Heilaþvottur og múgsefjun á fullum blasti

Icesavedeilan dregur fram skefjalausan fáránleika í málflutningi stjórnmálamanna og fjölmiðla.

Fáránleikinn upphófst með orðaleikjum sjálfstæðismanna um kjölfestufjárfesta. Sveittur Árni Matthiesen og innherjaður Baldur Guðlaugsson lögðust í víking til þess að koma skuldum Björgúlfanna á alþýðu landsins. Þögnin ríkti í stjórnarráðinu en almenningur þyrptist á Austurvöll.

Steingrímur j tók við fjármálaráðuneytinu og sendi átta karla og eina konu til Bretlands undir forystu aldraðs stúdents sem hefur aldrei þurft að sækja um starf. Stúdentinn snéri síðan með fylgdarliði með samning sem erlendir fræðimenn hafa fullyrt að hefði steypt fullveldi landsins og eytt efnahagslegum forsendum fyrir búsetu í landinu. 

Í marga mánuði börðust Steingrímur J Sigfússon og Svavar Gestsson fyrir því að fá stuðning við þennan samning. Hann var kallaður glæsilegur og fólki var hótað hryllingi ef það beygði sig ekki undir samninginn. Dómsdagsspár birtust daglega en engar þeirra hafa gengið eftir þrátt fyrir að samningnum hafi verið hafnað. 

Nú hefur Bjarni Ben gengið til liðs við þá sem vilja að skatttekjur ríkisins gangi til Breta og Hollendinga. Ég er þeirrar skoðunar að Bjarni Ben hafi í raun alltaf verið í þeim hópi og sá hópur með Bjarna. Huglausir stjórnmálamenn sem nenna ekki að standa í þessu þrasi lengur. Nú vilja þeir sem elska Breta og Hollendinga meira en íslensk ungbörn og gamalmenni eigna hinni svokölluðu náhirð andstöðuna við Icesave.

Andstaðan við Icesave er eign þeirra sem annt er um framtíð landsins. Hún á sér hljómgrunn meðal þeirra foreldra sem nú eru ævareiðir vegna þess að grunnskólinn er kominn undir hníf stórnvalda.

Í umræðunni er talað um betri samning, aðeins fimmtíu milljarða. Það myndi taka venjulegan háskólamenntaðan launamann 25 000 ár já tuttugu og fimmþúsund ár að greiða þessa skuld. Skuld sem ríkisstjórnin vill að skattgreiðendur greiði fyrir Björgólf Thor. 

Það fer einnig lítið fyrir því að bent sé á að þessi fjárhæð getur allt eins orðið 250 milljarðar ef spár ganga ekki eftir (sem þær gera sjaldnast eins og reynslan hefur sýnt) nú þá tekur það launamanninn hundrað tuttugu og fimmþúsund ár að greiða skuldir Björgólfs. 

Það vill líka gleymast í umræðunni að vextirnir á erlendum lánum eru 5.5% og því er fjármagnskostnaður vegna þessa óheyrilega dýr.

Alvarlegasti vandi vegna Icesave er í raun sú staðreynd að ekki er til gjaldeyrir fyrir þessum kröfum hvort sem Landsbankinn eða ríkissjóður á í hlut. 

Nú þegar hefur gjaldeyriseign launamanna í lífeyrisjóðunum verið misnotuð til þess að fármagna skuldir Landsbankans. 

Kjölfestufjárfestirinn Björgólfur Thor lifir áhyggjulausu lífi í London á kostnað ungbarna og gamalmenna á Íslandi.  Össur Skarphéðinsson og Katrín Júlíusdóttir vilja gera honum lífið enn bærilegra með því að virkja neðri hluta þjórsár til þess að hann geti reist gagnaver sem ráðherrarnir vilja að hann hafi í íslensku skattaskjóli. Kannski tekur það háskólamenntaðan launamann þá tíuþúsund ár að borga skattana fyrir gagnaver Björgólfs Thors. 

 


mbl.is Afstaða þingflokksins óskiljanleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Heyr, heyr...  Það á að hneppa börnin okkar og barnabörn í þrældóm fyrir Björgólf Thor.  Helvítis, fokking, fokk!!!

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 4.2.2011 kl. 01:53

2 Smámynd: Birgir Rúnar Sæmundsson

Þetta eru glæpamenn eins og frumkvöðlar Icesave.

Forvitnilegt væri að vita hvaða stjórnmálamenn Íslenskir fengu feitann skerf út úr Icesave þjófnaðinum ? Og einnig breskir og Hollenskir dólgar !

Þetta mál ber þess öll merki, moldviðrið og þvælan í kring um það.

Upp úr stendur að enginn aðal dólganna vill að málið fari fyrir dómstóla !

Hvers vegna ekki ?

Jú. dómarar eiga það til að heimta öll gögn málsins upp á borð !

Við það væru ýmsir sveittir og hræddir um orðspor sitt.

Birgir Rúnar Sæmundsson, 4.2.2011 kl. 02:17

3 identicon

Hjartanlega sammála þér. Hlustaði á Reyni Traustason á Bylgjunni í morgun og það var nú meiri froðan sem vall upp úr þeim manni. Menn á þinginu voru skyndilega orðnir stálheiðarlegir og farnir að snúa bökum saman. Bjarni vafningur var orðinn samkvæmur sjálfum sér og gott ef hann - Engeyingurinn - var ekki orðinn lítill hvutti í uppreisn.

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 4.2.2011 kl. 08:37

4 identicon

Reynir er greinilega ennþá skíthræddur við Björgólf og stóru karlana úti í bæ. Reyndu að fela þig í hattinum þínum Reynir.

http://www.amx.is/fuglahvisl/9807/

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 4.2.2011 kl. 09:21

5 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Þessi undanlátssemi BB í ICESAVE-málinu er alveg óþolandi. Vonandi eru þeir menn til að skipta um skoðun.

Kv., KPG

Kristján P. Gudmundsson, 4.2.2011 kl. 12:49

6 Smámynd: Benedikt Gunnar Ófeigsson

Farsinn hjá sjálfstæðismönnum hlýtur að fá tilnefniungu til edduverðlauna. Ætli þetta endi ekki með því að Bjarni verði slegin af og aftur komi komi fram á sviðið "leiðtoginn mikli".

Annars er þetta lítið mál. það fer þriðjungur eða svo af skattekjum landsins í vaxtakostnað nú þegar, svo að það nóg eftir. Á lansspítalanum er til dæmis heilmikil starfsemi enn í gangi.

Hvað ættli sé annars raunverulega á bak við Icesave leikritið. þetta væri virkilega spennandi og skemmtilegt ef það væri ekki svona mikið undir fyrir okkur hin.

Benedikt Gunnar Ófeigsson, 4.2.2011 kl. 12:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband