Er þetta kallað krosseignatengslamafía?

Sjálfstæðisflokkur, samfylkingin og Björgólfur Thor Landsbankinn, Landsvirkjun og erlendir fjárfestar?safe_image_php.jpg

Eru þetta fréttir Moggans?

Morgunblaðið forðast fréttir af málefnum þjóðarinnar eins og heitann eldinn. Kannski ekki skrítið því menn þar á bæ settu jú þjóðarbúið á hausinn.

Krosstengsl Landsbankastjórnenda og samfylkingar eru absurbd en því er sópað hljóðlega undir mottuna.

Fyrrverandi nánir samstarfsmenn Sigurjóns Árnasonar eru nú helstu ráðgjafar forsætisráðherrans og annarra ráðherra.

Kannski fréttir maður næst að Sigurjón Árnason sé orðinn aðstoðarmáður forsætisráðherrans.


mbl.is Fordæmislaus niðurskurður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þolinmæði Íslendinga

Íslendingar bíða eftir rannsóknarskýrslu Alþingis

Íslendingar bíða eftir skjaldborg heimilanna

Íslendingar bíða eftir hinir siðblindu verði sóttir til saka

Íslendingar bíða eftir að Valtýr fatti að hann sé vanhæfur

Íslendingar bíða eftir upplýsingum um hverjir eigi bankanna

Íslendingar bíða eftir degi sem ekki ber með sér vonda frétt

Íslendingar bíða eftir að ríkisstjórnin rifji upp textann í stefnuskrá sinna flokka

 


Ekki veitir af

Það er ýmislegt sem virðist fara ofan garð og neðan í Icesave eins og t.d.:

 Íslenska ríkið ber ábyrgð á íslensku efnahagskerfi og íbúum landsins ásamt starfsemi sem fer fram á Íslandi.

Tryggingasjóður innstæðna er sjálfseignarstofnun sem ber ábyrgð á innstæðum í bönkum sem hafa höfuðstöðvar á Íslandi og eru með útibú erlendis.

Ríkinu er ekki heimilt að veita bönkum eða tryggingasjóðnum ríkisábyrgð samkvæmt tilskipun ESB.

Hollenska og breska ríkið áttu að hafa eftirlit með útibúum í sínum heimalöndum bæði lausafjárstöðu og neytendavernd.

Holland og Bretland eiga eingöngu réttmæta kröfu á Landsbankann og tryggingasjóð en ekki íslenska ríkið. 


mbl.is Indefence á leið í fundaherferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Virðast hafa haft litla fyrirhyggju hjá ESB

Mér sýnist flest kerfi þeirra vera í skötulíki.

Hugsluðu ekki fyrir margbreytileika svæðisins.

Hugsuðu ekki fyrir því að keri þurfa að vera heilstæð en ekki götótt (t.d. fjármálakerfið)

 


mbl.is Óttast að evran hrynji
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Átök í norska þinginu um stuðning við Ísland

Vinstri grænir og Miðflokkurinn vilja aðstoða skilyrðislaust

Norskur Hagfræðingur sendi mér Þennan tengil.

Tengillinn er á frumvarp sem lagt hefur verið fram í norska þinginu en þar segir:

Representantforslag fra stortingsrepresentantene
Hans Olav Syversen, Dagrun Eriksen og Knut
Arild Hareide om bistand til Island uavhengig av
IceSave-avtalens skjebne

Lagt er til í frumvarpinu að Noregur aðstoði Ísland hvað svo sem líður niðurstöðum þjóðaratkvæðagreiðslu um ríksiábyrgð á Icesave

eða orðrétt

Aðstoð til handa Íslandi hvað svo sem líði örlögum Icesave-samkomulagsins 

Í frumvarpinu segir m.a.

"Vi må alltid være forsiktige, og særlig i våre relasjoner
med mindre stater, slik at vi aldri foreslår en
avtale som vi ikke [selv] ville være villig til å akseptere
hvis situasjonen var motsatt".

eða á Íslensku:

Við verðum að vera varkár og sérstaklega í samskiptum við minni ríki þannig að við leggjum aldrei til samkomulag sem við sjálf myndum aldrei samþykkja ef aðstæður væru öndverðar. 

Hérna er linkurinn fyrir þá sem villja hafa áhrif á framboðslistann í forvali VG

Það þarf að skrá sig fyrir 27. janúr næstkomandi


mbl.is Systurflokkur VG beitir sér í Icesave-málinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 25. janúar 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband