Vel heppnuð fjölmiðlaþöggun

Eigendur og stjórnendur þriggja banka keyrðu þjóðarbúið í þrot. Af hinum1118106_779553.jpg þremur föllnu bönkum var Landsbankinn verst settur. Þýðir þetta að mestu hafi verið stolið í Landsbankanum? Fréttir bárust af því að skuldabréf Landsbankans hafi verið metin á 1.25% vorið 2009 en skuldabréf Kaupþings voru metin á 6,6% af nafnverði á sama tíma. Trú kröfuhafa á Landsbankanum var því nánast engin.

Einhver gæti því spurt hvort ekki sé forgangsverkefni að rannsaka Landsbankann. Þeir sem létu greipar sópa um hirslur Landsbankans virðast vera varðir af hinni margrómuðu skjaldborg.bas_067.jpg

Það er augljóst að það er dýrmætt að eiga hlutdeild í þingmanni. Hlutdeild í ráðherra sem virðist hafa límt sig fastan við ráðherrastól skildi þó væntanlega vera enn dýrmætari. Það er auðvitað einstaklega góður díll að kaupa banka af ríkinu, láta annan banka sem einnig er keyptur af ríkinu fjármagna kaupin og nota síðan fjármuni bankans til þess að kaupa stjórnmálamenn.

 Fjöldi lífeyrissjóða keyptu skuldabréf Samson fyrir um 10 milljarða króna. Þar á meðal eru stærstu lífeyrissjóðir landsins, Lífeyrissjóður verzlunarmanna, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) og Gildi lífeyrissjóður.

Vert fyrir lífeyrisbótaþega að hugsa til þess þegar þeir þiggja skertar bætur að hluti skerðingarnar hefur farið til þess að halda uppi lífstíl Björgólfs Thors

element01_989541.jpg

 

Orðið á götunni eftir hrun var að ónefndir óreiðumenn hefðu sést hlaupa upp í einkaþotur sínar með ferðatöskur troðnar dollurum og evrum.

Sú saga gekk líka fjöllum hærra að ýmislegt hefði verið flutt til landsins í einkaþotum órreiðumanna sem ekki sættu tollskoðun.


mbl.is „Ég tek ábyrgð“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Pétursson

Þetta er ógeðslega spillt þjóðfélag.  Í þessu tilfelli þarf að birta allar heimilidir sem Stöð 2 hafði fyrir fréttinni á sínum tíma og rannsaka það ofan í kjölinn.  Var ástæða til þess að draga féttina til baka?  Þetta eru ótíndir glæpamenn sem þarna eiga hlut að máli  og þeir eru mjög líklega sekir um þetta og margt annað miklu verra.

Glæpastarfssemin og þjófnaðurinn hjá eigendum og stjórnendum Landsbankans og Glitnis  var ekkert minni en hjá Kaupþingi.  Það er með ólíkindum að þeir glæpamenn sem þar stjórnuðu, skuli ennþá ganga lausir.

Það þarf að stórefla embætti sérstaks saksóknara þ.a. hægt sé að koma þessum glæpamönnum á bak við lás og slá sem fyrst. 

Guðmundur Pétursson, 11.5.2010 kl. 11:30

2 Smámynd: Árni Þór Björnsson

Tek undir það,  en hvaða frétt og hvaða fjórir auðmenn koma við sögu ? Getur e-r svarað því ? 

Árni Þór Björnsson, 11.5.2010 kl. 11:38

3 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Auðmennirnir voru Björgólfur Thor, Björgólfur Guðmundsson, Karl Wernerson og Magnús þorsteinsson.

Umræddur fréttamaður flutti einnig fréttir af 440 milljóna láni Jóns Ásgeirs sem hann fékk nýlega. 

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 11.5.2010 kl. 11:50

4 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

http://visir.is/leidretting-a-frett-um-fjarmagnsflutninga/article/2010771596600

http://eyjan.is/blog/2010/05/11/oskar-hrafn-haettur-sem-frettastjori-stodvar-2/

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 11.5.2010 kl. 11:59

5 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

sammála hverju orði hér

Jón Snæbjörnsson, 11.5.2010 kl. 13:17

6 Smámynd: Árni Gunnarsson

Það er löngu orðið ljóst að skipuleg þöggun fjölmiðla er í gangi þegar kemur að rannsókn á Landsbankanum eða umfjöllun um starfsemi hans.

Árni Gunnarsson, 11.5.2010 kl. 19:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband