2009-11-02
Rannsóknarnefnd Alþingis
Í desember síðastliðinn skrifaði ég grein um lög um rannsóknarnefnd Alþingis sem birt var í Morgunblaðinu. Vegna mikillar umræðu um frestun á birtingu rannsóknarskýrslunnar rifja ég þessi skrif upp hér.
Sturla Böðvarsson forseti alþingis sagði nýlega að rannsóknarnefnd yrði skipuð fyrir jól samkvæmt lögum um rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna 2008 og tengdra atburða. Lögunum er ætlað að byggja upp traust rétt eins og strategíur ráðgjafa Bjarna Ármannssonar miðuðu að því að endurvekja traust á ríkisstjórn sem hefur stýrt þjóðarbúinu í þrot. Ætla má að kostnaður af þessum aðgerðum hlaupi á hundruðum milljóna en tölur um það hafa ekki verið birtar. Gjarnan hefur verið talað um að tilgangurinn með því að setja á fót þessa nefnd sé að fá sannleikann upp á borðið. Skömmu fyrir setningu laganna barst mér gagnrýni á væntanlegt fyrirkomulag rannsóknarinnar sem ég sendi þinginu. Ég fékk svar frá Sturlu Böðvarssyni og þar segir hann m.a.:
Þessi yfirlýsing sem þú sendir mér er byggð á misskilningi og rangtúlkun... Ég hvet þig til þess að kynna þér efni frumvarpsins betur.
Ég tók Sturlu á orðinu, las lögin og skrifaði síðan eftirfarandi hugleiðingar. Hlutverk dómskerfisins er ekki að leita sannleikans. Sérfræðiþekking lögfræðinga felst í því að máta atriði, atburði og athafnir inn í lagaramman en leitin að sannleik eða samhengi hlutanna hefur öðru fremur verið viðfangsefni fræðasamfélags á sviði félags- og mannvísinda. Rannsóknin þarf standast skoðun vísindanna ellegar mun hún verða skoðuð sem enn eitt áróðursbragð ríkisstjórnarinnar. Rannsóknarefndin á samkvæmt lögunum að skipast þannig:
Hæstaréttardómari sem skal vera formaður nefndarinnar.
Umboðsmaður Alþingis.
Hagfræðingur, löggiltur endurskoðandi eða háskólamenntaður sérfræðingur, skipaður af forsætisnefnd Alþingis (sem Sturla Böðvarsson leiðir).
Í greinagerð með lögunum segir að þeir sem eru fengnir til að stjórna rannsókninni eigi að vera sjálfstæðir og óháðir og búa yfir reynslu og þekkingu til að stýra þessari viðamiklu rannsókn.
Þetta vekur spurningar um það hvort að þeir sem semja lögin trúi því að svona texti sé lesinn gagnrýnislaust. Hví eru ekki fengnir óháðir aðilar úr fræðasamfélaginu til þess að stýra rannsókninni? Í greinargerð með lögunum segir: Eins og aðrar mannlegar athafnir var starfsemi bankanna [ekki minnst á ríkisstjórn og embætti] reist á ákveðnum gildum eða siðferði sem hægt er að greina með kenningum og aðferðum hug- og mannvísinda...og miðað er við að framkvæmd þessarar rannsóknar verði í höndum sérstaks vinnuhóps hugvísindamanna,... Hópurinn gæti þá m.a. skoðað hvort íslenskt fjármálalíf hafi einhverja sérstöðu í þessu tilliti í samanburði við nágrannalöndin, svo sem varðandi hugmyndir um siðareglur og önnur siðferðileg viðmið í viðskiptum og samfélagslega ábyrgð.
Þrátt fyrir að ofangreindur texti taki fyrir grundvallaratriði rannsóknarinnar hugnast Alþingi ekki að setja sérfræðinga á þessu sviði yfir rannsóknina heldur velur til þess aðila sem hafa litla innsýn í hugtök eins og siðferði og ríkjandi gildi. Um þennan þátt rannsóknarinnar er heldur ekki kveðið skýrt á um í lögunum. Um störf sérfræðinga segir: Ráðgert er að þessi hópur hafi aðgang að þeim upplýsingum sem nefndin aflar og þýðingu hafa fyrir þennan þátt rannsóknarinnar, ... og fulltrúi hans geti í samráði við formann nefndarinnar tekið þátt í skýrslutökum, ... Samkvæmt þessu á nefndin (skósveinar ríkisvaldsins) að hafa alvald en sérfræðingar að skoða það sem þeim er skammtað af nefndinni.
Nefndinni er í lögunum veitt undanþága frá lögum sem kveða á um að störf skulu auglýst opinberlega. Nefndin getur því handvalið einstaklinga henni þóknanlega til starfanna. Sérstaklega er tiltekið að rannsókninni ljúki við setningu neyðarlaganna. Hvað með neyðarlögin og þátt þeirra í þeirri hyldýpislægð sem þjóðin er lent í? Hvað með umdeildar ákvarðanir eftir setningu neyðarlaganna og tengda atburði? Hvað með meint innherjaviðskipti og önnur misferli valdhafa? Nær rannsóknin yfir brask ráðamanna með hlutabréf og annað og háar skuldsetningar í tengslum við þess háttar viðskipti?Tengsl valdhafanna við fjármálaöflin hafa verið brennidepli umræðunnar og gert þessa aðila tortryggilega. Lögin beina ekki athygli rannsakenda sérstaklega að þessari samfléttun hagsmuna sem leitt hefur til ótrúlegrar spillingar.
Alþingi hefur forræði yfir rannsókninni en það er alkunn staðreynd að meirihluti þingmanna eru strengjabrúður valdhafanna vegna flokkshagsmuna. Ríkisvaldið og fjármálaöflin liggja nú undir ámæli þjóðarinnar um spillingu. Viðbrögð ríkisvaldsins er að setja af stað rannsókn sem er byggð upp með þeim hætti að draga má í efa að það sé gert af heilindum. Niðurstöðurnar verða ótrúverðugar og grunsamlegar en munu kosta almenna skattborgara drjúgan skilding.
Hvers vegna þorir ríkisstjórnin ekki að kveða til óháða og samfélagsgagnrýna aðila innan þekkingarsamfélagsins til þess að stýra þessari rannsókn? Þessi rannsókn mun ekki endurreisa traust þjóðarinnar. Ríkisstjórnin vanmetur þjóðina. Þjóðin er ekki tilbúin að kyngja meiri áróðri og vafasömum málatilbúnaði.
Brunaútsala á fyrirvörum Alþingis | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:12 | Facebook
Athugasemdir
Við skulum í ljósi orða Sturlu, halda því til haga að hann tengdist útrásinni beint og óbeint því sonur hans er Gunnar Sturluson einn eigenda Lögmannstofunnar Logos sem vann að stofnun aflandsfélaga fyrir útrásardólgana
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 2.11.2009 kl. 17:47
p.s en hvað svo sem kemur út úr rannsókn Alþingis þá mun ESB láta fara fram óháða rannsókn, það hafa þeir boðað. Þá fyrst mun fara um þá seku
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 2.11.2009 kl. 17:51
Rannsóknarnefnd Alþingis var besta lausnin og formaður nefndarinnar hefur boðað nánast ragnarök þegar hún muni birtast í lokamynd. Við skulum ætla að Hæstaréttardómari og umboðsmaður Alþingis ásamt virtum fræðimanni á erlendri grundu komist í gegn um þetta allt saman en yfirheyrslur yfir sumum stóðu linnulaust í allt að 8klst tvo daga í röð og eitthvað var rætt um.
Þar sem sumir sem komu fyrir nefndina þurftu jafnvel að koma sök á sjálfa sig að öðrum kosti blasti við allt að 2 ára fangelsi fyrir að neita að svara eða gefa ranga skýrslu og í ljósi þessa verður ekki svo ég geti séð hægt á síðari stigum að höfða sakamál gegn þessum sömu einstaklingum.
Til að breyta þessu þjóðfélagskarpi inni á Alþingi þyrfti það að starfa 10 mánuði ársins og semja lögin á eigin spýtur en sérstök nefnd réttarfarsnefnd virðist einráð í öllum breytingum á refsilögum og komast þingmenn ekki með puttana í þau gögn??
Þór Gunnlaugsson (IP-tala skráð) 2.11.2009 kl. 18:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.