Stjórnar Vilhjálmur Egilsson Íslandi?

Ráðherrum er annt um að halda sætum sínum og þingmönnum er annt um að verma stóla sína. En spurningin er er það eingöngu launatékkinn sem laðar eða vilja þeir völd líka.

Ríkisstjórnin virðist láta auðveldlega kúgast af aðilum vinnumarkaðsins sem vilja hefta atvinnufrelsi og gera Ísland að landi leiguliðanna.

Ástandið í íslensku samfélagi minnir á svartar miðaldir þegar að handrukkarar furstanna riðu um héruð og tóku búpening og uppskeru af bændum.

Nú er verslað með launþega. Það er verslað með þá fyrir kvóta og skattgreiðslur þeirra eru orðnar af verslunarvöru í milliríkjasamskiptum við Breta og Hollendinga.

Í raun er verið að semja um að fækka þeim sem hafa aðgang að auðlindunum í hlutfalli við þá sem þyggja laun fyrir vinnu sína. Vinnuveitendur vilja öll völd. Völd yfir auðlindunum. Völd yfir fjármagninu og völd til þess að ráða örlögum landsmanna.

Þeir hafa sýnt að þeir fara illa með þessi völd. Það er fremur ömurlegt að horfa upp á ríkisstjórnina selja þessum aðilum völdin sem hún hefur þegið í gegnum umboð þjóðarinnar.

Ég sendi þingmönnum þennan texta og spurði þá hvort Vilhjálmur Egilsson stjórnaði Íslandi.

Ég hef fengið eftirfarandi svör:

Sjálfstæðisflokkur:

Þingmaður 1  Nei er það

Þingmaður 2   Já ég get svarað þessari spurningu. Svarið er nei.

Þingmaður 3   Ríkisstjórnin fer með framkvæmdarvaldið og getur ekki framselt það. 'Eg hef setið á Alþingi í Íslendinga í umboði þeirra sem hafa kosið mig og sinni verkefnum mínum af heiðarleika en verður annarra að meta störf mín þegar þar að kemur.

Hreyfing

Þingmaður 1   Ég er bara hjartanlega sammála þér Jakobína, þetta er ömurlegt. Takk fyrir endalaust baráttuþrek

Þingmaður 2   Áttu við hvort VE stjórni Íslandi eða hvort það sé launatékkinn eða völd sem haldi þingmönnum í sætum sínum?

SA og önnur hagsmunasamtök stjórna allt of miklu en þó mun minna en ég held að þau hafi gert á valdatíð Sjálfstæðismanna. Hvort það séu völd eða laun sem haldi þingmönnum í stólum sínum get ég bara svarað fyrir mig; hvorugt. Ég hafði betur upp úr mér fyrir mun minni vinnu sem sjálfstætt starfandi bókmenntafræðingur og upplifi ekki að ég hafi nein völd. Fyrir mér er þingmennskan þegnskylduvinna.

Samfylking

Þingmaður 1   Nei, hann gerir það ekki. En menn eins og hann, sem berjast fyri sérhagsmunum og ekki almannahagsmunum, hafa alltof mikil völd.

Þingmaður 2   Það er ekki útséð um það hversu miklu SAA munu fá framgengt í sinni kröfugerð – en víst er að þeir tala eins og sá sem valdið hefur, og telja sig augljóslega vera þess umkomna að segja stjórnvöldum fyrir verkum. Ég held að ástæðan fyrir því hversu augljóst þetta er nú um stundir sé sú, að í stjórnartíð sjálfstæðisflokksins þurftu þeir aldrei að byrsta sig. Þér réðu einfaldlega því sem þeir vildu ráða. Sá er munurinn.

Þingmaður 3   Nei, það má náttúrlega alls ekki vera þannig að Vilhjálmur Egilsson eða SA stjórni Íslandi.  Ég verð að játa að mér finnst bíræfni þeirra og frekjugangur oft fram úr hófi. En við verðum að standa gegn þeim – það ætla ég minnsta kosti að gera.

VG

Þingmaður 1   Sá ekkert spurningamerki en get tekið undir hugleiðingar þínar. Ég sendi þessum þingmanni ábendingu um að spurningin væri í fyrirsögninni og fékk þá þetta svar: Fór of hratt yfir. Já, hann er sannarlega einn af þeim tiltölulega fámenna hópi. 

Þingmaður 2   Nei, ég er alveg á gati og skil ekki einu sinni spurninguna.

Framsókn

Þingmaður 1   Ég átti svolítið erfitt með að greina spurningu í annars athyglisverðum hugleiðingum. Nema þó þá, hvort eingöngu sé það launatékkinn sem laði ráðherra og þingmenn að störfum sínum eða hvort völd geri það líka. Hér verður auðvitað hver að svara fyrir sig, en í mínu tilviki er það nú líklega einna helst löngun til þess að verða að liði og gera gagn sem laðar mig að þessu starfi. Ef ég geri ekki gagn, á ég ekkert erindi í þetta.
mbl.is Viðræður halda áfram í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Örn Jónsson

Já Jakobína ég er sammála þér það er eins og valdaklíkurnar hafi tvíeflst í viðleitni sinni að hrifsa hér meiri völd. Lýðræðið og allar málamyndanir til að gefa þjóðinni hlutdeild í auðlindum landsins eru hundsaðar. Ég tel samfélagið í mikilli hættu ef heldur sem horfir.

Verði LÍÚ úr að framfylgja til dæmis kvótakerfinu og fá síðan niðurfelldar þessar skuldir sem þeir eru búnir að setja atvinnu veginn í er endanlega búið að binda þessa þjóð í ánauð þessara manna. Hagsmunir í kringum Icesave eru lítilræði við þá hagsmuni sem við erum að missa ef kvótaerfinu verður haldið til streitu. 

Ólafur Örn Jónsson, 1.4.2011 kl. 13:11

2 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Kvótaeigendur flytja atvinnu í stórum stíl til útlanda. Atvinnuleysi á Íslandi væri ekki vandamál ef sérhagsmunaklíkurnar færi ekki með gríðarleg völd hér á landi.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 1.4.2011 kl. 13:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband