Engar blekkingar Takk

þessi ríkisstjórn verður að gera upp við sig hvort hún getur unnið saman eða ekki.

Kjósendur VG sögðu nei við ESB.

Flumbrugangur, ákafi og skeitingarleysi leyddi til þess að ríkisstjórnin anaði út í aðildarviðræður án þes að bera það undir þjóðina. Þetta gerði ríkisstjórnin að undirlagi Samfylkingar sem hefur læðst með veggjum í öllu þessu ferli.

Í stjórnarsáttmálanum segir:

„Ákvörðun um aðild Íslands að Evrópusambandinu verði í höndum íslensku þjóðarinnar sem mun greiða atkvæði um samning í þjóðaratkvæðagreiðslu að loknum aðildarviðræðum. Utanríkisráðherra mun leggja fram á Alþingi tillögu um aðildarumsókn að Evrópusambandinu á vorþingi. Stuðningur stjórnvalda við samninginn þegar hann liggur fyrir er háður ýmsum fyrirvörum um niðurstöðuna út frá hagsmunum Íslendinga í sjávarútvegs-, landbúnaðar-, byggða- og gjaldmiðilsmálum, í umhverfis- og auðlindamálum og um almannaþjónustu. Víðtækt samráð verður á vettvangi Alþingis og við hagsmunaaðila um samningsmarkmið og umræðugrundvöll viðræðnanna. Flokkarnir eru sammála um að virða ólíkar áherslur hvors um sig gagnvart aðild að Evrópusambandinu og rétt þeirra til málflutnings og baráttu úti í samfélaginu í samræmi við afstöðu sína og hafa fyrirvara um samningsniðurstöðuna líkt og var í Noregi á sínum tíma.“

Aðildarviðræður eru ekki það sama og aðlögunarferli.  

Engin opin umræða hefur farið fram um stöðu stjórnarskrár Íslands í þessu máli. Það hefur samt ekki farið fram hjá mér að harðir Evrópusinnar eru að kaupa upp fólk sem er tilbúið til þess að "lofa því að" veikja stöðu forsetans (málskotsréttinn) og koma ákvæði í stjórnarskrá sem heimila að valdið sé framselt til erlendra valdastofnana.

Það er þessi ofbeldisfulla nálgun sem fer fyrir brjóstið á mér. Hver veit nema að Þorsteinn Pálsson sé að reyna að selja Jóhönnu klofning úr sjálfstæðisflokknum sem er hlynntur ESB. Ég lofa því að ef ég kemst á stjórnlagaþingið mun ég berjast fyrir því að þjóðin hafi síðasta orðið um ESB í bindandi þjóðaratkvæðagreiðslu. 

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir á stjórnlagaþing 


mbl.is Stefnan þarf að vera ljós
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband