Það hefur ekki verið sýnt fram á það

Ekki er annað að sjá en að Ríkisstjórnin sé tilbúin til þess að stefna þjóðarbúinu í þrot til þess að bjarga andlitinu gagnvart erlendri fjármálaelítu. Það er þó reyndin að þessi erlenda fjármálaelíta er að hafa Ríkisstjórn Íslands að fífli. Öll aðferðafræði AGS og annarra sem hafa komið að málum er algjör rökleysa.


mbl.is Getum staðið við Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir sem samþykkja Icesave munu færa fjölskyldum sínum arfleifð skammar

Rétt eins og útrásarhyskið hefur fært fjölskyldum sínum arfleifð skammar.

Bendi á góða grein um ofurlántökur Ríkisstjórnarinnar hér.

Ég velti því satt að segja stundum fyrir mér hvort að stjórnmálamenn þeir sem fara með völd séu einfaldlega of miklir sveitamenn til þess að sjá við erlendum öflum sem vilja knésetja þjóðarbúið og komast yfir auðlindir landsins.


mbl.is Madoff í 150 ára fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Best varðveitta leyndarmálið að baki Icesave?

Stjórnmálamenn hafa setið fastir í sínum fílabeinsturni og hugsað meira um sínar væringar en velferð þjóðarinnar.

Icesave samningurinn er eitt versta klúður Íslandssögunnar og gjörsamlega glórulaust að verja þennan samning.

Það er augljóst að útfrá hagsmunum almennings eru allir kostir betri. Hætturnar í samningnum fela í sér afsal sjálfstæðis og gríðalega fátækt fyrir komandi kynslóðir og svo talar Steingrímur um samvisku sína.

Ég velti fyrir mér hvaða hagsmuni er verið að gæta í þessu máli. Á Steingrímur kvóta?

Er verið að verja hagsmuni og eignir kvótaeigenda erlendis? Er Steingrímur strengjabrúða í þessu máli?

Ég á mjög erfitt með að koma auga á eðlileg rök í þessu máli. Dómsdagsspár Steingríms og fleiri standast ekki því Icesave samningurinn er svo afleitur að fátt getur verið verra.

Verðmætustu fyrirtækin í landinu, þ.e. matvælaframleiðslan, hafa að mestu verið flutt úr landi. Arðsemi í sjávarútvegi er ekki metin út frá þjóðhagslegum forsendum forsendum heldur út frá því hversu mikið lendir í vasa þeirra sem rændu sjávarmiðunum.

Kvótaeigendurnir hafa flutt þúsundir starfa úr landi og gert landið að hráefnislandi. Þeir hafa ekki eingöngu skapað ófrelsi annarra til þess að sækja miðin heldur einnig rústað einum helsta vaxtasprota á landsbyggðinni sem var matvælaframleiðslan.

Þetta eru gríðarleg verðmæti sem flutt hafa verið úr landinu á þennan hátt og málið er þaggað niður.


mbl.is Icesave-ábyrgð úr ríkisstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á Icesave að bjarga kvótakóngunum?

Hversu oft ætla kvótakóngarnir að ræna íslenskt samfélag?

Á heimasíðu Credit Info er haft eftir Jóni Daníelssyni að eignir Íslendinga erlendis verði gerðar upptækar í stórum stíl náist ekki samkomulag við Hollendinga og Breta um Icesave. Jón Daníelsson heldur því einnig fram á RUV að peningar íslendinga safnist fyrir á reikningum erlendis og veiki það krónuna.

Sagt er frá því á Eyjunni í dag að Icelandic vörumerkið hafi mjög sterka stöðu í Bandaríkjunum. Icelandic USA er dótturfélag Icelandic group. Stærsti hluthafi (98%) í Icelandic group er Eignarhaldsfélagið IG. Hluthafar í Eignarhaldsfélaginu IG eru m.a. Brim og Hraðfrystihúsið Gunnvör. Áður fór Björgólfur Guðmundsson fyrir stórum hlut í Icelandic Group

Um starfsemi Icelandic Group segir m.a. á heimasíðu þess:

Icelandic Group er alþjóðlegt net sjálfstæðra fyrirtækja sem starfa hvert á sínum markaði við framleiðslu og sölu á sjávarfangi. Í Bandaríkjunum, Bretlandi, Frakklandi, Danmörku og Þýskalandi eru framleiðslufyrirtæki sem umbreyta vörunni verulega áður en hún er seld til viðskiptavina, en þess utan er að finna sölu- og markaðsfyrirtæki með vörur sem tekið hafa litlum eða engum breytingum frá uppruna sínum. Sölu-og markaðsfyrirtækin eru í Bandaríkjunum, Bretlandi, Frakklandi, Spáni og Japan. Auk fyrrgreindra fyrirtækja á markaðnum eru fyrirtæki sem sjá um öflun aðfanga og ýmsa þjónustu, en þau er að finna á Íslandi, í Noregi, Hollandi, Kína og S-Kóreu. Icelandic Group er einnig með umfangsmikla frumvinnslu á hráefni á sínum vegum.  Um er að ræða nokkur fyrirtæki í Kína og Taílandi.

Kvótagreifarnir hafa rústað byggðalögum í landinu, flutt fullvinnslu sjávarfangs úr landi og nú má spyrja hvort Ríkisstjórnin sé að tryggja hag þeirra erlendis með því að rústa hag almennings með Icesavefjötrum.

Hvað líður annars innköllun kvótans?

Er búið að þagga niður í stjórnmálamönnum með höfðinglegum gjöfum? Ég spyr í ljósi reynslunnar og að gefnu tilefni.

Með Icesave-samningnum er verið að redda fámennum hóp sem þarf að vaða í peningum og til þess er Ríkisstjórnin tilbúin til þess að fórna af ósegjanlegri grimmd velferð þjóðarinnar.


Mikilvægasta málefni Íslandssögunnar

Reynt var að læða Icesave-samningnum aftan að þjóðinni með leynimakki ríkisvaldsins, Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og hinna herskáu nýlenduvelda Breta og Hollendinga.

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er á Íslandi til þess að sjá til þess að auðvaldið, herskárar Evrópuþjóðir og alþjóðlegir auðhringir geti rótað í rústunum sem Björgólfur Thor, Bjarni Ármanns, Ólafur Ólafs, Sigurjón Árnason og fleiri hafa skilið eftir sig.

Gengdarlaus áróður á borð við það að Ísland sökkvi nánast í sæ ef Bretum, Hollendingum og bröskurum verði ekki leyft að sópa til sín allri arðsemi af auðlindum og verðmætasköpun á komandi áratugum er linnulaus á RUV, á mogganum og í öðrum fjölmiðlum.

Góður pistill um Icesave-áróðurinn hér

MÆTUM Í IÐNÓ

What kind of society are we living in when a woman like this is arrested for a peaceful protest segja breskir fjölmiðlamenn á þessu myndbandi

Hvers vegna spurðu íslenskir fjölmiðlar ekki svipaðra spurninga þegar Heiða var handtekin fyrir friðsamleg mótmæli sem voru á hæsta máta réttlát s.b.r. hérna


mbl.is Borgarafundur um Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innrás einokurnar í Færeyjar?

...
mbl.is Ný Bónus-verslun í Færeyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Almenn gildi menningar og skilnings forsmáð á Íslandi

Hugmyndin um lýðræði og mannréttindi byggir á hugmyndum um frelsi og valkosti.

Yfirvöld á Íslandi hafa um áratugi unnið gegn gildum siðmenningar með áróðri, mótun tungutaks sem almenningur skilur ekki og uppbyggingu valdakerfis sem sér við lýðræðinu.

Sú stefna sem Ríkisstjórnin rekur núna þjónar þeim tilgangi að skapa samfélag mismununar, samfélag frelsisskerðingar og samfélag sem býður upp á fá tækifæri fyrir stækkandi hluta þjóðarinnar sem lendir undir fátækramörkum.

Ríkisstjórn sem kennir sig við jöfnuð og kennir sig við vinstri er að selja auðlindirnar á vald alþjóðafyrirtækja, skapa láglaunasvæði á Íslandi og örvæntingu sem leiðir til upplausnar.

Ríkisstjórn sem kennir sig við jöfnuð og kennir sig við vinstri er að velja þá leið að fórna framtíð Íslands til þess að tryggja sín eigin þægindi.

Ég heyri sífellt fleiri tala um að þeir séu tilbúnir til að takast á við erfiðleika í samtímanum til þess að tryggja framtíð samfélags sem virðir jöfn tækifæri og mannréttindi.


Stjórnmálamenn og útrásarglæframenn græða á bankahruninu

Brunaútsölur fara nú fram á eignum sem skattgreiðendur hafa byggt upp

Lífeyrisstjóðir sukka

Eignir sem almenningur hefur byggt upp eru seldar á gjafvirði og leigðar síðan almenningi á okurverði

Samfylkingin sér tvær þjóðir í þessu landi. Þjóð hinna útvöldu sem ekki þarf að hlíta landslögum og þjóð hinna forsmáðu sem SKULU borga skuldir hinna útvöldu.  

Í skjóli þeirrar ringulreiðar sem skapaðist við bankahrunið gengur nú samfylkingin fram og skapar samfélag ójöfnuður á mælikvarða sem ekki hefur sést um aldir á íslandi.

Mannréttindi eru brotin, réttarríkið hunsað, réttindi til afnota af auðlindum eru seld erlendum alþjóðafyrirtækjum, íslensk menning er í hættu. Velferðinni er rústað. Til hvers?

Á wikipediasegir um Geysir green energy:

Geysir Green Energy (eða GGE) er í eigu Atorku, Íslandsbanka hf., VGK-Invest og Reykjanesbæs og sérhæfir sig í verkefnum tengdum orkuframleiðslu á há- og lág-hitasvæðum. Geysir Green Energy var stofnað 5. janúar 2007. Þann 30. apríl 2007 keypti fyrirtækið 15% hlut ríkisins í Hitaveitu Suðurnesja á 7,6 milljarða.

Meðal helstu verkefna fyrirtækisins eru ENEX, dótturfyrirtæki sem þróar orkuver sem nýta jarðhita. Enex-China sem er samstarfsverkefni á milli Enex og kínverska fyritækisins Shaanxi Geothermal Energy Development Corporation. Loks Exorka annað fyrirtæki sem er rekið á Húsavík sem sérhæfir sig sömuleiðis í nýtingu jarðvarma og vinnur að nýtingu lághita til raforkuframleiðslu m.a. í Þýskalandi. Jarðboranir eru í eigu Geysis Green Energy ásamt 80% hlutar í Envent, sem vinnur að verkefnaþróun í jarðhita í Filippseyjum. Félagið á einnig hlut í Ram Power Inc. verkefnaþróunarfélags í jarðhita í Bandaríkjunum og WesternGeoPower, sem vinnur að byggingu 35 MW jarðhitavirkjunar í Kalíforníu í Bandaríkjunum. Þann 29. júní 2007 keypti Geysir Green Energy 28,4% hlut í Hitaveitu Suðurnesja. Heildarkaupverð var 15 milljarðar íslenskra króna. Geysir Green Energy er einn af stofnaðilum Keilis menntastofnunar á háskólastigi á Suðurnesjum.

Árni Sigfússon heldur áfram að selja eignir Keflvíkinga sem þeir eru búnir að byggja upp með þjónustugjöldum og útsvari í áratugi:

Af 13 milljarða kaupverði verða 6 milljarðar greiddir með skuldabréfi sem greiðist á 7 árum. Sem sagt Keflavíkurbær sem er á hausnum lánar einkafyrirtækjum 6 milljarða.

Og um krosstengsl. Hrafn Magnússon sem er framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða er stjórnarmaður í Atorku sem er einn af meginhluthöfum Geysis Green Energy.  Hann er einnig í stjórn Jarðboranna.


Vinstri græn samþykkja umhverfissóðaskap

Ég hef frá kosningum verið að reyna að gefa vinstri grænum sjens vegna þess að þau eru í minnihluta í stjórnarsamstarfinu. Það er þó kristaltært að það er ný-frjálshyggjan en ekki umhverfisstefna sem ræður ríkum hjá forystu vinstri grænna.

Svanhildur Svavarsdóttir hefur þrátt fyrir viðvaranir sérfræðinga gefið leyfi til ræktunar mannapróteins í byggi undir beru lofti.

Svona sóðaskapur er ekki leyfður í Evrópu en svo virðist sem að stjórnvöldum sé nákvæmlega sama um náttúru þessa lands og láta hana víkja til þess að þóknast gróðasjónarmiðum.


Hver borgar björgunaraðgerðir?

það er verið að draga úr hverslags velferðaþjónustu og skerða lífkjör öryrkja.

Hver borgar fyrir björgunaraðgerðir vegna þess að fólk er að leika sér á sleðum upp á jöklum?


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband