Ég hringdi í Seðlabankann og spurði sérfræðing hverjir væri útgefendur jöklabréfanna og var mér tjáð að það væru erlendir bankar og fjármálafyrirtæki. Hann sagði ennfremur að útgefendur væru eigendur. Átti nú frekar von á því að sérfræðingur í Seðlabankanum myndi ekki ljúga að mér og ætla að vona að sú hafi ekki verið raunin.
Svo mikið er víst að nokkur leynd hvílir yfir flækjuneti jöklabréfanna.
Mér tókst þó að fá það upp úr sérfræðingnum að "umsjónaraðili" (hvað er það?) jöklabréfanna baktryggðu sig með kaupum í ríkisskuldabréfum (skrítið orðalag). Það liggur því fyrir að ríkissjóður skuldar "umsjónaraðilum" sömu fjárhæð og útgefin hefur verið í jöklabréfum.
það má því segja að hinn skuldlausi ríkissjóður árið 2008 hafi skuldað 500 til 700 milljarða svona leynilega.
Friðrik Hansen vekur athygli á orðrómi um að jöklabréfaeigendurnir séu íslenskir og segir eftirfarandi:
Nú gengur sú saga fjöllunum hærra að eigendur Jöklabréfanna eru ekki einhverjir Austurískir tannlæknar heldur Íslendingar sem geymdu fé sitt í Íslensku bönkunum í Lúxemborg.
Margir Íslendinga náðu að senda óhemju fé úr landi inn á leynireikninga í Íslensku bönkunum í Lúxemborg. Íslensku bankarnir í Lúxemborg sáu um að ávaxta þetta fé og fengu m.a. bankana í löndunum í kring til að gefa út Jöklabréf í samstarfi við þá og Seðlabanka Íslands.
Þá eru sömu heimildir sem halda því fram að þessi Jöklabréfaútgáfa hafi í mörgum tilfellum verið að frumkvæði Seðlabanka Íslands. Bankinn hafi ekki viljað taka fé að láni erlendis sem honum bauðst á mjög hagstæðum kjörum því slík lán koma fram sem skuld hjá ríkinu. Ofurkapp hafi verið lagt í að sýna ríkissjóð skuldlausan og öllu til kostað þannig að svo mætti vera. Þess vegna hafi þessi rándýra leið verið farin til að útvega erlendan gjaldeyrir inn í landið. Fyrir 18 mánuðum voru útistandandi Jöklabréf fyrir meira en 700 milljarða. Raunveruleg skuldastaða ríkissjóðs var því í mínus upp á 700 milljarða. Jöklabréfin voru því notuð til að "falsa" raunverulega stöðu ríkissjóðs.
Þessi Jöklabréf hvíla nú eins og mara á samfélaginu. Gengið er skráð 50% of lágt vegna þeirra. Þar verður engin breyting á næstu 2 til 3 árin er spáð. Gríðarlega ströng gjaldeyrishöft eru í gildi vegna þessara Jöklabréfa. Þessi gjaldeyrishöft valda því að engir erlendir fjárfestar koma til landsins á meðan þessi höft eru í gildi.
Allar þessar hörmungar vegna Jöklabréfa sem eru að stærstum hluta ef ekki öllu leyti í eigu Íslendinga. Í mörgum tilfellum er þetta illa fengið fé, fé sem svindlað hefur verið út úr þessu samfélagi þar sem menn hafa hirt féð úr landi en skilið skuldirnar eftir. Skuldir sem með einum eða öðrum hætti lenda á almenningi að borga.
Í þessari stöðu er bara einn leikur. Neitum að borga þessi Jöklabréf. Borgum ekki krónu meir af þessum Jöklabréfum. Afskrifum þessi bréf og afléttum gjaldeyrishöftunum. Þá mun krónan ná jafnvægi á tveim til þrem mánuðum í stað tveggja til þriggja ára. Ef gengið lagast þá mun verðbólgan strax lækka og þá nun verðtryggingin á innlendu lánunum hætta að hækka.
![]() |
Umsóknum vegna greiðsluerfiðleika fjölgar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 03:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2009-05-12
Er ég vondur hagfræðingur?
Nú eru snatar Samfylkingar og ESB-sinna mættir til leiks á blogginu. Einkenni svona snata er að þeir hefja gjarnan komment sín á niðrandi orðum um höfund færslunnar. Fékk einn slíkan inn hjá mér í dag sem segir:
...ég fer nú eins og aðrir að draga hagfræðiþekkingu þína í efa ...
Athyglisvert þetta með "eins og aðrir" en það gefur til kynna að vanþekking mín á flækjustígum hagfræðinnar sé orðið eitt helsta umræðuefni á kaffistofum bæjarins.
Það er auðvitað ekki gott þegar að hálfvitar eins og ég eru að tjá sig um málefni sem þeir hafa ekkert vit á og auðvitað á að eftirláta slíkt sérfræðingum samfylkingarinnar sem hafa sannað yfirburði sína með þátttöku í efnahagsstjórn landsins síðastliðinn tvö ár.
Höfundi kommentsins hugnast þó ekki að tilgreina frekar hverjir þessir aðrir eru en ég gef mér því að hér sé hún að vísa til einhverra félaga sína í samfylkingunni. Verð þó að segja að málflutningur af þessu tagi bendir ekki til þess að viðkomandi hafi mikla rökhæfni eða hafi lært grundvallaratriði gagnrýninnar umræðu.
![]() |
Um 12 þúsund án atvinnu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Fólkið sem streymdi út á göturnar í vetur voru að mestu ungir andófsinnar með potta og pönnur.
Hvað skeður í haust?
Hverjir streyma þá út á göturnar?
Feður sem hafa misst allt og jafnvel fjölskyldur sínar líka. Forsmáðar mæður sem geta ekki uppfyllt grundvallarþarfir barna sinna.
Hryllingurinn sem blasir við þjóðinni er flestu fólki óskiljanlegur. Gjaldþrot bankanna eru gjaldþrot á heimsmælikvarða og þessi gjaldþrot voru í boði Geirs Haarde og Ingibjargar Sólrúnar.
Ingibjörg Sólrún valdi sinn lepp sem nú situr í sæti forsætisráðherra og framfylgir vilja Ingibjargar Sólrúnar sem er að:
Smyrja áróðursmaskínuna og forheimska lýðinn þangað hann fer að þjóna auðvaldinu
Beigja sig undir vilja alþjóðafyrirtækja og efla stóriðju í landinu
Halda áfram arðráni sem viðgengist hefur í áratugi
Framselja vald á Íslandi til þeirra sem hafa fjármálakerfi og alþjóðafyrirtæki í fyrirrúmi
Festa í sessi veru handrukkara auðvaldsins (AGS)
![]() |
Það versta mögulega afstaðið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2009-05-12
Spádómsgáfa valdhafanna
Ekkert hefur breyst, í stjórnmálastefnunni, frá því í haust þegar bankarnir hrundu.
Þegar litið er til stjórnarsáttmálans mætti allt ein ætla að sjálfstæðisflokkurinn og framsókn hefðu skrifað hann. Viljayfirlýsingar í spádómsstaðhæfingum bera keim af áróðursmaskínu alþjóðafyrirtækja og krumlu AGS á efnahagsstjórn landsins.
![]() |
Eilítið minna atvinnuleysi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2009-05-12
Evrunni spáð hruni
Evrunni er spáð hruni af Danske bank. Evran rétt eins og krónan endurspeglar athafnir og hegðun manna en hefur ekkert sjálfstætt gildi.
Það ber vott um ráðaleysi valdhafanna þegar þeir vilja skipta úr mælitækinu (krónunni) fyrir annað mælitæki (evruna) þegar niðurstaða mælinganna afhjúpar vanhæfni þeirra.
Ef við tökum upp evruna fáum við niðurstöðu mælinga sem mælir ekki eingöngu framferði íslenskra stjórnmálamanna og viðskiptamanna heldur einnig erlendra viðskipta- og stjórnmálamanna.
Með því að taka upp evrunna myndu því íslenskir valdhafar útþynna heimsku sína í mælingunum með gáfulegri athöfnum meðal annarra þjóðfélaga. Ekki er þó víst að þetta myndi reynast íslenska þjóðarbúinu hagstætt vegna sérstöðu íslensks efnahagslífs.
Það má að lokum benda eftirfarandi:
Ef marka má nýja þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins mun það taka Íslendinga 30 ár (þ.e. árið 2039) að uppfylla skilyrði um heildarskuldir ríkissjóðs sem Evrópusambandið setur ríkjum sínum fyrir upptöku evru. Heildarskuldirnar mega ekki nema meiru en 60% af landsframleiðslu.
Eðlilega má spyrja sig að því hvort evrusvæðið og Evrópusambandið verði yfir höfuð til þá?
![]() |
Hugsanlegt hrun evrunnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2009-05-12
Bara plat
Spá hagvexti ef það verða byggð álver. Hvað þýðir það? Jú skammtímalausn andskotans.
Álverin fá orkuna fyrir slikk og starfsemi þeirra skila litlu öðru en mengun og vandræðum í þjóðarbúið.
Fréttin hljómar eins og að ekki sé hægt að gera neitt annað en að byggja álver. Hvað með aðra valkosti?
Fábreytni og þjónkun við erlent auðvald ræður hér ferðinni.
Hvað sagði Steingrímur: það verði ekki gripið til lausna sem fela í sér að vandinn verður færður yfir a börn okkar.
Bygging álvera er þægileg lausn fyrir stjórnmálamenn. Atvinnulausir fá vinnu við uppbyggingu þess og samtímin tekur á sig ásýnd velmengunar en hvað svo þegar uppbyggingunni er lokið? þá þarf að finna ný verkefni fyrir fólkið sem hefur unnið í uppbyggunni. Verður þá bara byggt enn eitt álver til þess að friða stjórnmálamennina.
Þessi lausn einkennist af heigulshætti stjórnmálamanna og kæruleysi þeirra gagnvart börnum okkar.
![]() |
Spá hagvexti á næsta ári |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
"Iceland banking inquiry finds murky geysers runs deep" segir í Telegraph
Many of them are now the target of popular outrage. Jon Asgeir Johannesson, the boss of Baugur, has even been subject of a satirical video on YouTube, set to the theme tune of the film The Godfather.
Mr Johannesson is now rarely seen in his former homeland. Nevertheless last month he claimed: Ill be back. The next day, several cartoons on Icelands internet news websites warned the public to take cover should Hurricane Jon Asgeir return to the island at three billion krona per second.
Others including Lydur Gudmundsson and Agust Gudmundsson, the brothers behind Kaupthing and, Bjorgolfur Thor Bjorgolfsson and Bjorgolfur Gudmundsson, the father-and-son team who owned Landsbanki, have all but vanished from the streets of Reykjavik.
An investigation into suspicions of criminal actions has been launched, with institutions that attracted billions of pounds in deposits from thousands of UK citizens, businesses, local authorities and charities at its centre.
2009-05-12
Um ónýta evru
Ágæt grein um evruna
Írski hagfræðingurinn David McWilliams: Förum íslensku leiðina. Hendum evrunni
Og önnur ágæt grein hér
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2009-05-12
Heimilin eru ekki botnlaus sjálftökusjóður fjármálafyrirtækja og slæmrar efnahagsstjórnunar.
2009-05-12