...í næstu kosningum?
Segja að kjósendur séu að ráðast á sjálfstæðisstefnuna og allt sem íslenskt er.
Hvað er hann að meina, sem íslenskt er, er það
icesave,
útrásarvíkingar,
ónýt króna,
kjölfestufjárfestar,
gjafakvóti,
mengandi stóriðja,
smánarorkuverð til stóriðju,
okurorkuverð til bænda,
einokun,
samþjöppun,
verðsamráð,
klíkuráðningar,
mannréttindabrot,
mismunun,
okurvextir,
verðbólga,
skuldir heimilanna,
atvinnuleysi,
forræðishyggja,
mútuþægir stjórnmálamenn,
undirmálsembættismenn,
vanhæfni eftirlitsstofnana,
skuldir þjóðarbúsins,
orðspor Íslands,
skattpíning,
blóðugur niðurskurður í velferðakerfinu,
fjárlagahallinn,
hálfbyggðir turnar um alla höfuðborgina,
lögregluofbeldi,
spillt dómsvald,
ófrelsi,
flokksræði,
oligarky,
kleptocraty,
þöggun,
sveitafélög í greiðsluþroti,
ofurskuldir stofnanna,
okurverð á bensíni
falsskýrslur,
ónýtt réttarríki,
o.s.frv.
Í guðanna bænum ekki tala þetta niður....
...hvað er það allt sem íslenskt er og kjósendur rakka niður? Jú spilling sjálfstæðisflokks, samfylkingar og framsóknar.
....og svo fann ég þetta gullkorn á smugunni...
...það voru nefnilega Sjálfstæðismenn sjálfir sem létu Transparency International í té gögnin sem leiddu til þeirrar niðurstöðu að Ísland væri minnst spillt í öllum heiminum.
Sem segir að sjálfsögðu mest um vitleysuna í TI sem Dabbi kóngur lapti upp eftir þeim eins og stoltur kjölturakki.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
2009-04-19
Frjálslyndir á hraðri uppleið
Já það er engin spurning flokkurinn er að sækja í sig veðrið enda með góð málefni.
Frjálslyndi flokkurinn hefur haft mannréttindi og baráttu við spillingu á sinni stefnuskrá frá upphafi.
Það hefur engum dottið í hug að múta þessum flokk enda lítill áhugi á mannréttindum og baráttu gegn spillingu hjá útrásarvíkingum.
![]() |
Frjálslyndir með 9,3% í NV |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
![]() |
Dreifa blómum og birki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2009-04-19
Bretar græddu á að tapa á Icesave
Furðufréttir í Mogganum
Skilanefnd Landsbankans fann allt í einu hundrað milljarða sem voru búnir að vera týndir síðan í október.
Bretar yfirtóku jú útibú Landsbankans í Bretlandi og tóku heldur ekki eftir þessum hundrað milljörðum sem lágu þarna einhvers staðar í óreiðu í Heritable Bank sem er dótturbanki Landsbankans.
Annars er þessi fréttafluttningur furðulegur. Samkvæmt honum eru það einungis sveitafélög sem njóta góð af þessu en Icesaveskíturinn vofir enn yfir okkur því þetta er þótt ótrúlegt sé einungis brot af skuldum vegna Icesave.
Velti fyrir mér hvort þetta séu furðufréttir rétt fyrir kosningar.
Ég er annars sammála honum Þrymi vini mínum að fjandans Bretarnir eiga að borga skaðabætur fyrir framgöngu sína og þá sérstaklega vegna Kaupþingsmálsins.
![]() |
Óvænt fé í íslenskum banka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2009-04-18
Frjálslyndir með 9.3% fylgi ...
...í Norð vestur kjördæmi amkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallup.
Fylgið er það sama í kjördæminu og fyrir Alþingiskosningarnar 2003 og 2007.
Þetta eru góðar fréttir fyrir Frjálslynda sem finna góðan meðbyr í aðdraganda kosninga.
2009-04-18
Áhyggjurnar víða, grunnskólar og leikskólar
Sveitafélögin í vanda þýðir að skólarnir eru í vanda. Vandinn er orðin mjög alvarlegur þegar að lán eru tekin fyrir rekstrarkostnaði.
Boðaðar eru gjaldtökur eða hækkanir á útsvari og uppsagnir. Það lítur út fyrir að sveitafélögin hafi ofurskuldsett sig mörg hver.
Frétt á RUV
Fara þarf í algjöra endurskoðun á tekjustofni sveitarfélaganna segir Þorvaldur Jóhannsson, framkvæmdarstjóri Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. Staða margra sveitarfélaga er verulega slæm og hafa sum þeirra þurft að taka lán til að greiða út laun.
Sveitarfélög eins og aðrir séu í þröngri stöðu. Þau hafi gefið það út að velferðarþjónustu verði haldi úti og laun greidd. Þau hafi þurft að skera niður allt sem hægt sé án þess að segja upp fólki. Hann hafi þó heyrt að næsti leikur sé að hefja uppsagnir. Hjálpa þurfi þeim sveitarfélögum sem verst séu stödd, fjármagnskostnaðurinn sé að sliga þau. Skoða þurfi sveitarfélögin á hinu nýja Íslandi og fara í algjöra endurskoðun á tekjustofnum þeirra.
eftir hrun bankanna. Brot á stjórnarskrá vilja sumir meina. Illugi Gunnarsson báðum megin við borðið.
Það má engu til fórna til að bjarga heimilunum en þegar fjármagnseigendur eru annars vegar er stjórnarskráin aukaatriði.
...og sjálfstæðisflokkurinn vill hljóta náð kjósenda.
![]() |
Þarf að vinna litla sigra á hverjum degi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2009-04-18
Vorum við svikin?
um samninga varðandi ábyrgð ríkissjóðs á innstæðutryggingum
vegna innstæðna í útibúum íslenskra viðskiptabanka
á Evrópska efnahagssvæðinu.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að leiða til lykta samninga við viðeigandi stjórnvöld vegna innstæðna í útibúum íslenskra viðskiptabanka á Evrópska efnahagssvæðinu á grundvelli þeirra sameiginlegu viðmiða sem aðilar hafa komið sér saman um.
Samþykkt á Alþingi 5. desember 2008.
Samfylking og sjálfstæðisflokkur hugsuðu svona um þjóðina
3. Niðurstaða íslenskra stjórnvalda.
Með allt framangreint í huga er það mat ríkisstjórnarinnar að hagsmunum Íslands til lengri tíma litið sé best borgið með því að stjórnvöld styðji við Tryggingarsjóð innstæðueigenda og fjárfesta þannig að hann geti staðið straum af þeim kostnaði sem hlýst af því að ábyrgjast lágmarkstryggingu þá sem EES-reglur mæla fyrir um að því marki sem eignir viðkomandi banka standa ekki undir henni. Gert er ráð fyrir því að þau ríki sem hlut eiga að máli muni aðstoða sjóðinn við að standa undir þessu verkefni og það verði í formi lánveitinga viðkomandi ríkja til sjóðsins með ábyrgð íslenska ríkisins. Þær viðræður sem fram undan eru munu skera úr um nánari útfærslu þessara lánveitinga, auk þess sem hin endanlega niðurstaða mun ráðast af því að hve miklu leyti andvirði eigna viðkomandi banka mun renna til sjóðsins við uppgjör á búum þeirra.
Endanlegar niðurstöður framangreindra samninga munu verða lagðar fyrir Alþingi og aflað viðeigandi fjárheimilda eftir því sem aðstæður krefjast.
Var ríkisvaldið tilbúið til þess að gera börnin okkar að leiguliðum í landinu til þess að bjarga andlitinu gagnvart ESB?
Þetta var ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur, Össurs Skarphéðinssonar, Björgvins G Sigurðssonar.
Sátu ekki Þorgerður Katrín, Guðlaugur Þór og Einar Guðfinns í þessari ríkisstjórn?
Ég treysti þessu fóki ekki til þess að stjórna landinu!
![]() |
Danir nálgast evruna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2009-04-18
Ættu að halda námskeið í atvinnusköpun
Virðast vera þeir einu sem geta skapað atvinnu þessa daganna.
![]() |
Lokuðu kannabisverksmiðju á ný |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2009-04-18
Drepa búsáhaldsbyltinguna
Nú eru sjálfstæðismenn búnir að verja fjármunum okkar skattgreiðenda í málþóf svo vikum skiptir og drepa niður væntingar almennings um bætta stjórnarskrá og aukið lýðræði.
Ég var í Silfrinu Agli Helgasyni í vetur og ræddi þar hvernig flokks- og ráðherraræði hefði rústað velmegunarsamfélgi okkar. Ég sagði að þjóðin yrði að gera áhlaup á þingið í næstu kosningum. Þjóðin verðu að kjósa sjálfa sig á þing. VIÐ GETUM EKKI TREYST SITJANDI ÞINGMÖNNUM TIL ÞESS AÐ BREYTA FYRIR OKKUR STJÓRNARSKRÁNNI.
Við í Frjálslynda flokknum erum fólkið. Við í frjálslyndaflokknum höfum barist fyrir lýðræði og mannréttindum frá upphafi.
Við heimtum nýja stjórnarskrá!
VIÐ VILJUM NÝTT FÓLK Á ÞING!
Sjálfstæðismenn, samfylking og framsókn hafa gengið erinda útrásarvíkinganna sem hafa verið rausnarlegir við kosningasjóði þeirra.
Ef landsmenn vilja nýja stjórnarskrá þurfa þeir að kjósa annað en fjórflokkinn á þing.
Á myndinni eru frambjóðendur í efstu sætum Frjálslynda flokksins í Reykjavík suður
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)