaði og setti á kvótakerfið,  einkavinavæddi bankana samkvæmt helmingaskiptareglu D+B,  setti Ísland á lista yfir stríðsviljugar þjóðir gegn Írökum (með tilheyrandi blóðbaði),  sprengdi húsnæðiskerfið með 90% lánadæminu,  lofaði fíkniefnalausu Íslandi árið 2000 og svo framvegis?

Jens Guð, 14.8.2009 kl. 22:36

6 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Fjandinn hafi það Jens ég held að þetta Icesave dæmi sé fimm sinnum verra en kvótinn. Annars er erfitt að fóta sig í þessu samfélagi spillingar

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 14.8.2009 kl. 22:38

7 Smámynd: Elle_

Líka getur fólk farið enn lengra aftur í tímann og grafið upp, ef það ekki veit, hverjir vildu ólmir troða landinu inn í EEA (EES) undir lögin sem Icesave var rekið.   Það voru akkúrat þeir félagar sem harðast vilja troða okkur inn í EU og ólmir þvinga ICE-SLAVE upp á alþýðu landsins.  

Elle_, 14.8.2009 kl. 22:45

8 identicon

Já verðleunum framsókn fyrir einkavinavæðinguna

Valsól (IP-tala skráð) 14.8.2009 kl. 22:52

9 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Já Valsól framsókn á svo sannarlega svartan blett í sögu Ísland og ber ábyrgð á einkavinavæðingu og kvótabraski. Ég á ekki von á því að ég eigi eftir að kjósa framsókn venga svartrar fortíðar og tengsla við kvótabraskara.

Ég má þó til með að gefa þeim rós fyrir afstöðuna í Icesave.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 14.8.2009 kl. 23:02

10 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Förum að vinna í lausnum krakkar.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 14.8.2009 kl. 23:04

11 Smámynd: Jens Guð

  Vissulega er Icesave vont dæmi og venst ekki.  En án einkavinavæðingar D+B helmingaskiptareglunnar á bönkunum væri ekki til neitt Icesave.  Hvorki með eða án húrrahrópa Davíðs Oddssonar fyrir Sigurjóni Þ.  Árnasyni eða Kjartani Gunnarssyni. 

  Það má líka auðveldlega rekja til framsalsdæmis kvótakerfis Framsóknarflokks Halldórs Ásgrímssonar það ofurlaunadæmi og siðrof í íslensku samfélagi sem endaði í Icesave.  Kögunarkróginn (það má víst ekki kenna hann við Kögun) er ekki lílegastur til að verða riddarinn á hvíta hestinum.  Framsóknarflokkurinn er og verður sá flokkur sem innleiddi kvótakerfið,  einkavinavæðingu bankanna og svo framvegis.  Flokkur spillingarinnar með stóru F.

Jens Guð, 14.8.2009 kl. 23:25

12 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Ég er alveg sammála þér Jens framsóknarflokkurinn hefur verið nýttur til tortímingar.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 14.8.2009 kl. 23:28

13 Smámynd: Páll Blöndal

Hverjir hafa hagsmuni af því að Icesave málið leysist EKKI?
Framsóknarmenn?

Páll Blöndal, 15.8.2009 kl. 00:32

14 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Það var aldrei við öðru að búast, en að þeir myndu á endanum samþykkja icesavae. Sammála um að hella skuldum einkabanka yfir íslensku þjóðina og múra hana inn í skuldafangelsi.  Þannig hyggjast þeir standa við alþjóðlegar skuldbindingar. 

Það virðist nokkuð ljóst að stjórnmálamennirnir ætla fyrst og síðast að hugsa um sig og stjórnkerfið.

Magnús Sigurðsson, 15.8.2009 kl. 00:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband