Efnahagsstjórnin kjöftuð upp

Nú keppast valdhafar við að kjafta upp lélega efnahagsstjórn og færa ráðaleysi sitt í skuggan. Orðið bjartsýni er tengt við síaukið atvinnuleysi.

Það er kölluð vanefnd ef skuldarar greiði ekki skuldir sínar. Skuldir sem þeir hafa ekki efnt til sjálfir heldur hefur verið efnt til þessara skulda skuldaranna með atferli í fjármálakerfi og stjórnarráði Íslands.

Hið margrómaða gagnsæi birtist í kjafatvaðli framármanna sem hefur í raun enga merkingu fyrir allan almenning. 

Og það versta er að skuldurum standa margs konar lausnir til boða en þeir eru of vitlausir til þess að nýta sér þær. Já það koma mörg skemmtileg skilaboð frá ríkisstjórninnia. Þessu tyggir ríkisútvarpið á í dag.


Ætla að halda útrásinni áfram í Kaupmannahöfn

Draumurinn um Alheimsfjármálamiðstöð lúrir enn í hjörtum skilanefnda Kaupþings.

Danski bankinn FIH er enn í eigu Kaupþings og er ekki lengur til sölu og sitja tveir fulltrúar frá skilanefnd Kaupþings í stjórn bankans. Skilanefndin telur að sala félagsins í dag þjóni ekki hagsmunum Kaupþings og líklegt að verðmæti FIH muni aukast í framtíðinni í takt við betri markaðsaðstæður.

..en hvað þýðir það að 200 milljarðar komi heim. Fer það í skuldahýt við erlenda lánadrottna þannig að skuldin við þá lækki frá 12.500 milljörðum í 12.300 milljarða eða þýðir það að einhverjum peningum verði skilað til skattgreiðenda sem ríkissjórnin stal af þeim í haust.

Já og svo minni ég á tilboð um þegnskap í Nýja Lýðveldinu Íslandi


mbl.is 200 milljarðar skila sér heim
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég ætla að stofna nýtt lýðveldi

Það er sama hvert horft er, til stjórnmálanna, stjórnsýslunnar, fjármálakerfisins og viðskipta alls staðar blasir við tómt rugl.

Kröfur um lýðræði eru slegnar út af borðinu af stjórnmálamönnum, fólk er að missa heimilin sín og á varla fyrir mat auk þess sem það þarf að þiggja ölmusur.

Þess vegna ætla ég að stofna Nýtt Lýðveldi sem verður kalla NÝJA ÍSLAND og gefa skít í hitt í minni orðræðu. Fyrir þá sem vilja vera þátttakendur í mótun hins nýja lýðveldis bendi ég á þennan link. Þið getið alveg verið róleg ég ætla ekkert að vera forseti en öllum þeim sem langar að vera forsetar mega það. Þeirri stöður fylgir sá heiður að þeir sem eru kallaðir forsetar mega hengja eitthvað drasl á fólk og kalla það að því sé sýndur heiður.

Í Nýja íslandi verða sett nokkur markmið:

Burt með Alþjóðagjaldeyrissjóðinn

Fólkið í landinu skiptir mestu máli

Það eru mannréttindi að hafa heimili, fæði, heilbrigðisþjónustu og menntun

Aðildarviðræður eru ótímabær sóun á gjaldeyri

Vernda skal náttúru landsins

Nýta skal orkuna í þágu þjóðarinnar

Fólk á að hjálpast að í kreppu

Ekkert barn á að vera svangt

Tryggja matvælaöryggi á Nýja Íslandi

Vera dálítið hallærislegur og styðja það smáa og gjöfula

Taka auðlindaskatt af stóriðju

Taka kvótann af lénsherrunum

Frelsa matvælaframleiðslu á Íslandi

Ekki samþykkja inngöngu í ESB næstu 3 árin

Vinna sjálf upp styrk krónunnar með því að skapa verðmæti en ekki skuldir

Reka fólk út að vinna með öllum ráðum

Hver sem er má koma með tillögu að viðbótum sem lagðar verða fyrir forsetaráð


mbl.is Rifta samningum og höfða mál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Konungbornir og alþjóðafyrirtæki helstu styrkþegar ESB

Sjá frétt í Pressunni

Aukin skattheimta fylgir ESB aðild en gott að vita að styrkir lendi til góðra málefna.

Konungsfjölskyldur hafa lengi verið helstu bótaþegar í konungsdæmum Evrópu. Ef Íslendingar ganga í ESB blasir sú skemmtilega staðreynd við þeim að þeir fá að hjálpa til við að halda upp þessu konungborna fólki í glysgjarnri tilveru þess.

Seinna má svo kannski fara að hugsa um það hvort íslensk börn fái nægilega að borða. Þau geta alla vega huggað sig við það þegar að hungrið sverfur að þeim að litlu prinsarnir og prinsessurnar fái nóg að borða.

Við þessar aðstæður þykir samfylkingunni rétt að verja 1.300.000.000 í aðildarviðræður svo við getum fengið að VITA hvað okkur standi til boða.

Meira um ESB á Smugunni


MELTDOWN ICELAND

Ný bók í vændum á Amazon

Roger Boyes tells the inside story of the bankrupting of Iceland and explains how it has ramifications for us all, from the private and public investors who trusted their money in Iceland's banks, to the workers in high street clothes stores whose owners no longer can pay for the shirts on their own backs.


Björgólfur, Magnús Þorsteins og Svanberg í djúpum skít

Það sló mig verulega að heyra af vandamálum Björgólfs en ég set traust mitt á samfylkinguna að veita honum ekki verri úrlausn mála en öðrum sem ekki geta lengur lifað af launum sínum og naumum eignum.

Landsflótti atgerfis hefur einnig verið áhyggjuefni og mig setti hljóða þegar ég frétti að Magnús Þorsteinsson væri flúinn til Rússlands.

Velferðarbrú Jóhönnu virðist vera of stutt til þess að ná til barnafjölskyldna. Svanberg er bara einn af þúsundum í svipaðri stöðu. Stöðu sem skapaðist vegna græðgi bankamanna sem veittu ranga ráðgjöf til fjölskyldna til þess að auka arðsemi bankanna sem síðan var komið undan til aflandseyja.


mbl.is Kikna undan skuldum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verður einn af ölmusuþegum samfylkingarinnar

Nú er Björgólfur heppinn að samfylkingin hefur náð völdum sem býður nú aumingjum þessa lands ölmusugjafir til hægri og vinstri.

Það hefði verið verra ef hann hefði þurft að búa  við harðræði sjálfstæðisflokks sem vill að aumingjarnir sjái um sig sjálfir.

Biskupinn getur ábyggilega veitt honum huggun og bent honum á að við erum bara í velferðarkreppu.


mbl.is Framtíðin undir kröfuhöfum komin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimskuleg ummæli prófessors

Samfylkingin hefur tekið við hlutverk Sjálfstæðisflokksins sem flokkur atvinnurekenda um leið og hún gætir hagsmuna launafólks.


Rússneskir skuldarar Landsbankans

Frá þessu segir á Eyjunni

Um sama leyti og viðtalið birtist sagði Guardian frá því að Björgólfur hefði komið víðar við í fótboltaheiminum. Fyrir hans milligöngu hefði Landsbankinn fjármagnað kaup Alisher Usmanov í Arsenal. Usmanov er frá fyrrum Sovétlýðveldinu Úsbekistan og sagt að tengsl þeirra Björgólfs ættu rætur til umsvifa Björgólfs í Rússlandi. Skýrsla skilanefndarinnar um stöðu Landsbankans bendir til mikillar eignarýrnunar. Það væri óneitanlega áhugavert að sjá lánabækur Landsbankans og hvort þar megi rekja frekari tengsl Björgólfs við Rússland og fótboltaheiminn.

Skyldi aðgangsharkan við rússneska skuldara vera viðlíka og við íslenskt alþýðufólk?

Hvað með kjörin? Voru lánin verðtryggð?

Strax og Landsbankinn hrundi í haust beindist athygli breskra fjölmiðla að áhrifum þess á eignarhald Björgólfs á West Ham. Fyrstu skilaboðin voru að þetta væri aðskildur rekstur og hefði engin áhrif á eignarhaldið. Síðan var sagt að Björgólfur væri að huga að sínum málum og hvernig hann gæti endurskipulagt fjármál sín. Liður í því endurmati væri West  Ham. Um tíma var talað um að Straumur, sem Björgólfs Thors var aðaleigandinn í, gæti hlaupið undir bagga með Björgólfi og Hansa. Ekkert af þessu hefur gengið eftir og Straumur úr sögunni.

MP-banki er einn stærsti kröfuhafi Hansa með kröfu upp á 2,6 milljarða króna. Það er athyglisvert í ljósi þess að MP banki hefur verið álitinn utan við umsvif útrásarvíkinganna og sagður ósnortinn af þeim. Það er því spurning hvort þetta er eina undantekningin eða dæmi um meiri tengsl en áður hafa verið ljós.


Gagnsæið í ruslinu

Jöklabréfaeigendur er sennilega eini hagsmunaaðilinn í fjármálakerfinu sem ekki hafa þurft að bera tap.

Þeim er tryggð bærileg afkoma með ofurvöxtum af Jöklabréfum sem skuldarar verðtryggðra lána, myntkörfulána og lána á okurvöxtum þurfa að standa undir

Hverjir eru Jöklabréfaeigendur?

Skuldarar eiga heimtingu á því að fá að vita hverja þeir eru að beila út


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband