Við erum fólkið: samstaða á Austuvelli í dag

Mikil samstaða var á Austurvelli í dag. RUV segir 6.000 en þeir sem voru á Austurvell 10.000 Taktföst tónlist, mótmælendur færðu Herði Torfa blóm og friðsæld ríkti meðal mótmælenda. Frábærar ræður hjá Magnúsi, Hildi Helgu og Guðmundi Andra.

Birti hér stutt ávarp:

Við komum saman vegna þess að okkur er misboðið. Vanþóknun okkar á framferði valdhafanna og fjárglæframanna er einlæg.

Viðbrögð okkar við spillingu og þögn valdhafanna hafa stigmagnast. Ekki magnast í formi ofbeldis heldur einurðar og áræðni. Ég hef horft á íslensku þjóðina þroskast frammi fyrir því verkefni sem takast þarf á við núna.

Ég er stolt.

Ég er stolt af því að tilheyra íslensku þjóðinni sem hefur sýnt styrk, áræðni og samstöðu frammi fyrir aðsteðjandi erfiðleikum.

Við skiljum að nú duga engin vettlingatök. Það nægir ekki að gera smávægilegar breytingar. Það er ekki ásýnd valdakerfisins sem þarf að takast á við heldur innsti kjarni þess.

Við skiljum að valdhafarnir misbeittu valdi sínu,  rústuðu efnahag þjóðarinnar og fjárhag heimilanna. Við þurfum að takast á við sársaukann sem þessu fylgir með eflingu nýrra gilda og við verðum að taka valdið af þeim sem misbeittu því.

Valdhafar og auðmenn eru óþreytandi að beita fyrir sig fjölmiðlunum í áróðri og blekkingum en undiraldan í samfélaginu er þannig að við erum hætt að taka mark á þeim. Við trúum því ekki að þeir vilji okkur vel. Við látum auðvald og ítök þeirra ekki beygja okkur því við höfum samstöðuna og styrkinn sem í henni felst á okkar bandi.

Við ryðjum burt þeirri hindrun sem felst í vonleysi og vantrú. Við treystum okkur til þess að brjóta þann múr sem auðmenn og stjórnmálamenn hafa byggt um vald sitt. Við treystum á okkur sjálf til þess að byggja grunn að framtíð í anda félagslegra gilda.

Ég endurtek, ég er stolt af þessari þjóð. Víðsvegar í samfélaginu hafa sprottið upp hópar fólks sem leita úrræða. Ef almenningur stillir saman strengi sína um grundvallarmarkmið mun takast að ná fram umbótum í samfélaginu.

Við skulum sameinast um verkefni framtíðarinnar

Við skulum sundra fúlu og spilltu flokksveldi og slítum ríkisvaldið úr tengslum við auðvaldið

Við skulum byggja upp samfélagskerfi sem stendur vörð um velferð og heill þjóðarinnar

Við skulum byggja á nýrri stjórnarskrá sem er okkar sameign og stendur vörð um mannréttindi og réttlæti

Við endurreisum lýðveldið


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Offari

Það er vissulega erfitt að sitja heima á Eskifirði meðan björgunaraðgerðir ykkar standa yfir.  Ég er líka stoltur af minni þjóð. Takk fyrir.

Offari, 24.1.2009 kl. 18:08

2 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Bíbí, til hamingju, þú ert góður talsmaður (-kona en konur eru líka menn!)

Rut Sumarliðadóttir, 24.1.2009 kl. 18:09

3 Smámynd: Ævar Rafn Kjartansson

Þú stóðst þig frábærlega. Ömurlegt að sjá fréttaflutning mbl.is af fundinum. Þeir eru alveg búnir að skíta á sig með trúverðugleika.

Ævar Rafn Kjartansson, 24.1.2009 kl. 18:15

4 Smámynd: Heidi Strand

Takk fyrir.  Flott ávarp og vel flutt í dag.
Kærar kveðjur.
PS: Var að horfa á frétt héðan á NRK 1

Heidi Strand, 24.1.2009 kl. 18:15

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Algjörlega frábær fundur.  Takk fyrir mig.

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.1.2009 kl. 18:23

6 Smámynd: Árni Gunnarsson

Þakka fyrir mig! Trúið mér, nú verða öll mótmæli túlkuð af andstæðingum okkar, náhirðinni-sem níðingsleg árás á formenn stjórnarflokkanna sem eigi fullt í fangi við að takast á við erfiða sjúkdóma. Sjáfur lít ég svo á að það sé ámælisvert dómgreindarleysi hjá þeim báðum að rýra enn meira en orðið er traust þjóðarinnar til þeirra. Öllum ætti að vera ljóst að átök við sjúkdóma af þeim toga sem þar um ræðir krefjast alls þess þreks sem fyrir hendi er.

En sannarlega sendi ég þeim báðum baráttukveðjur í því stríði.

Árni Gunnarsson, 24.1.2009 kl. 18:33

7 identicon

Óreiðumenn verður að stöðva og það strax, og ef einhver áttar sig ekki á því þá eru margir þeirra að störfum í dag.

Siðlaus reköld - landráðamenn - sem hafa með siðlausum og í mörgum tilfellum glæpsamlegum gjörningum hafa rústað efnahag landsins.

Núna þarf að fókúsera á að stöðva áframhaldandi "óreiðu" og ekki eingöngu með gjaldeyrishöftum heldur setningu laga og reglugerða sem fyrirbyggja áframhaldandi rugl. Með rugli á ég m.a. við gjörninga s.s. útgáfu "skuldabréfavafninga", óeðlileg krosseignatengsl, veðsetningu eigna í almannaeign, aumkunarverðum feluleik eiganda hlutafélaga, undankomu gjaldeyris, millifærslur fjármuna í skattaparadísir og fl. og fl.

Þessum gjörningum mannleysanna verður að gera skil á opnum mótmælafundum, en ekki bara að hamast í stjórnvöldum.

Hákon Jóhannesson (IP-tala skráð) 24.1.2009 kl. 18:37

8 Smámynd: Björgvin R. Leifsson

Já en, Hákon, allir gjörningar mannleysanna voru einmitt í boði stjórnvaldanna.

Björgvin R. Leifsson, 24.1.2009 kl. 18:41

9 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Flott ávarp. Þú komst að kjarna málsins: Þeir vilja okkur ekki vel.

Vel mælt. Ég er líka stoltur af okkur, nú loks látum við í okkur heyra. Þeir ætla EKKI að víkja ef marka má fréttir í kvöld.

Arinbjörn Kúld, 24.1.2009 kl. 23:35

10 identicon

Æðislegt Jakobína !

Verst að ég var ekki viðstödd en vonast til þess að geta séð þetta einhversstaðar á netinu.

Til hamingju með árangurinn

Baráttan heldur áfram

Lilja (IP-tala skráð) 25.1.2009 kl. 20:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband