Gott ef verið er að hverfa frá þessari klikkun

Þessi kynslóð setti landið á hausinn og það er ekki þessari kynslóð of gott að herða sultarólarnar til þess að skila landinu í viðunandi ástandi til næstu kynslóðar.

Ofurlánatökur ríkisstjórnarinnar gera landið efnahagslega óbyggilegt fyrir afkomendur okkar.  


mbl.is Kannað hvort þörf sé á lánum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sammála!

heidi strand (IP-tala skráð) 12.10.2010 kl. 19:54

2 Smámynd: Elle_

Líka sammála þessu, Jakobína.  Hef ekki getað skilið endalausu ofurlánatökurnar, eins og þú kallar það.   Ofan á það bættust vitlausustu rök heims: Við þurfum að borga ICESAVE því annars vill enginn lána okkur!??

Elle_, 12.10.2010 kl. 21:31

3 identicon

Elle Ericsson: Þau rök eru kannski ekki alveg jafn vitlaus og maður myndi halda í fyrstu. Þetta snýst ekki bara um í sjálfu sér lán heldur einnig fjárfestingar. Fjárfestar (og lánardrottnar) gera langtímafjárfestingar þar sem þeir geta treyst á sterkustu öfl landsins til að tryggja þær. Venjan er sú, samkvæmt áliti hins almáttuga markaðar, að ríki tryggi innistæður banka sinna. Um leið og það er farið að víkja frá þeirri reglu, þá fara allir fjárfestar alls staðar að hugsa sig tvisvar og þrisvar um.

Afleiðingarnar geta verið mjög alvarlegar. Svo eru aftur á móti stórar siðferðislegar spurningar sem vakna og þarf að svara, en við munum borga Icesave, það er bara spurning um hvernig.

Mér finnst alveg magnað hvað ég hljóma alltaf eins og einhver samsæriskenninga-vitleysingur þegar ég þvaðra bara aðeins um peningakerfið eftir bestu vitund. Alveg magnað.

Helgi Hrafn Gunnarsson (IP-tala skráð) 12.10.2010 kl. 23:49

4 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Ekki er nein furða Helgi, að þér líði illa og eins og vitleysingur með að láta svona vitleysu frá þér fara. Icesave-kröfurnar eru forsendulausar og ef þær væru greiddar, væri það eins og að gefa eftir fyrir sjóræningum. Í örvæntingu væri hugsanlega réttlætanlegt að láta ræna frá sér heiðri og aleigu, en staða okkar er ekki lengur þannig. Úr þessu mun þjóðin aldreigi láta undan ósiðlegum kröfum nýlenduveldanna.

  

Helgi, þú segir:

 

Venjan er sú, samkvæmt áliti hins almáttuga markaðar, að ríki tryggi innistæður banka sinna.

 

Hvaðan hefur þú þessa fáránlegu setningu ? Varst þú heilaþveginn í Ráðstjórnarríkjunum ? Það eru bara kommúnistar sem líta til ríkisvaldsins með svona lotningu. Raunar er kommúnistisk stjórn víða í löndunum báðu megin Atlandshafsins. Seðlabankarnir eru skýr sönnun á þessari fullyrðingu.

 

Torgreinda peningastefnan (discretionary monetary policy), sem seðlabankarnir byggja á, var beinlínis fundin upp til að arðræna almenning og spilla sálu fólks. Á Vesturlöndum hefur verið komið á hinu fullkomna kommúnistiska kerfi, því að almenningur heldur að hann lifi í kapítaliskum samfélögum ! 

 

 

Loftur Altice Þorsteinsson, 13.10.2010 kl. 00:15

5 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Fyrirgefðu Helgi. Ef það væri ekki almennt þannig að ríkisstjórnir færðu tapið af glannaskap bankamanna yfir á skattgreiðendur þá yrðu hvert myndu þá fjárfestar leita? Fjárfestar taka áhættu í gróðravon.

Nú er svo komið að ríkisstjórnir eru farnar að nota skattgreiðendur sem tryggingu gegn tapi af vitlausum fjárfestingum.

Þetta er bara galið.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 13.10.2010 kl. 00:24

6 identicon

Loftur: Veistu, ég fer að verða hundþreyttur á því að látið sé eins og að ég sé að verja kerfið, þegar það eina sem ég er að reyna að gera, er að útskýra vandamálið. Mér finnst þetta engu réttlátara en þér. Ég hef þessa fáránlegu setningu (sem mér þykir alveg jafn fáránleg og þér) frá þeirri staðreynd að þegar bankakerfi hrynja þá er þeim bjargað af ríkinu hverju sinni vegna þess að annars þurrkast út fjárfestingar. Hvað sérðu í mínum skrifum sem þér þykir réttlæta þetta? Ef ég vara þig við að ganga upp á móti snjóflóði, er ég þar með að segja að þú eigir skilið að deyja fyrir það? Gimmí-a-fokkin-breik, eins og þeir segja hérlendis.

Jakobína: Ég er algerlega sammála því að þetta sé galið. En það lagar ekki kerfið og aftur vil ég ítreka að ég er ekki að réttlæta eða verja eitt eða neitt. Ég skrifa bara um hlutina eftir bestu vitund og eftir minni bestu vitund er ekki einu sinni spurning hvort við borgum Icesave eða ekki. Það mun gerast eða erlendar fjárfestingar kæfa Ísland.

Ég spyr; eru Íslendingar virkilega til í þann slag? Ég hafði vit á að flytja burt af þessu guðsvolaða skítaskeri þannig að ég veit ekki hvort ég ætti að dæma um þetta, en værir þú til í þrefalt matarverð, hugsanlegan lyfjaskort og svo framvegis, ef það væri kostnaðurinn við að borga ekki Icesave?

Hættum að rífast í tvær sekúndur og spyrjum bara þeirrar spurningar; ef þetta væru afleiðingarnar af því að "svíkja" alþjóðabankakerfið, væru Íslendingar reiðubúnir til að taka á sig slíkar afleiðingar, gegn því að borga ekki Icesave?

Getur annars einhver útskýrt fyrir mér hvers vegna jafnvel kommúnistarnir í VG líta ekki á það sem val? Það er vegna þess að með því að borga ekki væri verið að dæma þjóðina í ennþá meiri klikkun.

Vill fólk vinsamlegast hætta að láta eins og ég sé að verja þetta rugl? Ég er bara að benda á vandann, og hann er viðurstyggilegur og erfiður. Það er alveg hægt að storka bankakerfinu, en það eru óhjákvæmilegar afleiðingar af því. Væru Íslendingar reiðubúnir fyrir slíkar afleiðingar?

Ég væri til í það ef íslensk alþýða væri til í það, en hún er það ekki, vegna þess að hún skilur ekki vandamálið! Hún heldur að þetta snúist um réttlæti! Þetta snýst fjandakornið ekkert um réttlæti, heldur peningamagn í umferð, fjárfestingarmöguleika, bindiskyldur, vexti og hagvöxt. Réttlæti er ekki einu sinni með í myndinni, og enn og aftur, í skrilljónasta skiptið, þykir mér það alveg jafn viðbjóðslegt og hverjum öðrum.

En til þess að ganga svo langt að storka alþjóðabankaveldinu verður fólk að vita hvað sé í húfi. Það er ekki bara að gamni að jafnvel Barack Obama í Bandaríkjunum og VG á Íslandi, sem hafa ekki beinlínis pólitíska hagsmuni af því að svíkja gjörvalla grundvallarhugsjónir sínar, hafa gengið fyrir því að taka yfir skuldirnar vegna þess að þetta fólk skilur að það er nauðsynlegt. Nú vil ég ítreka þar sem það virðist vera þörf; nauðsynlegt, ekki réttlátt, heldur nauðsynlegt. Vinsamlegast kennið einhverjum öðrum en mér um þá staðreynd.

Icesave verður borgað. Það er ekki spurning um álit mitt eða ykkar.

Helgi Hrafn Gunnarsson (IP-tala skráð) 13.10.2010 kl. 13:29

7 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Helgi Hrafn Þú segir: Það mun gerast eða erlendar fjárfestingar kæfa Ísland.

Hvernig fara þeir af því?

Hver er að kalla á erlenda fjárfesta?

Er ekki nóg af þeim nú þegar og eru þeir ekki þegar búnir að keyra þetta landi í þrot?

Hverjir eru þessir erlendu fjárfester?

Ég skal nefna nokkur dæmi:

Magma Energy sem keypti jarðvarmaauðlindir á Suðurnesjum fyrir kúlulán og hrunkrónur.

Stóriðjan sem greiðir nánast enga skatta á Íslandi og hirðir mest alla arðsemina af fjármögnun virkjanna.

Erlendir aðilar sem kaupa vatn á eina krónu tonnið.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 13.10.2010 kl. 14:06

8 Smámynd: Kristinn Daníelsson

Ja hérna Jakobína

Ennþá berð þú á borð vafasamar fullyrðingar. En tilgangurinn helgar líklega meðalið.

Magma keypti hlut í HS orku sem hefur rétt til að nýta jarðvarma til að framleiða orku til endursölu. Allir vita og eru sammála um að orkuauðlindir eru ekki til sölu. Þér til huggunar þá finnst mér þessi gjörningur afar óheppilegur en líklega er hann löglegur og of seint að gera eitthvað í því núna. En óþarfi er að afbaka staðreyndirnar til hjálpar málstaðnum.

1.000 milljónir vegna 2008 og 1.500 milljónir vegna 2007 sem Alcan greiddi er kannski að þínu mati nánast engir skattar en mér finnst það þó nokkuð meira en það. Hvort þetta er nógu mikið er hins vegar matsatriði en fráleitt teljast þetta nánast engir skattar.

Eftirfarandi upplýsingar eru teknar af mbl.is  

5 gjaldahæstu lögaðilarnir í Reykjanesumdæmi vegna 2008:
  1. Alcan á Íslandi hf.    984.973.080 krónur
  2. Kópavogsbær   363.772.782 krónur
  3. Hafnarfjarðarkaupstaður 313.875.790 krónur 
  4. Icecraft ehf. Álafossi  208.488.037 krónur
  5. Reykjanesbær  204.433.764 krónur
Fyrirtækin, sem greiddu hæstu gjöld í Reykjanesumdæmi vegna 2007 eru þessi:
  1. Alcan á Íslandi 1.456.634.761 króna
  2. Grindavíkurkaupstaður 406.022.344 krónur
  3. Reykjanesbær  376.449.843 krónur
  4. Kópavogsbær 305.029.461 krónur
  5. Hafnarfjarðarkaupstaður 281.296.533 krónur
Í framhaldi af þessu er ánægjulegt að sjá að þú ert í hópi þeirra sem viðurkennir að virkjanir gefi arð.1 króna fyrir tonnið af vatni er mjög lítið ef satt er. Hver borgar hverjum 1 krónu?Nóg í bili.

Kristinn Daníelsson, 13.10.2010 kl. 20:14

9 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Síðan hvenær hefur Mbl.is verið áreiðanleg heimild?

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 14.10.2010 kl. 18:21

10 Smámynd: Kristinn Daníelsson

Alltaf jafn málefnaleg.

En ég er að gera mér grein fyrir því núna að allir eru pistlar þínir bara sprell hjá þér Jakobína. Með það í huga þá getur hver og einn metið húmorinn.

Góðar stundir

Kristinn Daníelsson, 14.10.2010 kl. 21:23

11 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

   

Helgi, ég endurtek að það eru bara kommúnistar sem líta til ríkisvaldsins með sömu lotningu og þú virðist gera. Bönkum á ekki að bjarga ef þeir verða gjaldþrota, en ef þeir eru þjóðnýttir þá ber ríkinu að bæta eigendum þeirra tjónið - samkvæmt Stjórnarskránni. Á Vesturlöndum hafa sumir bankar farið í gjaldþrot, en flestir ekki í núverandi kreppu. Þeim hefur þá annað hvort verið lánað fé, eða þeir þjóðnýttir.

 

Þú heldur áfram að fullyrða, að látið verði undan forsendulausum kröfum nýlenduveldanna um greiðslu Icesave. Ég fullyrði á móti, að það verði ekki gert. Hvor okkar hefur rétt fyrir sér, mun koma í ljós í fyllingu tímans, en til sönnunar því að þú ert ekki mikill spámaður um feril Icesave-málsins, birti ég færslu þína frá 14.11.2008. Þá varst þú æstur í að greiða Icesave-kröfurnar, en það hefur nú ekki skeð ennþá. Ég legg til að þú endurmetir núna stöðuna og hættir að stunda þann óþjóðholla málflutning sem þú hefur haft í frammi í tvö ár. 

 
14.11.2008 | 15:05

Tökum því, þett'er ágætis díll!

Eins og ég hef margoft sagt, þá er efnahagur landsins ónýtur. Krónan er dauð og menn skulu ekki blekkja sig; þetta verður einfaldlega ógeðslega skítt. Mér líst sjálfum afskaplega illa á IMF lán, vegna þess að IMF er viðbjóðsleg, gráðug og gjörsamlega siðlaus stofnun, en ég hef talað fyrir því að við þurfum þetta IMF lán vegna þess að við höfum enga kosti í stöðunni. Við höfum ekki mat nema fyrir helming þjóðarinnar, þannig að við stólum á erlend viðskipti fyrir jafnvel algerar lífsnauðsynjar, hvað þá líf sem er þess virði að lifa. Fólk þarf aðeins að fara að átta sig á því hversu alvarleg staðan er og mun vera, sama hvað gerist. Alveg sama hvað gerist munum við þurfa að horfast í augu við vöruskort, atvinnuleysi og verðbólgu meðfram lækkun launa, sem við erum reyndar þegar farin að kynnast. Með öðrum orðum erum við að ganga inn í efnahagslega martröð á borð við slíka sem Ísland hefur aldrei fyrr kynnst.640 milljarðar eru smáaurar í því samhengi. Við getum borgað þetta á núverandi gengi án þess að setja alla þjóðina í þrældóm margar kynslóðir fram í tímann, en þess má geta að efnahagsþrældómur er mjög raunverulegur möguleiki. Þá er ekkert hægt að gera á Íslandi nema að flytja burt af því, vilji menn ekki vinna fyrir erlend ríki til dauðadags og horfa upp á börn sín og barnabörn sín gera hið sama.Það er orðið algerlega augljóst að allir eru á móti okkur í þessari Icesave-deilu, og ég er farinn að hallast að því að við berum siðferðislega skyldu til að borga allavega hluta af þessu til baka, vegna þess að við áttum að hafa betra bankakerfi. Við stóðum okkur ekki nógu vel í því að storka yfirvöldum. Í það minnsta finnst mér að við eigum að sýna Hollandi skilning því þeir hafa ekkert gert okkur. Bretland beitti allavega hryðjuverkalögunum sem er gjörsamlega óverjandi, sérstaklega á þessum viðkvæma tímapunkti sem þeir gerðu það, en Holland hefur ekkert slíkt gert. Þar er bara fólk með sárt ennið eftir að hafa stritað allt sitt líf og lagt fyrir samviskusamlega, eingöngu til að láta óábyrga þegna Íslands síðan klúðra öllu með því að geta ekki drullast til að berjast markvisst gegn yfirvöldum. Hér hefur verið alltof mikið umburðarlyndi gagnvart yfirvöldum og þeim hefur verið leyft að loka eyrunum of oft, of lengi. Yfirvöld og bankarnir komust upp með þetta vegna þess að við, þegnarnir, höfum sýnt þeim alltof mikla linkind, við höfum verið of hlýðin og of jákvæð, of bjartsýn, of umburðarlynd, of róleg, of friðsöm, of skilningsrík og jafnvel einfaldlega of heimsk. Íslendingar þurfa að losa sig við þessa hugmynd um að yfirvöld viti betur en þjóðin hvað sé henni fyrir bestu. Það einfaldlega gengur ekki lengur að yfirvöld geti hunsað allt fjandans landið og komist upp með það. Við þurfum að verða róttækari og gera þetta fólk persónulega hrætt við almenning. Yfirvöld eru ekki húsbóndi okkar, við erum þeirra, og ef þau eiga erfitt með að skilja það, þá verðum við að koma þeim í skilning um það með öllum tiltækum ráðum. Og með öllum tiltækum ráðum á ég við nákvæmlega það, takið því eins og þið viljið. En ég vil ekki stríð.Ég vil lýðræði.

Loftur Altice Þorsteinsson, 16.10.2010 kl. 00:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband