Náum stjórnmálunum af þeim sem halda að þau séu eign pólitíkusa

Stjórnmálin eig að þjóna okkur en ekki mönnum sem vilja eiga glæsivillur í London.mynd_1_crop_minni.jpg

Ég var að opna nýja síðu hér

Þeir sem vilja taka þátt í forvali VG skrái sig hér

Þetta er kosningamyndin hér til hliðar.

 


mbl.is Þrjú lönd koma til greina
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Er það ekki einmitt það sem vg er að gera.

Allt þetta stjórnmálalið sem nú er við völd er sami skíturinn í sömu klósettskálinni.

Almenningur þarf bara að ná í takkann til að sturta niður.

Sveinn Elías Hansson, 24.1.2010 kl. 20:50

2 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Já eða að gera eins og ég. Það er að segja að ráðast beint inn í fílabeinsturninn.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 24.1.2010 kl. 20:54

3 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Já kanski rétt hjá þér. En ég ætla ekki að greiða félagsgjald til vg til að geta tekið þátt í forvali.

Sveinn Elías Hansson, 24.1.2010 kl. 21:00

4 Smámynd: Sævar Helgason

Margir bundu vonir við nýja þingmenn og konur (Borgara) Heyfingarinnar þegar þau settust á Alþingi.  Öll beint úr grasrótinni á Austurvelli mótmælanna.  Þau réðust inn í fílabeinsturninn.  Og þau urðu strax alveg eins og hin sem fyrir voru...

Sævar Helgason, 24.1.2010 kl. 21:01

5 identicon

Undarleg þessi umræða um að þurfi nýtt og nýtt fólk á Alþingi og í borgarstjórn til að hlutirnir batni og ný vinnubrögð tekin upp. 

Varð ekki mesta endurnýjun í sögu Alþingis fyrir tæpu ári.  Og hvað ? 

Það versnaði bara.  Segir meira um þjóðina en þingið.

Fulltrúaþing verður aldrei öðruvísi en þverskurður þeirra sem kusu. 

Samsetning Alþingis á hverjum tíma er ekkert annað en spegilmynd þjóðarinnar. Ef Þjóðin er ekki sátt við þingmenn sína verður hún bara að líta í eigin barm. 

Og hana nú.

Jón Óskarsson (IP-tala skráð) 24.1.2010 kl. 21:14

6 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Sveinn Elías það fá allir sem eru skráðir að taka þátt í forvalinu óháð því hvort þeir hafi greitt félagsgjald.

Það er ekki hægt að verðleggja lýðræðið og því geta félagsgjöld varla orðið skilyrt. 

Sævar ég er alls ekki sammála að því að Hreyfingin sé eins og hinir stjórnmálamennirnir. Ekkert þeirra með kúlulán og ekki hafa bræður þeirra og systur verið að græða á kreppunni eftir því sem ég best veit. 

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 24.1.2010 kl. 21:14

7 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Sæll Jón

 Því miður eru þátttakendur í vitfyrringunni fyrir hrun enn við völd. Hinir nýju og ungu tilheyra flest þeim hluta þingmanna sem fara með lítil völd. Það var eingöngu skipt um valdablokk innan fjórflokksins. 

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 24.1.2010 kl. 21:16

8 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Það var ekki skipt um neina valdablokk, það var bara skipt um hlutverk í leikritinu. Fjórflokkurinn er ein veldablokk . Það hefur sannast svo rækilega eftir hlutverkaskiptin.

Sveinn Elías Hansson, 24.1.2010 kl. 21:24

9 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

 Ég sé ekki betur en að hlekkurinn sem þú ert með fyrir þá sem vilja taka þátt í forvalinu sé ósk um að ganga í flokkinn, og þar með færð þú rukkun fyrir félagsgjöldum.

Sveinn Elías Hansson, 24.1.2010 kl. 21:26

10 identicon

Átta mig ekki á þessari fyrirsögn.  Hverjir eiga stjórnmálin aðrir en kjósendur? 

Og er það ekki stuðningsyfirlýsing við þenna svokallaða "fjórflokk" að benda fólki á að ganga til liðs við hann sbr. krækju á aðildarbeiðni í VG? 

Jón Óskarsson (IP-tala skráð) 24.1.2010 kl. 21:26

11 Smámynd: Páll Blöndal

þú segir "Náum"?????    Þ.e í fleirtölu.
Þú ert að meina að við náum stjórnmálunum úr höndum stjórnmálamanna
og afhendum stjórnmálamanninum Jakobínu Ingunni Ólafsdóttur?

Páll Blöndal, 24.1.2010 kl. 21:28

12 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Sæll Páll. Ég get nú vart talið mig til stjórnmálamanna. Kerfið hefur innbyggða valdamúra og blekkingar og launhyggja stjórnmálamanna hafa rænt stjórnmálum af almenningi. Ég veit svo sem ekkert hvað þú ert að meina Páll með því að tala um afhendingu. Það er vottur af foringjahyggju í þessum ummælum. Kannski leyfar af hugmyndafræði sem fylgjendur Davíðs Oddsonar flæktu sig í. Ég sagði okkar og þá meina ég okkar því ef stjórnmálin verða ekki opnuð upp á gátt og gerð að okkar þá mun spilling og sjálftaka í anda Davíðs og Halldórs ríkja áfram.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 24.1.2010 kl. 21:37

13 identicon

Komið þið sæl; Jakobína - sem og, þið önnur, hér á síðu hennar !

Hafir þú ekki vitað; fyrir nokkru, að þá eru 75 - 80% Kratavinafélagsins (VG), undir leiðsögn aðstoðaryfirdraslarans Steingríms J . Sigfússonar (Geir H. Haarde; er jú, ókrýndur Yfirdraslari), og þú lætur svo lítið; að ganga til liðs, við þetta skólp - sem VG hefir sannað sig í, að vera, Jakobína Ingunn.

Lítil er nú reisnin; stjórnsýslufræðingur góður, því miður.  

Hverju; skyldir þú nú ná að breyta, þar innanbúðar - fyrir andskotans stólpa kjaftinum, úr Þistilfirði norður, kynjuðum; þeim undirförula fjanda - og hans fylgjurum, svo sem ?

Með kveðjum; þó, úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 24.1.2010 kl. 21:41

14 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Hvað með þessa inngöngubeiðni í vg sem þú vilt að fólk útfylli og greiði síðan félagsgjöld til þessa svikaflokks. Finst þér það allt í lagi að biðja fólk um það, án þess að gera grein fyrir hvað þessi inngöngubeiðni þýðir?

Sveinn Elías Hansson, 24.1.2010 kl. 21:48

15 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Sæll Sveinn

 Þú ert greinilega að misskilja textann. Fólk á fyrst og fremst að vera trútt sinni sannfæringu og alls ekki að skrá sig nema það telji sér hag að því að geta haft áhrif á framboðslistann eða stjórnmál yfirleytt.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 24.1.2010 kl. 21:50

16 identicon

Nákvæmlega.

"Náum stjórnmálunum af þeim sem halda að þau séu eign pólitíkusa"

Tökum 4flokkinn frá  Innri klíkunum sem stýra þeim. Og færum fólkinu, svo að loks sé hægt að fara í þær lýðræðisumbætur fólksins sem hér þarf til að skapa varanlegan frið og jafnrétti.

Ísland er sennilegasta eitt auðugasta land í heimi, miðað við fólksfjölda. Hér gætu allir lifað sem kóngar. En sum svín í okkar kerfi hafa komið því svo fyrir, í gegn um 4 flokkinn, að svínin í innsta hring 4flokksins eru jafnari en við hin.

Arnór Valdimarsson (IP-tala skráð) 24.1.2010 kl. 21:57

17 Smámynd: Offari

Gangi þér vel.

Offari, 24.1.2010 kl. 22:06

18 Smámynd: Ómar Geirsson

Látið ekki svona strákar.

Jakobína mun aldrei láta neitt annað en gott af sér leiða innan VG.

Og ekki vorkenni ég Steingrími að kljást við hana.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 24.1.2010 kl. 22:11

19 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Vonandi nær hún einhverjum árangri, en því miður er flokkseigendafélagið ( Steingrímur, Svavar, Katrín og aðrir já bræður) illt viðureignar. Ekki hefur Ögmundi gengið of vel að eiga við það.

Sveinn Elías Hansson, 24.1.2010 kl. 22:40

20 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Kannski þá ekki úr vegi að Ögmundur fái liðstyrk.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 24.1.2010 kl. 23:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband