Gengið hart gegn konum

Það hefur verið gengið hart gegn konum bæði fyrir og eftir hrun.

Hvort sem okkur líkar betur eða verr búum við í karlægu samfélagi þar sem konum er jafnan bolað frá nema þá kannski helst þeim sem beygja sig undir peningavaldið. 

Stjórnvöld ganga jafnan á snið við reglur og lög en það hefur meðal annars leitt til þess að jafnréttislög og jafnréttissjónarmið eru hunsuð. 

Fyrri ríkisstjórnir hafa unnið markvisst gegn eðlilegu og réttlátu samfélagi þar sem hæfni og góðir mannkostir ráða ferð við val á fólki í störf og trúnaðrastöður. 

Þóra Kristín er einn af okkar hæfustu fjölmiðlamönnum en virðist nú og kannski þess vegna vera skotspónn þeirra sem ekki kæra sig um gagnrýnar raddir í fjölmiðlum.

 


mbl.is Fjölmiðlakonur harma átök
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Svavarsson

Það geta nú verið takmörk á því hvað konur geta frekjast með allt, ég er fullviss þess, að ef hlutfallið væri öfugt þá findist þeim það svo sjálfsagt. Það er bara stundum svoleiðis að hlutirnir æxlast þannig og þá verður bara að sætta sig við það. Nema þær vilji einnig standa fyrir fjölduppsögnum meðal karla í stéttinni til að ráða konur í þeirra stað, hvað á að ganga langt? Með fullri virðingu fyrir afrekum kvenna, þá þarf bara stundum að láta skynsemi ráða, en ekki einhverja duttlunga eða illa skrifaðar reglugerðir.

Karlar eru líka fyrirvinnur!

Jón Svavarsson, 8.5.2010 kl. 16:12

2 Smámynd: Jón Svavarsson

Þóra Kristín getur engu að síður verið frábær fréttamaður, en það er ekki samasem merki á milli þess og að stjórna stéttarfélagi. Áherslur og baráttuvilji er mjög ólíkur.

Jón Svavarsson, 8.5.2010 kl. 16:16

3 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Já Jón auðvitað eru konur frekjur en karlmenn með áherslur og baráttuvilja. Kannski ætti bara að loka konur inni þannig að karlmenn geti í friði gengið fram með baráttuvilja og áherslur í friði fyri frekju kvenna.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 8.5.2010 kl. 16:24

4 Smámynd: Jón Svavarsson

Nooohhh þar gekk ég fram af þér, en það var ekki tilgangur, en það er stundum hægt að fá of mikið af öllu þessu "JAFRÉTTIS" áróðri þegar það er komið uppí andhverfu sína að það sé ekkert jafræði nema að konur hafi öll yfirráð, það er þannig með margar konur að það er ekkert annað jafnræði nema heimsyfirráð eða dauði. Skilvirkt jafnræði fellst í því að bæði karlar og konur geti beðið lægri hlut í baráttu og vissulega hafa konur líka áherslur og baráttuvilja þær þola sjaldnast samkeppni. :-)

Jón Svavarsson, 8.5.2010 kl. 20:00

5 Smámynd: Jón Svavarsson

Hinsvegar frænka sæl, tek ég undir það sem þú skrifar um opinberar embættisveitingar og vissulega er alltof oft gengið fram hjá mjög hæfum konum og ráðin karl með "mislítið tippi" því margir þeirra hafa enga hæfileika til forystu, þar sem hæfa konan stóð mörgum bíllengdum framar að hæfi. Ég hef ekkert á móti konum en jafnræðið felst meir í því að líta hvert annað jöfnum augum án þess að þurfa að vera að "Hamra" á síbylju reglugerða og opinbera fyrirmæla. Ég hef alltaf sagt að konur eru yndislegar og hreint dásamlegar, það ætti hver maður að eiga amk 10 slíkar, þeir gætu þurft á því að halda amk sumir hverjir :-)

Jón Svavarsson, 8.5.2010 kl. 20:12

6 Smámynd: Júlíus Björnsson

Ég er viss um að ef gerðar yrðu meiri afkasta og hæfniskröfur samfara gífurlegum launaniðurskurði í stjórnsýslunni.  

Að allt myndi fyllast þar upp af kvenmönnum.

Júlíus Björnsson, 9.5.2010 kl. 19:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband