2009-09-08
Kaupþing skuldar 3.000.000.000.000
2009-09-08
Ferlega skrítið allt saman

![]() |
Eiginkona sparisjóðsstjóra seldi stofnfjárbréfin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2009-09-08
Þriðjungs niðurskurður ekki meðalvegur
Þriðjungsniðurskurður er alvarlegur niðurskurður.
Það er gríðarlega pólitískt mál hvernig verður skorið niður hjá hinu opinbera en það hefur litla umfjöllun fengið í fjölmiðlum og ríkisstjórnin lítið gefið upp um hvernig staðið verði að þeim málum.
Ráð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eru mjög vafasöm og eru þeir orðnir frekar fáir sem trúa á gagnsemi veru hans á Íslandi fyrir þjóðina.
![]() |
Með verulegar áhyggjur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eru þetta fréttir:
Már Guðmundsson segir á Reuters:
Líkur á hagvexti næsta ár
Þó getur brugðið til beggja vona
Nú virðist frekar líklegt að hagvöxtur muni aukast
Hvernig stendur á því að það sem er líklegt en getur brugðist sé komið í heimsfréttir. Hvað þýðir að eitthvað sé líklegt en getur brugðist? Hvort eru meiri líkur á þvð að það sé líklegt eða geti brugðist?
Steingrímur J segir um fréttaflutning Más:
Þetta rímar mjög vel við það sem ég hef sagt (Hvað sagði hann? Sagði hann að það væri líklegt eða gæti brugðist?)
Ég tel að við eigum að geta sé rofa til eitthvað eftir veturinn (Hvaða þýðingu hefur það hvað Steingrímur telur? Hefur það áhrif á niðurstöðuna?)
Að sumu leiti gengið betur í sumar en menn þorðu að vona (Hvaða menn voru það?)
![]() |
Minni samkeppnishæfni Íslands |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sjálfstæðismenn og framsóknarmenn í stjórn Orkuveitunnar ætla að selja skúffufyrirtæki í Svíþjóð auðlindirnar á Suðurnesjum.
Þessi atburðarrás sýnir að sjálfstæðismenn og framsóknarmenn hafa EKKERT lært á hruninu.
Þeir hafa gert leynisamning við skúffufyrirtæki í Svíþjóð. Þeir vilja selja Hitaveitu Suðurnesja á undirverði og taka við greiðslu í formi kúluláns með veði í sjálfu sér og skúffunni í Svíþjóð.
Sjálfstæðismenn og framsóknarmenn hafa skapað hættulegt umhverfi á Íslandi vegna þess að þeir eru búnir koma því orði á Íslendinga að þeir séu eindæma lélegir samningamenn, mútuþægir og alltaf til í leynimakk.
Í viðkvæmri stöðu Íslands sameina hrægammarnir nú krafta sína og bjóða Íslendingum upp á fáránlega samninga sem þeim myndi aldrei detta í hug að bjóða nokkurri siðmenntaðri þjóð.
![]() |
Skora á borgarstjórn að hafna samningi við Magma |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laun kennara á Íslandi með þeirra lægstu í þeim löndum sem eru til samanburðar en útgjöld til menntamála aftur á mótu meðal þeirra hæstu.
Það vantar í þessar skýringar sundurliðun á þessum útgjöldum.
![]() |
Ísland ver hlutfallslega mestu til menntamála |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2009-09-08
Bjartsýni í fjármálum boðar glannaskap
Yfirskuldsetningar byggja á bjartsýnisspám.
Hvers vegna var hinn bjartsýni Már Guðmundsson settur yfir seðlabankann.
AGS er þekkt fyrir að ofmeta hagvöxt í spám sínum þegar sjóðurinn vinnur að því að koma skuldum einkaaðila yfir á skattgreiðendur.
Í kjölfar bankahrunsins hefur safnast saman sveit manna í stjórnsýslunni sem ætlar að sjá til þess að hin alþjóðlega glæpamafía haldi sínu en fólk sem hafði engin áhrif á innleiðingu græðgishagkerfisins taki á sig tapið.
Það sem verra er græðgishugmyndafræðin er í fullu fjöri meðal þeirra sem fara með völdin.
![]() |
Spá kreppu hér næstu árin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |