HVÍTU lygarnar

Menn rembast nú um þessar mundir við að slétta út það vandamál sem þjóðin stendur frammi fyrir.

Málflutningur biskups var ótrúlega skammfeilinn þegar hann kallaði vandamálið velferðakreppu og gaf í skyn með því að nú væri þykjustunnikreppa og nú færu allir að lifa venjulegu lífi í stað lúxuslífs.

Talað er um að kaupmáttur minnki um 20%. Þetta er spádómur þeirra sem ekki gátu séð fyrir að hér yrði yfir höfuð kreppa. Þessari tölu er skellt fram eins og að þetta hafi sömu áhrif á alla en svo er alls ekki. Þeir sem missa vinnuna búa við miklu meiri kaupmáttarskerðingu á meðan kaupmáttur forsætisráðherrafrúarinnar gæti hugsanlega aukist eftir því sem hún fær forystu í fleiri nefndum.

Nokkuð hefur borið á því að málssvarar ríkisstjórnarinnar reyni að gera lítið úr óánægju almennings. Gert er lítið úr mætingu á mótmæli. Markmið mótmæla eru rangtúlkuð.

Mikið bar á því í upphafi kreppu að menn sem höfðu misst allt niður um sig ætluðu að fara að stýra hegðun og túlkun almennings á vandamálinu. Talað var í föðurlegum tón til þjóðarinnar. Þeir sem vöktu athygli á vandamálum voru uppnefndir, þeim skipað í flokk með öðrum sem líka voru uppnefndir. Fólki var ráðlagt að gleðjast yfir ótrúlegustu hlutum og talað var niður til þess.

Yfirvöld gera nú allt sem þeir geta til þess að leyna hversu illa er komið. Ríkiststjórnin er löngu hætt að stýra landinu með þjóðarhag í huga. Tilgangur þeirra er sérhagsmunagæsla. Þeir kunna því ekki að stjórna landinu því þeir hafa enga reynslu á því sviði. Þegar á hefur reynt undan farnar vikur klúðra þeir hvað eftir annað. Ég tek undir með erlendum prófessor sem heldur því fram að það væri hægt að finna hæfari einstaklinga til þess að stjórna landinu með því að velja af handahófi úr símaskránni.

Þjóðin er nú að uppgötva að landinu er stjórnað af vanhæfum einstaklingum og krafan um uppstokkun verður sífellt háværari.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Það sem er alvarlegast er að nú er verið að afskrifa skuldirnar á þóknanlegum mönnum og konum í flokkspólitískum skilningi eins og hjá Birnu bankastjóra Glitnis. MISTÖK heitir það, hefði hún verið eins ánægð með "mistökin" ef það hefði verið bullandi arður af þessu?

Þetta er bara eitt af fjölda svona dæma sem er verið að bralla bak við tjöldin og við látum það yfir okkur ganga!

Á meðan eru "bara Jón og bara Gunna" að fara á hausinn!

Eigum við svo bara að treysta þessu fólki?

Vilborg Traustadóttir, 3.11.2008 kl. 13:01

2 Smámynd: Rannveig H

Er ekki málið núna að fá neyðarstjórn fagaðila, fram að næstu kosningum hvenær sem þær verða. Mér finnst eins og við meigum engan tíma missa. Það er furðuleg afstaða biskups til þrenginga fólks,enda ekkert lagt til málana annað en fólk ætti að faðmast. Á sama tíma og við eigum að spara þá bætti hann við þremur embættum á biskupsstofu.

Rannveig H, 3.11.2008 kl. 13:05

3 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Já tvískinnungshátturinn er endalaus hjá þessu liði.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 3.11.2008 kl. 13:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband