2009-04-08
Skilur einhver þessa flækju?
Fjármagnsflutningar fyrir þriðja aðila. Hvern? Hvenær er fjármagnsflutningur ólöglegur? Hvað myndi svona glæpur kallast annars?
![]() |
Fyrrum starfsmenn Askar Capital grunaðir um lögbrot |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2009-04-08
Við eigum ekki að borga skuldir ANNARRA
2009-04-08
Utanríkisþjónustan var gagnlaus
Góð utanríkisþjónusta getur gert kraftaverk en íslenska utanríkisþjónustan sýndi vanmátt sinn svo ekki verði um villst þegar Íslendingar urðu fyrir orðsporshryðjuverkaárás Breta í haust
Henda þarf út þessum undanvillingum sem nú starfa í utanríkisþjónustunni.
![]() |
Engir kokteilpinnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2009-04-08
Þrælslund eða baráttuandi
Það vilja margir erlendir sérfræðingar hjálpa okkur íslendingum og það er okkar að þiggja það. Hvers vegna vita Íslendingar svo lítið um skuldastöðuna. Erlendir sérfræðingar ráðleggja okkur að borga ekki þessar skuldir enda eru þetta ekki okkar skuldir.
Þetta eru skuldir hinna, hinna sem eru ekki við. Hinna sem þekka hið ljúfa líf og fljúga um á einkaþotum.
Það er sálfræðistríð í gangi. HINIR vilja að við greiðum skuldirnar og eru að reyna að telja okkur trú um að þeirra skuldir séu okkar skuldir. Við skulum ekki trúa þeim. Þeir eiga fjölmiðlanna. Þeir þiggja mútur og veita háum fjárhæðum til þess að telja þjóðinni trú um að hún sé sökudólgurinn. En þjóðin er saklaus.
Vinirnir eru voldugir, Bandaríkin, Bretland, Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn. Þessir vinir vilja hengja verðmiða á börnin okkar. Þeir vilja taka veð í vinnuframlagi barna okkar um ókomna framtíð. Prófessor Michael Hudson sem kennir við Harvard, virtur hagfræðingur, segir að hann hafi aldrei séð neitt í líkingu við það sem hann sér á Íslandi. Þetta er maður sem er búin að rannsaka skuldugar þjóðir í 50 ár.
Bandaríkjamönnum og Bretum dytti aldrei í hug að leggja byrðar á eigin þegna á borð við þær sem þeir vilja leggja á Íslendinga. Þeir eru tilbúnir til þess að brjóta niður félagsleg kerfi lítilla þjóða, sundra litlum þjóðum. Spilltir valdhafar á Íslandi hafa líka í heimsku sinni eða spillingu verið tilbúnir til þess að fórna félagslegri velferð þjóðarinnar. Þeirra er skömmin mikil.
Um leið og þessar þjóðir lækka skatta og auka á fjárlagahallann reyna þær að kúga peninga út úr smærri og veikburða þjóðum, líkt og þær stunduðu gagnvart Þriðjaheimsríkjum á 9. og 10. áratug síðustu aldar, segir Hudson. Og valdhafar á Íslandi guggna.
Hudson segir að Íslendingar verði að gera sér grein fyrir því fyrr en seinna að ekki er hægt að greiða þessar skuldir og um leið halda uppi sanngjörnu samfélagi. Óhjákvæmilegt sé að afskrifa skuldir á einhvern hátt, þótt alþjóðlegir lánadrottnar munu mótmæla þessari lausn harðlega.
Íslendingar hafa verið prettaðir. Eiga þeir að líta á það sem skyldu sína að greiða þjóðum sem hafa ekki í hyggju að greiða nokkurn tíma sínar eigin skuldir? Svo lánardrottnar fái greitt þurfa þeir að sannfæra skuldunauta sína um að þeir geti í raun og veru borga, þ.e. borgað án þess að leggja samfélagið í rúst, selja auðlindir sínar eða koma á gríðarlegri stéttaskiptingu fjármagnseigenda og skuldara, segir Hudson sem varar við því að hér myndist ný stétt fjármagnseigenda sem stjórna muni landinu næstu öldina eða svo.Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Eða um hvað ætlar hann að semja við þá?
Í eldhúsdagsumræðum hvetur Bjarni Ben til þess að samið sé við jöklabréfaeigendur.
Fjárhæð 500 milljarðar
Veit Bjarni hver á jöklabréfin?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Hefur sjálfstæðisflokkurinn framselt fullveldi Íslands. Lesið um þetta hjá Láru Hönnu.
Þegar ég las um 30 milljóna "styrk" til sjálfsstæðisflokks frá FL group setti mig hljóða en síðan vildi ég öskra. Hverjir hafa "styrkt" sjálfstæðisflokk og hvað hafa þeir fengið í staðinn?
Hvers vegna á Björgólfur Thor ekki að borga skuldir Björgólfs Thors.
Hvers vegna á ríkið að borga skuldir sem sem það hefur ekki stofnað til?
Hvers vegna eiga skattgreiðendur að greiða skuldir björgólfs Thors?
Hvernig stendur á því að þessu landi hefur verið stjórnað af mútuþægum leppum fjárglæframanna?
Stjórnmál og samfélag | Breytt 8.4.2009 kl. 01:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Það gengur ekki að landinu sé stjórnað af gæpamönnum.
Hvort eru 30 milljónir styrkur eða mútur
FL Group veitti Sjálfstæðisflokknum 30 milljóna króna styrk í desember 2007, að því er kom fram í fréttum Stöðvar 2. Þar sagði, að skattrannsóknarstjóri hefði styrkinn m.a. til athugunar en það embætti rannsakar nú bókhald FL Group.
1. janúar 2007 tóku gildi lög um að stjórnmálaflokkum væri óheimilt að taka við hærri fjárstyrkjum en sem næmu 300 þúsund krónum frá einstökum lögaðila.
![]() |
30 milljóna styrkur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Verðsamráð kortafélaga, sakfelling olíufélaga, ónýt króna, atvinnulífið í rúst, heimilin í örvæntingu, velferðarkerfið á leið í slátrun, traustið horfið....HVAR ER REIÐIN kæru Íslendingar. ÖSKUR, BÚSÁHÖLD, HEIMTUM UPPLÝSINGAR. HEIMTUM AÐGERÐIR SEM DUGA.
ÉG ER FJANDI REIÐ. ÉG ER HNEIKSLUÐ. MÉR ER MISBOÐIÐ.
Sjálfstæðismenn, framsókn og samfylking hafa rústað samfélaginu. Siðrofið sem átti sér stað þýddi að ein lög giltu ekki fyrir alla. Siðrofið þýddi að lögin vernduðu ekki almenning, þjóðina.
Athafnir valdhafanna hafa hunsað velferð almennings. Auðvitað er tiltrú á þeim brostin.
Sjálfstæðisflokkur, framsóknarflokkur og samfylking vilja drekkja landinu í virkjunum og stóriðju. Þeir vilja að erlendir aðilar mergsjúgi auðlindirnar. Þeir selja álverum orkuna fyrir slikk. 80% orkunnar sem framleydd er á Íslandi. Afganginn 20% selja þeir almenningi og íslensku atvinnulífi á okurverði.
Auðjöfrar, stóriðjuhöldar hafa mútað íslenskum stjórnmálamönnum með ofurlaunastörfum í stóriðju og öðrum gylliboðum. Leynimakk um orkusamninga tala sínu máli.
Össur vill vera vinur Obama. Össur vill hafa samvinnu við Obama um jarðvarmavirkjanir en hvað fær Obama í staðinn. Fær hann kannski að tappa vatnajökli á flöskur?
Oddviti sjálfstæðismanna er jú búinn að gera leynisamning við kanadískan fjárglæframann um að hann fái að tappa snæfellsjökli á flöskur.
Hvers vegna vilja menn selja auðlindirnar fyrir slikk í leynisamningum.
![]() |
Beiðni um verðsamráð hafnað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þegar krónan sígur er það merki um að menn séu að flytja gjaldeyrinn úr landi.
Sú spurning hefur vaknað hvort erlendir fjárfestar og hinir svokölluðu kjölfestufjárfestar sjálfstæðisflokks og framsóknar séu einu og sömu mennirnir.
Hinir óskammfeilnu kreppuvættar að traðka þjóðina í skítinn.
![]() |
Kann ekki skýringar á veikingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2009-04-07
Baráttan gegn bankaníðingum um heim allan
Neðangreindur texti gengur nú manna á milli í Bandaríkjunum.
This is an action alert! Please forward to your email list!
We have watched the same people who created the crisis brazenly grab more loot, even pretending that so called bonus "contracts" must be honored; until the public outcry shut them up. Now there's something you can do to end these injustices; to take back control of our nation and our money system and start the rebuilding process on a solid and just foundation.
Í hvatningunni felst að stöðva verði fólkið sem skapaði kreppuna og er enn í óskammfeilni sinni að hirða ránsfenginn. það er undir almenningi komið að stöðva óréttlætið. Við verðum að ná yfirráðum yfir samfélagi okkar og peningakerfi. Við verðum að hefja ferli uppbyggingar á stöðugum og réttlátum grunni.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)