Skrípaleikurinn á Alþingi

Sjálfstæðisflokkurinn setti Ísland á hausinn, rústaðir réttarríkinu og eyðilagði orðspor landsins. Já og svo tók hann líka við mútum og hefur gert alþingi að stimpilstofnun viðskiptaráðs. Ég get talið upp miklu lengra syndaregister en ég ætla að fara að sofa áður en sólin kemur upp í fyrramálið.

Framsóknarflokkurinn stal öllu steini léttara og er enn að stela öllu steini léttara. Gríðarlegir peningar eru á bak við framsóknarflokkinn sem nú eru notaðir til þess að hvítþvo hann af öllum syndum.

Samfylkingin tók sér sjálfstæðisflokkinn til fyrirmyndar, þáði mútur til þess að komast til valda, blandaðist viðskiptalífinu o.s.frv.

Vinstrí græn starfa nú eftir þeirri öfga-hægri línu sem lagt er upp með í þessari ríkisstjórn...og mér líður bókstaflega eins og fífli þegar ég horfi upp á þetta.

Á Íslandi í dag er enginn félagshyggjuflokkur sem hefur það að markmiði að standa með þjóðinni.

Það sem er furðulegast við þetta er að fólk er að þrasa um hvað sé nothæft af þessu drasli sem er löngu úr sér gengið.

Það er ekkert gagn í því að eiga fjórar bíldruslur ef engin þeirra gengur.


mbl.is Hafna því að hafa rofið trúnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Arinbjörn Kúld

There is a smell of revolution in the air!

kv, ari

Arinbjörn Kúld, 18.9.2009 kl. 23:42

2 identicon

Jakobína !

Hef sett hér inn hjá þér áður eitthvað líkt þessu,

snúðu þér að þeim sem þú átt að gera !

Hvers vegna skrifar þú ekki um ICESAVE liðið ?

Hvað er að ykkur , við skulum sækja peninga til þeirra sem bjuggu þetta til !!!

Þú ert ef til vill ein af þeim sem berð ábyrgð af því að sjálfstæðisflokkurinn og framsóknarflokkurinn eru búnir að koma okkur á hausinn ????

En vill svo ekki kannast við það !

JR (IP-tala skráð) 18.9.2009 kl. 23:57

3 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Hef aldrei kosið sjálfstæðisflokkinn og hef aldrei kosið framsókn......

Finnst hart að hafa kosið flokka sem kalla sig félagshyggju en haga sér svo eins og örgustu kapitalistar.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 19.9.2009 kl. 00:07

4 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

PS Það eru núverandi stjórnvöld sem eru að troða Icesave skuldinni upp á almenning

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 19.9.2009 kl. 00:09

5 identicon

Hvers vegna viltu ekki snúa þér að þeim sem settu okkur á hausinn ?

Skrifaðu einu sinni um ICESAVE liðið !

 Kjartan Gunnarsson, Svöfu Gröndfeldt, Þór Kristjánsson, Þorgeir Baldursson, Sigurjón Árnason,  Halldór Kristjánsson, Björgúlfa tvo ??????????????

JR (IP-tala skráð) 19.9.2009 kl. 00:12

6 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

JR þessir aðilar sem þú nefnir þarna eru ekki að stjórna, eða eiga alla vega ekki að vera að stjórna landinu.

Það er ábyrgð stjórnmálamanna ef þjóðarbúið er sett á hausinn og það er á ábyrgð stjórnmálamanna ef þessu skeri verður umbreytti í orkustöð fyrir stóriðju og ef íslenska þjóðin flýr héðan í umvörpum fátækt og velældóm vegna þess að ..............STJÓRNMÁLAMENN GETA EKKI STAÐIÐ UPP Í HÁRINU Á ÞEIM SEM ERU AÐ KOMA ÞJÓÐARBÚINU Á HAUSINN MEÐ VONDRI STJÓRNMÁLASTEFNU.

Hvað sem má segja um glæpamennina þá móta þeir EKKI STJÓRNMÁLASTEFNUNA.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 19.9.2009 kl. 00:30

7 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Heyr, heyr. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 19.9.2009 kl. 00:33

8 identicon

Jakobína !

Það er eðlilegt að enginn sé tekinn fastur , hvað þá settur í varðhald , þó þeir hafi sett landið á hausinn !!!!!!!!

Það þorir engin að segja til sökudólgana !!!!!!!!

Hvað er að ykkur ????

JR (IP-tala skráð) 19.9.2009 kl. 00:34

9 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

JR það þarf ekkert að segja til sökudólganna. Við vitum öll hverjir þeir eru.

Það þarf hins vegar að stjórna landinu af einhverju viti og það er ekki verið að gera.

Það er verið að stjórna landinu í anda kapítalismans.

Ég skal útskýra það fyrir þér JR

Hverju er verið að bjarga ----Bönkunum

Hverju er verið að fórna ------Atvinnulífinu og fjölskyldunum

Lesist: Það er verið að bjarga erlendum kröfuhöfum en verið að fórna framtíð almennings í landinu.

Það er að gerast á vakt þessarar ríkisstjórnar og með glæpsamlegri hegðun sjálfstæðismanna og framsóknar að það er verið að selja auðlindirnar.....Auðlindirnar eru það eina sem getur bjargað framtíð þjóðarinnar.

Stjórnarskráin og löggjafarvaldið getur að nokkru snúið ofan af skaðanum sem þjóðin hefur orðið fyrir.

Hvað er verið að gera við löggjafarvaldið....jú færa það til Brussel

 Það er verið að tortíma þessu þjóðfélagi og ef þú kannt einhverjum af þessum stjórnmálaflokkum þakkir fyrir þá þú um það.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 19.9.2009 kl. 00:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband