Hanna Birna lofaði 200 milljónum í golvöll...

...fyrir síðustu kosningar bara svo það sé á hreinu.

Hún famaði líka Óskar Bergson í samstarfi við framsóknarflokkinn sem hefur ásamt sjálfstæðisflokknum sett orkuveituna á hausinn. 

Vil samt fá skárri borgarstjóra. Einhvern sem hefur vit á málefnum borgarinnar.


mbl.is Tekist á um skólamál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgi Már Bjarnason

Ég veit nú ekki í hvaða óskhyggju þú lifir.....allt ofangreint er bull og týpískur málflutningur sem sæmir óvönduðu vinstra pakkinu.   Ert þú ein af þeim eða ?

Í fyrsta lagi var skuldasöfnun orkuveitunnar nánast öll í tíð R-listans þar sem stunduð voru þau mögnuðu bókhaldstrikk að skuldsetja fyrirtæki borgarinnar og halda A hluta borgarreiknings í horfi til að fela rekstraróráðsíu R-listans.  Alfreð Þorsteins á Orkuveitubygginguna og allt sem henni fylgir með húð og hári.  Í öðru lagi þá er Orkuveitan ekki nálægt því að vera á hausnum, það var Jón Gnarr og hans lið sem tókst að tala okkur í þessi vandræði.   Fyrirtæki í bullandi hagnaðarrekstri er ekki að fara á hausinn....þó auðvitað að það séu vandræði í endurfjármögnun lána eftir þessar gnarrísku yfirlýsingar.

  Varðandi kosningarloforðið var um að ræða fjárfestingu í einni vinsælustu íþrótt landsins og öllum til heilla.  Upphæðin sem þú nefndir þarna er kolröng sömuleiðis og tekjuhlutinn ekki nefndur.

Vera málefnaleg.   En sammála er ég þér varðandi borgarstjórann.... enda óska ég öllum þeim sem kusu þetta bull yfir okkur hjartanlega til hamingju með borgarstjóann þegar bommerturnar koma.    Það vatnar auðvitað undan þessu á næstu mánuðum og þetta verður leiðrétt í næstu kosningum.  Sem er vel.     

Helgi Már Bjarnason, 5.4.2011 kl. 22:33

2 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Vandræði í efndur fjármögnun lána heitir með örðurm orðum að vera á hausnum.

Ég efast ekki um að það sé hægt að finna betri borgarstjóra en Jón Gnarr en ég er eigi að síður sannfærð um að hann er betri kostur en Hanna Birna. Ef þau væru tvö í framboði myndi ég velja skárri kostinn, þ.e. Jón Gnarr.

Ég verð ekki búin að gleyma því í næstu kosningum að Hanna Birna seldi Magma HS orku og kem til með að minna aðra á það. 

Tími sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn var einn samfelldur hryllingur og um tíma voru fjórir á borgarstjóralaunum. 

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 6.4.2011 kl. 00:43

3 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Já fyrirgefðu þetta með golfvöllinn. Hún lofaði 230 milljónum í fínan golfvöll fyrir einhverja fína íhaldsmenn.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 6.4.2011 kl. 00:46

4 identicon

Voru þessar 230 millur í golfvöll ekki gamalt samfylkingarloforð sem meirihlutinn var einungis að efna? Meirihlutinn dró það allavega til baka um leið og hann sá hversu miklum mótmælum þessar áætlanir fengu ólíkt núverandi meirihluta sem virðist gera í því að ganga þvert á móti við allt það sem borgarbúar vilja.

Þórey Sigurðar (IP-tala skráð) 6.4.2011 kl. 08:39

5 Smámynd: Helgi Már Bjarnason

Ég bendi á grein Stefáns Svavarssonar, færasta endurskoðanda landsins máli mínu til stuðnings varðandi fjárhag OR.   Það klárar það mál svo þú þarft ekki að vera á meiri villigötum með það, hámenntuð konan.

Varðandi 4 borgastjóranna þá á Björn Ingi það fíaskó með húð og hári.   Fram að valdatíð R-listans var Reykjavík í tryggri hreinni meirihlutastjórn Sjálfstæðisflokkins í marga áratugi.  Veit ekki betur en að Reykjavík sé frábær borg.  Ekki gleyma uppgangsárunum þegar Davíð Oddson var borgarstjóri.  Ég skil ekki hvað þú hefur á móti Hönnu Birnu,  var vinsælasta borgarstjóraefnið fyrir síðustu kosningar þar sem hún hafði fært ró yfir borgarmálin og haldið vel utan um stjórn borgarinnar á ólgutímum.

Varðandi HS Orku málið, þá er ég ekki að skilja hvað er svona vont við erlent eignarhald og erlenda peninga sem fá hjólin til að snúast.  Það er ekki eins og þeir geti flutt orkulindirnar úr landi.... þær verða alltaf íslenskar.  Þetta er svona "allt erlent hlýtur að vera vont" og "ljótt að græða" vinstra hjal í þér. 

Góð viðbót við umræðuna Þórey. :)

Helgi Már Bjarnason, 6.4.2011 kl. 09:20

6 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Ég ber fulla virðingu fyrir Svavari en hvernig getur þú fullyrt að hann sé færasti endurskoðandi landsins. Hefur þú einhverjar mælingar á því sem þú getur stuðst við?

Ég hef það á móti Hönnu Birnu að hún seldi HS Orku til Magma. Ég hélt að það kæmi skýrt fram. 

það má líka benda á að almennar samgöngur í Reykjavík eru hrein hörmung en ég held að þar hafi allir borgarstjórar lagst á eitt að Steinunni Valdísi meðtalinni. 

Það hefur sýnt sig að erlendt eignarhald færir þjóðinni það eitt að arðurinn er færður úr landi. Þetta er hluti af gjaldeyrisvanda og skuldavanda þjóðarbúsins sem áhangendum ný-frjálshyggjunar virðist vera fyrirmunað að koma auga á.

Mér sýnist nú að núverandi ríkisstjórn sem þú myndir sennilega kalla vinstri sem mjög hrifin af "erlendu". Andófið gegn þessari hugmyndafræði að láta helst útlendinga græða á öllu hér og gera almenninga að leiguliðum kemur að mestu frá alþýðu þessa lands. Hægri og vinstir eru úrellt hugtök. 

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 6.4.2011 kl. 13:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband