Enver bjargaði Brown?

Jú það var Íslenska ríkisstjórnin. Ríkisstjórn sjálfstæðismanna og samfylkingar. Icesave_s

Síðan ríkisstjórn samfylkingar og vinstri grænna.

Samningamenn ríkisstjórna hafa læðst eins og þjófar að nóttu til "vina" sinna í Bretlandi og Hollandi og samið við þá um að gera komandi kynslóðir að þrælaþjóð.

Icesave samningurinn er gríðarlega hættulegur og dettur mér helst í hug að stjórnmálamenn og kerfiskarlar sem þeir ráða í vinnu skilji ekki hrikalegar afleiðingar þessa samnings fyrir þjóðina.

Ég á alla vega erfitt með að skilja að menn séu að gera þetta vísvitandi.

Ég get nefnt hér dæmi. Icesave_s

Icesave samningurinn felur í sér skuldbindingu upp á 8 milljónir fyrir hverja Íslenska fjölskyldu.

Til þess að standa við þessar skuldbindingar þarf að skerða lífskjör alvarlega en auk þess muni þessir fjármunir ekki renna út í íslensks hagskerfi og byggja upp atvinnulíf.

Icesave skuldbindingarnar munu þá leiða til langvarandi stöðnunar, atvinnuleysis og hnignunar velferðarkerfis.

Þetta vill ríkisstjórnin ganga sjálfviljug undir án þess að reyni á réttmæti þessara krafna fyrir dómsstólum. Icesave_s

Ég get ekki skýrt þetta framferði ríkisstjórnarinnar nema með tvennum hætti. Sá fyrri er að ríkisstjórnin skilji ekki þýðingu þess sem hún er að gera en hin er að hún láti stjórnast af hræðslu.

Baráttan stendur um Íslenska þjóð. Samfélag sem staðið hefur staðið af sér þúsund ár en er nú í hættu vegna efnahagslegrar innrásar Hollendinga og Breta. Sé ekki gripið í taumanna verður landið efnahagslega óbyggilegt.


mbl.is Þakkaði Brown fyrir að bjarga Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Málið frá rótum tómt rugl

Setning hryðjuverkalaganna í Bretlandi í haust var ekkert annað en stríðsyfirlýsing gagnvart Íslandi.

Bretar hafa síðan keyrt hernað sinn eftir þeim leiðum sem þeir hafa tök á.

Stjórnmálamenn virðist halda að þeir eigi í diplómatískum samskiptum við Breta og Hollendinga. Þetta er þjóðir sem eru þekktar fyrir ruddaskap sinn við aðrar þjóðir ef þær sækjast eftir einhverju.

Viðbrögð ríkisstjórna frá því í haust hefur einkennst af vanmáttarkennd, heigulshætti og ódrengskap gagnvart þjóðinni.

.


mbl.is Þarf niðurstöðu fyrir helgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Róttækur aktivisti...

Webster Tarpley heldur fyrirlestur í Reykjavíkur Akademíunni í kvöld. Tarpley er frábær fyrirlesari, með hressilega framsögn, húmor og kann að fara með glærur.

Fyrirlesturinn er á fjórðuhæð í JL húsinu kl. 20.00 í kvöld.

Webster Tarpley er róttækur sagnfræðingur og rithöfundur. Tarpley er virtur fræðimaður en að sama skapi umdeildur.

Hann hefur verið kallaður aktivisti og ræðst gegn því sem hann kallar moneyterism og elitism sem má þýða sem peninga- og forréttindahyggja.

Hann gagnrýnir Obama harðlega fyrir að rífa niður velferðakerfið í Bandaríkjunum og kalla aukna fátækt yfir alþýðu manna. Hann bendir á ástand í löndum þar sem 5% þjóðarinnar er auðug en 95% búa við kröpp kjör og lítið þar á milli.

Annar hluti:


Stjórnmálamenn vinna gegn lýðræðinu

Flokkræðið myndar múr um völd stjórnmálamanna....en ekki einungis völd þeirra heldur viðheldur það spillingu.

Eitt af því ógeðslegasta sem ég hef horft upp á frá bankahruninu er blekkingarleikur stjórnmálamanna sem vilja verja það kerfi sem hefur sett þjóðarbúið í þrot.

Gamlir valdapólitíkusar eins og forsætisráðherran, utanríkisráðherran og fjármálaráðherrann stóla á það að landslýður sé of heimskur til þess að sjá í gegnum blekkingarnar.

Ég tek undir með Kristni H Gunnarsyni...stjórnmálamönnum er ákkúrat treystandi til þess að hafa uppi sjónhverfingar sem vernda gamla flokksræðið.


mbl.is „Flokksræðið er krabbameinið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hættulegasta stofnun á Íslandi...

...er fjórflokkurinn.

Fyrsta verkefni ríkisstjórnarinnar ætti að vera að banna fjórflokkinn og setja þessar 400 milljónir sem hún ætlar að skammt flokkunum til góðra málefna, t.d. á Grensás.

Tvær aðrar stofnanir eru líka stórhættulegar en það eru samtök atvinnulífsins og ASÍ.

Það þarf að leggja þær stofnanir niður áður en þær ræna sparnaði landsmanna og afhenda hann byggingarverktökum sem eiga stóra sök á hruninu.

Makkað er nú bak við tjöldin um að hirða það sem er í lífeyrissjóðunum og koma því í hendur stórra byggingaverktaka. Fjármálaráðherrann hefur forgöngu um þennan ófögnuð.

Launþegar þessa lands í guðanna bænum látið í ykkur heyra. Þið þurfið að lifa eftir 67 ára aldur.


mbl.is Viðamiklar breytingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þú getur fengið að borga kr. 4.900 fyrir að hlusta á opinbera starfsmenn tala um störf sín

Nú bjóða opinberir starfsmenn almenningi færi á því að hlusta á sig fjalla um vandamálin sem þeir hafa sjálfir skapað gegn "hóflegri greiðslu" kr. 4.900.

FVH boðar til hádegisverðarfundar um skuldastöðu heimilanna á Grand hótel Reykjavík þriðjudaginn 29. september 2009, kl. 12:00-13:30. Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, Tryggvi Þór Herbertsson, alþingismaður og Þórólfur Matthíasson, prófessor, munu flytja erindi á fundinum.

Fróðlegt að vita hvort Þórólfur hefur rætt á nettan hátt um "hryllings sviðsmyndina" sem hann boðar ef landsmenn hlýða ekki Jóhönnu Sigurðardóttur.


Hækkaði ekki höfuðstóllinn um 100%

Eins og mig minni það. Nú svo er verið að lögsækja þessa gengistryggðu samninga vegna þess að óheimilt er að gengistryggja lán.

Þeir sem ekki ganga að boði Birnu mega því eiga von á 50% lækkun þegar/ef málið vinnst fyrir dómstólum.


mbl.is 25% lækkun höfuðstóls lánanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sparifé landsmanna í hítina

Nú fara um fjölmiðlanna nafnlausar fréttir af því hvernig sparifé landsmanna skuli ráðstafað í óarðbær verkefni.

Í hverra þágu eru þessi verkefni? Ekki eiganda fjárins svo mikið er víst.

Fé án hirðis sagði ágætur maður eitt sinn. Stjórnvöld á Íslandi virðast leggja þann skilning í orðið hirðir að hann sé sá sem hirðir annarra manna fé.

Uppbygging nýs háskólasjúkrahúss er ekki verkefni launþega í landinu né heldur á það að koma í þeirra hlut að fjármagna það með sparnaði sínum. Launþegar og fyrrverandi launþegar virðast eiga taka á sig endalausar byrðar. Atvinnumissir, launalækkun, hækkun gjalda, verðhækkanir, skuldirnar vaxa og vaxa, vextir hækka og nú að að vaða með lúkurnar í sparnað þeirra til elliáranna til þess að styrkja byggingarverktaka sem áttu góðan þátt í að setja þjóðarbúið á hausinn.

Níu manna hópur stjórnarmanna og framkvæmdastjóra lífeyrissjóðanna fundar nú með fjármálaráðuneyti.

Á fundinum voru ræddar  tillögur um aðkomu lífeyrissjóðanna að uppbyggingu nýs háskólasjúkrahúss. Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, segir að fundurinn hafi verið haldinn að frumkvæði fjármálaráðuneytisins

Samkvæmt kjarasamningum í sumar stóð til að ljúka þessum viðræðum fyrir 1. september en það hafðist ekki.

Er það í kjarasamningum að launþegar eigi að fjármagna bygginu sjúkrahúsa? Hverjir fá síðan aðgang að þessum sjúkrahúsum í hallærinu? Það er ekki allir sem hafa bolmagn til þess að greiða hækkandi þjónustugjöld.

Byggingariðnaðurinn var belgdur út í fasteignabólunni. Nú ætlar fjármálaráðherran að viðhalda þessum ofvexti með því að eyða sparnaði landsmanna í mannvirki af ýmsum toga. Munið, þetta eru ykkar peningar. Það sem ÞIÐ hafið lagt fyrir til elliáranna. Þegar þið gangið að tómum sjóðunum er þá líklegt að þið munið gleðjast? Gleðjast yfir því að á Íslandi hefur tekist að viðhalda stærstu stétt byggingarverkamanna á byggðu bóli?

Verð ég sökuð um að vera hrædd við útlendinga eða þaðan af verra þegar ég spyr hvort að ódýrt vinnuafl sem byggingarverktakar fluttu inn bíði nú frekari misnotkunar á atvinnuleysisskrá?

Hverjir eru hinir níu sem funda nú með fjármálaráðuneyti um að misnota sparnað landsmanna? Hvers vegna bera þeir ekki nöfn? Hefur þeim verið veitt umboð af eigendum sparnaðarins til þess að halda uppi atvinnu fyrir byggingarverktaka með sparifé þeirra?

Hafa t.d. konur sem eru að missa vinnuna í umönnunarstörfum verið spurðar hvort þær vilji verja sparnaði sínum til þess að halda uppi atvinnustigi karla í byggingariðnaði og skila arði til byggingarverktaka sem eru búnir að græða milljarða á fasteignabólunni?

Já hverjir eru þessir níu og hvernig hafa þeir fengið þetta umboð. Eru þetta allt karlmenn?

Verkefnið sem á að sóa sparnaði landsmanna í með þessum hætti er eitt fjölmargra dæma um verkefni sem skila ekki tekjum að loknum framkvæmdum. Það er verið að draga saman seglin á Landsspítalanum og því spurning hvers vegna þarf að stækk húsnæðið NÚNA!

Göng, vegir og orkusjóðir eru fleiri dæmi um hvað á að sóa sparnaði landsmann í. Þessi uppbygging þjónar byggingarverktökum og stóriðjunni og arðurinn af þessum framkvæmdum mun renna úr landi en eigendur sparifjárins sitja uppi með sárt ennið þegar ríkissjóður verður gjaldþrota og getur ekki endurgreitt lífeyrissjóðunum. Sparnaður launþega mun þá hafa lent á kennitöluflakki.


Davíð birtir vondar fréttir um sjálfan sig!

En ekki er fréttir af Steingrími betri:

Haft er eftir Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra, að það komi alltaf að skuldadögum. SegistDavíð II hann áætla að 15-20% heimila landsins séu í alvarlegum greiðsluvanda vegna þess að lánin hafi hækkað og að þessi hópur þurfi að fá fjárhagsaðstoð.

Össur virðist hins vegar vera í góðum málum og svífur nú um á mjúku skýi því allt er á uppleið hér að hans mati.

Boða sult og seyru svo Íslendingar geti staðið sig sem skattgreiðendur nýju herraveldanna Hollands og Bretlands.


mbl.is Guardian fjallar um hrunið á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ríkissjónvarpið í áróðursplotti með Samfylkingunni?

Mér var frekar ofboðið þegar ég las ræðu Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra á ráðstefnu Sameinuðu Þjóðanna og hvernig fjölmiðlar túlkuðu hana.

Þar sem ég er alls ekki sammála því að Össur sé harðorður í ræðu sinni, heldur þvert á móti, hringdi ég í RÚV og bað þá endilega að flytja hlutlausar fréttir af þessari ræðu.

Ég get t.d. ekki séð hvernig eftirfarandi setningar koma heim og saman við það að Össur hafi verið harðorður:

That is due both to the resilence and hard work of the Icelandic people but also because you, the international community, lent us important support.

Er það harðort af hálfu Össurar að ljúga því að alþjóðasamfélagið hafi veitt Íslendingum stuðning?

Iceland, however, is pulling through, first and foremost due to the hard work of our people but we also had support. Our Nordic family didn’t desert us.

Það er hverjum manni ljóst að alþjóðasamfélagið og þar með taldar Norrænu þjóðirnar fyrir utan Færeyinga snéru baki við Íslendingum.

True, the crisis destroyed financial assets but Iceland’s real assets remain intact, natural resources, human capital, and social welfare.

Össur sagði svo og ég geri ráð fyrir að þetta sé það harðorða sem talað er um:

The IMFoffered us a stabilization program, which remains broadly on track, although I have to voice Iceland’s grave dissatisfaction with the fact, that unrelated bilateral disputes have prevented the program to be fully implemented.

Og hvernig kynnti svo RÚV frammistöðu Össurar. Jú fréttamaður RÚV sagði að Össur hefði beint spjótum að Bretum, Hollendingum og Icesavedeilunni. Það eru hrein ósannindi því Össur beindi einu spjóti að einhverju sem ekki kemur vel fram hvað er (orðin Icesave, Bretar og Hollendingar koma ekki fyrir í ræðunni) en þetta eina spjót hefur sennilega verið um eitt prósent af ræðu hans sem fór að mestu í að mæra alþjóðasamfélagið sem beitir Ísland nú fantabrögðum til þess að gera almenning að skuldaþrælum fjármagnsvaldsins.

Síðan var merkilegt að heyra hvernig Össur skammaðist út í bankamenn en þeir voru jú góðvinir hans í aðdraganda hrunsins og eru sennilega enn.

Hafa fjölmiðlamenn ekkert lært alvarlegum afleiðingum þess að spila með stjórnvöldum?


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband