Forsetinn boðar nýtt Ísland

Forseti Ísland vill að lýðveldið Íslands verði endurreist samkvæmt fréttum í DV.

Hér er úrdráttur úr fréttinni:

Forsetinn sagði að það væri vísast ekki ofsagt að segja að sjaldan eða aldrei hefðu ráðherrar glímt við jafn mikinn vanda og núna. Hann sagði fjögur atriði setja svip á það sem þyrfti að gera nú. Fyrst væri það brýna verkefni að skapa á ný samfélagslega þátt í íslensku þjóðfélagi svo atburðir og áföll síðustu vikna og mánuða lægi, þannig að íslenskt samfélag gæti orðið eins og áður og fólk gengið til daglegra starfa á friðsaman og öruggan hátt. Í öðru lagi sagði forseti að halda þyrfti þannig á málum að teknar yrðu ákvarðanir sem hefðu lafur_Ragnar_Bessastair___Gumundur_Vigfsson_jpg_550x400_q95hag almennings, heimila og atvinnulífs að markmiði. Í þriðja lagi að þjóðin fái sem fyrst tækifæri til að endurnýja umboð Alþingis með því að kjósa til þings.

Í fjórða lagi telur forsetinn nauðsynlegt að skapa farveg fyrir þá umræðu í þjóðfélaginu að breyta stjórnskipan og stjórnarskrá landsins, „nýtt lýðveldi eins og sumir kalla það,“ sagði Ólafur Ragnar.Ólafur sagði nauðsynlegt að segja frá því hvað hann myndi hafa að leiðarljósi í viðræðum við formenn stjórnmálaflokkanna þó ekki væri hefð fyrir því að forseti gerði slíkt áður en stjórnarmyndunarviðræður hæfust.

Ólafur Ragnar sagði að þjóðin þyrfti að fá þann farveg sem hún þyrfti til að segja til um hvort og þá hvaða breytingar hún vildi gera á stjórnskipun landsins.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldvin Jónsson

Heyr heyr !!!

Baldvin Jónsson, 26.1.2009 kl. 18:31

2 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Loksins er ég sammála forsetanum. Í þessu efni.

Vilborg Traustadóttir, 26.1.2009 kl. 20:58

3 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Ef það er þá eitthvað að marka hann. Hann er að segja það sem fólk vill heyra.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 27.1.2009 kl. 00:52

4 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Eruð þið bín að skrifa undir áskorunina á http://www.nyttlydveldi.is/  Vek athygli á að hægt er að haka við að nafn sjáist ekki á síðunni.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 27.1.2009 kl. 01:49

5 Smámynd: Baldur Gautur Baldursson

Vel mælt hjá forseta Íslands. Loksins kominn einstaklingur sem vill ekki lengur sópa skítnum undir mottu og láta sem ekkert sé.  Forsetinn ætti í raun að skapa utanþingsstjórn undir sínu forsæti.  Hann hefur menntun og traust þjóðinnar til þess!  :)

Baldur Gautur Baldursson, 27.1.2009 kl. 07:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband