Kjaftar af sér kreppuna

Trichet virðist hafa tekið íslenska ráðamenn sér til fyrirmyndar og gera heiðarlega tilraun til þess að kjafta af sér kreppuna.

það er þó merkilegt hvernig margir hamast nú við að skapa þá ímynd að vinstristjórnin sé að búa til kreppuna sem sjálfstæðismenn sköpuðu með glæpsamlegu framferði.

Helsti vandi almennings er að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn stjórnar landinu, Jóhanna og lið hennar í Samfylkingu eru tilbúin til þess að fórna velferð almennings fyrir inngöngu í ESB og það virðist vera orðið lögmætt í Evrópu að leggja niður velferðakerfi.

Það má vel spara hjá hinu opinbera með því að leggja niður bitlingastöðurnar sem sjálfstæðismenn stofnuðu, afnema ofureftirlaunakerfi stjórnmálamanna, reka vanhæfa ríkisforstjóra, leggja niður seðlabankann sem helst virðist sinna því hlutverki að safna skuldum og halda uppi ofurvöxtum, koma á laggirnar þjóðhagsstofnun sem byggir á atgervi en ekki bitlingaráðningum.

 Þá væri ekki úr vegi að skattleggja eldra fólk sem fékk óverðtryggð lán og dreifa þannig kreppubyrðinni. 


mbl.is Óttast ekki nýja kreppu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Allt rétt hjá þér nema þetta með skattlagninguna á eldra fólk sem fékk óverðtryggð lán það er flest komið yfir móðuna miklu!

Sigurður Haraldsson, 4.7.2010 kl. 18:17

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Ekki Pétur Blöndal.

Guðmundur Ásgeirsson, 5.7.2010 kl. 02:35

3 Smámynd: Júlíus Björnsson

Erlendir aðilar hafa fjármálgeirann hér á fóðrum, þeir hafa líka þroska sem finnst ekki hér í framkvæmd gagnvart almenningi.  Sé neytendum almennt endurgreitt kauphallasvindlið og óðeðli markaðsvæðing með til lit til einokunar negam-lánsforma  sem fáir hafa greind til að samþykkja, þá tapa þeir erlendu og fjármálgeirinn [kostnaðar og hrunvaldurinn] er úr sögunni. Velferðakerfið fer svo sjákrafa í framhaldi í gang aftur á ennþá betri grunni. Útlendingarnir vita vel að fjármál snúast um næstu 30 ára og eru fljótir að geyma enda vanir að afskrifa verðbólguleiðréttingarvexti. 

IMF er fljótt að setja sig inn í breyttar Íslenskar skammtíma áhættu forsendur. Hinar öruggu langtíma sem var ýtt til hliðar  vegna skammtíma áhættumótunnar er kallað merkja þroska erlendis. Velta kynslóð til kynslóðar.

Júlíus Björnsson, 6.7.2010 kl. 17:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband