Heldur Björn Valur að hann sé líka kóngur

Þetta er kannski bara grín hjá Birni Vali svona rétt eins og grín Steingríms þegar hann kallaði samning Svavars Gestssonar glæsilegan og ætlaði líka að halda honum leyndum.

Steinunn Valdís hefur líka verið rosalega fyndin en er stundum ekki orðheppin.

Nú skákar Finnur Ingólfsson Framsóknarflokknum fram að venju í borginni. Framsóknarflokkurinn er orðin svo slappur í kosningalyginni að hann getur ekki fattað upp á kosningafrösum sjálfur og er nú búin  að stela ameríska frasanum "no child left behind". 


mbl.is Segir sig úr ríkisfjármálahópi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Ég held að svarið við þessu sé "Já".  Hann a.m.k. finnur til valdsins.  Mikið er ég sammála Lilju að vilja ekki sitja undir þessu.

Marinó G. Njálsson, 24.5.2010 kl. 00:59

2 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Egill Helgason var að greina vanda flokkanna í Reykjavík:

En það eru samt ákveðnir hlutir í baráttunni í Reykjavík sem hafa áhrif.

Dagur B. Eggertsson er ekki að ná til kjósenda. Hann setur á alltof langar og þvælnar ræður; fólk verður hálfringlað að hlusta á hann.

Sóley Tómasdóttir hefur sýnt sig að vera atkvæðafæla. Það er bara svo einfalt. Hún hefur of einstrengingslega tilhöfðun – og hefur misst út úr sér hluti sem hafa skaðað framboð VG verulega.

Það er reynt að segja kjósendum að Hanna Birna Kristjánsdóttir sé utan og ofan við pólitískar þrætur. Staðreyndin er samt sú að hún er skilgetið afkvæmi flokksskrifstofu Sjálfstæðisflokksins, er alin upp þar undir handarjaðri Kjartans Gunnarssonar. Hún er flokksmanneskja í húð og hár.

Framsóknarflokkurinn stendur frammi fyrir því að eiga ekki mann í borgarstjórn í Reykjavík í fyrsta sinn í langan tíma. Það hefur minnst með oddvita flokksins, Einar Skúlason, að gera, heldur helgast aðallega af því mikla spillingarorði sem hefur lengi farið af flokknum í Reykjavík.

Í Frjálslynda flokknum er ágætt fólk í framboði, en nafn flokksins er nánast ónýtt eftir langvarandi innbyrðis átök.

Reykjavíkurframboðið einbínir aðallega á Reykjavíkurflugvöll. En það er mál sem er einfaldlega ekki á dagskrá þessa dagana. Fólk hefur um annað að hugsa.

Og Besti flokkurinn, hann virðist enn vera á sinni miklu siglingu. Breytir það einhverju þetta viðtal við Jón Gnarr sem birtist í Grapevine og Illugi snaraði og setti á vefinn hjá sér?  Jón Gnarr segir ýmsa hluti sem virka óþægilegir, grínið hjá honum hefur náttúrlega alltaf verið úti á ystu nöf, jafnvel við mörk brjálseminnar. Það er ekki alltaf auðvelt að sjá hver hann er í raun og veru.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 24.5.2010 kl. 12:04

3 Smámynd: Hörður B Hjartarson

    Já !     Hún Steinunn Valdís er frábærlega "flott" í viðtalinu , og kemur ekki til greina að hún - HÚN sjálf STYRKJDROTTNIGIN yfirgefi Þjóðarleikhúsið , nei munum bara eftir því að bera ótakmarkaða virðingu fyrir Þjóðarleikhússleikurunum .

Hörður B Hjartarson, 25.5.2010 kl. 02:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband