Staðreyndir á ári hálfvitans

Hæðst er af íslenskum valdhöfum í erlendum fjölmiðlum og auðmýkt þjóðarinnar gagnvart cci-Aft-20081227-1-_261821mlýðræðisræningjunum hefur vakið athygli um heim allan. Við þessar aðstæður rísa þó upp hetjur sem sem eru óþreytandi í viðleitni sinni við að vekja almenning til lífsins og beina athygli hans að hinum bitra raunveruleika.

Óþekkt hetja lagði leið sína í miðbæinn og setti mark sitt á ruslatunnur við tjörnina. Lára Hanna er ein þeirra sem hefur lagt sitt á vogarskálarnar. Í dag vekur hún athygli á því hvernig þingmenn hafa misnotað stöðu löggjafavaldsins til þess að hafa lýðræðið af þjóðinni.

Skítlegt eðli valdhafanna kemur fram í því að þeir hækka nú framlög til stjórnmálaflokkana á sama tíma og þeir sverfa að velferðarkerfinu. Þeir ætla að nota fjármagn sem kreist er með skattheimtu af almenningi til þess að styrkja stöðu sína fyrir næstu kosningar. Til þess að fjármagna áróður. Til þess að kaupa sér fylgi þeirra sem sem tilbúnir eru til þess að hvíla í kjöltu óverðugs valds.

Valdhafarnir hafa hneppt börn okkar í ánauð. Þeir ætla nú að kaupa sig frá sekt sinni með fjármunum sem þeir sækja í vasa okkar.

Við stöndum frammi fyrir grundvallarspurningu. Hvernig heimtum við lýðræði til handa þjóðinni?

Við þurfum ekki leiðtoga. Við þurfum meðvitaðann almenning sem rís upp og segir hingað og ekki lengra.

Ég þakka Láru Hönnu fyrir óþreytandi viðleitni sína og alúð við að vekja þjóðina til meðvitundar


mbl.is Ruslatunnur í sparifötum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Þessir pólitísku gapuxar sem stjórna í umboði þjóðarinnar hafa sýnt það svo ekki verður um villst að stjórnsýslan er aukavinna. Þeirra orka fer mest í að gæta eigin hagsmuna, pólitískra og fjárhagslega, jöfnu báðum. Og bakland þeirra er að sjálfsögðu hinir aumkunarverðu jákórar fólksins sem býr að pólitískri vönun og má ekki til þess hugsa að leiðtogar þess axli ábyrgð á gerðum sínum. Við heyrum raddir þessa fólks í útvarpi og sjónvarpi og lesum skrif þess daglega hér á blogginu. Og margt af þessu fólki virðist bráðvel greint og upplýst þegar kemur að öðru efni en því sem snýr að söfnuðinum.  Það leyfir sér að leyfa mótmæli ef þau eru bara nógu hæversk. Þeir fagna því auðvitað með háðslegri glettni þegar í ljós kemur að meira en þriggja mánaða vikuleg fjöldamótmæli á Austurvelli hafa borið álíka ávöxt og þegar einhver segir "æi, þegiðu" við aðra persónu. Í þeirra augum eru mótmæli farvegur fyrir illa upplýst fólk til að létta gremju sinni með því að koma saman á hljóðri stund.

Mikla ábyrgð bera vanaðir fjölmiðlar í eigu og undir stjórn ráðherra og auðmanna sem hafa gert innrás á heimili landsmanna og skilið eftir rjúkandi rústir.

Nú sé ég það helst í stöðunni að endurvekja kvöldfundi á borð við fundinn í Háskólabíói og kalla þangað ríkisstjórnarforystu og alþingismenn. Þar yrði ráðamönnum leyft að svara þeim fjölmörgu spurningum sem fréttamönnum hefur gleymst að spyrja: 

Árni Gunnarsson, 4.1.2009 kl. 19:16

2 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Magnús Sigurðsson, 4.1.2009 kl. 20:20

3 Smámynd: Ævar Rafn Kjartansson

Lára Hanna er hetja um það þarf ekki að ræða. En þær eru margar og núna vantar bara rétta umhverfið til að smala þeim saman og búa til Alþingi ÍSLENDINGA. Ekki flokka. Árni hér að ofan er líka kandidat sem og þú. En grasrótarhreyfingin þarf núna að fara frá því að leigja sér hátalarakerfi yfir í að koma saman og búa til flokk fólksins. Þar er ég til í að leggja mikið á mig til að breyta þessu guðsvolaða landi yfir í eitthvað sem ég get verið stoltur af að tilheyra.

Ævar Rafn Kjartansson, 4.1.2009 kl. 20:51

4 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Það er ótrúleg siðblinda að hækka framlög til flokkanna....gott hjá Láru Hönnu að benda á það.

Það þarf eitthvert nýtt afl.  Allt traust er farið af flokkunum.

Hólmdís Hjartardóttir, 4.1.2009 kl. 21:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband