Æi Össur getur þú ekki fundið þér eitthvað annað að gera?

...Verulega farið að slá í stjórnmálamanninn sem brokkað hefur með útrásarvíkingum.

Þegar ég horfi á Össur mæla fyrir leynd og tala um markmið sem þjóna erlendum fjárfestum en ekki þjóðinni fór um mig aulahrollur.

Hvað er Össur að meina....það verður að samþykkja þúsund milljarða skuldbindingu svo hann geti haldið áfram fyrirætlunum sínum að koma náttúruauðlindum landsins í eigu erlendra fjárfesta sem hafa á prjónunum að margfalda orkuframleiðslu á Íslandi.


mbl.is Múlbundnir þingmenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

að þetta "skoffín" skuli sitja á alþingi íslendinga úúúfffff

Jón Snæbjörnsson, 18.9.2009 kl. 12:41

2 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Jakobína, trúirðu því ennþá að ef sjallar og frammarar væru í stjórn, þá mundu alþjóðleg skuldbindingar íslands eins og icesave bara gufa upp ?  Að sjallar og frammarar mundu bara fá alþjóðlegar skuldbindingar landsins afskrifaðar ?

Auðvitað er þetta hárrétt sem Össur segir.  Hefur staðið sig mjög vel sem ráðherra hann Össur. Mjög vel.  Málið verður að klára.  Það er kominn September.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 18.9.2009 kl. 12:51

3 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

treysti ekki neinu úr þessari átt lengur.

held 'ann sé búinn að tapa glórunni - best að þetta fólk fari - Jóhanna eins og dáleidd hæna á leið á aftökustað - sé ekki tilganginn í að halda þeim uppi þarna lengur

jamm nú er september

Jón Snæbjörnsson, 18.9.2009 kl. 12:58

4 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Ómar Bjarki sjálfstæðismenn og framsóknarmenn settu þjóðarbúið á hausinn með dyggri aðstoð samfylkingarinnar. Það þarf verulegar hreinsanir í stjórnmálum á Íslandi og sennilega væri ágætt að byrja á því að leggja sjálfstæðisflokkinn niður.

Hvaða fjandans mál verður að klára Ómar? Klára að koma þjóðinni á vonarvöl.

Og hvaða alþjóðlegu skuldbindingar ertu að tala um Ómar? Íslenska þjóðin hefur ekki gert neinar alþjóðlegar skuldbindingar.

Þótt Össur, Jóhanna og Steingrímur séu að halda áfram að rústa samfélaginu þar sem sjálfstæðismenn og glæpamenn í framsókn skildu við er ekkert sem réttlætir þessa glæpsamlegu hegðun.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 18.9.2009 kl. 13:10

5 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Alþjóðlegar skuldbndingar sem ísland undirgekkst með innleiðingu rammalagana um innstæðutryggingar og ees samningnum heilt yfir.  Eða ertu kannski að leggja til að ísland segi sig úr ees ?

Klára þetta mál og halda áfram göngu okkar.  Þó hríð sé úti núna þá þýðir ekkert bara að kúra sig inní eldhúsi!  Nei, maður fer  í gallann og gengur á hólm við hríðina.  Og glotti við tönn.  Það hafa íslendingar alltaf gert í gegnum tíðina og munu gera núna.  Ísland ætlar að sigrast á þessum erfiðleikum.  Við ætlum ekki að gefast upp. 

Þar að auki er icesave bara einn hluti af umræddri hríð.  Má segja að það sé krapahreytingurinn í henni.  En þá er eftir stormurinn, kuldinn og önnur ofankoma.  Þ.e. ef eigi væri icesave - þá væri ekkert sól og sunnanvindur !

Ómar Bjarki Kristjánsson, 18.9.2009 kl. 13:29

6 Smámynd: Hörður B Hjartarson

  Ómar Bjarki!

  Ég held þú hafir gleymt lifjunum þínum.

Hörður B Hjartarson, 18.9.2009 kl. 14:02

7 Smámynd: Offari

Það er svoldið matt glerið í þessum nýja gagnsæi.

Offari, 18.9.2009 kl. 14:23

8 Smámynd:

Enginn ætti að sitja lengur á Alþingi en 8 ár. Þá er allur eldmóðurinn uppétinn og menn orðnir að afætum á þjóðinni.

, 18.9.2009 kl. 17:23

9 identicon

Össur er viðbjóður sem þarf að þrífa burt af Þjóðinni

Árni Karl Ellertsson (IP-tala skráð) 18.9.2009 kl. 18:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband