Ástandið svart!

Þetta er á heimasíðu mannlífs:

"Fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðins, held hann heiti Paul Thompson, fundaði með fulltrúum stjórnmálaflokkanna í dag. Fulltrúinn sagði stöðu Íslendinga með því versta, ef ekki það versta, sem hann hefur séð. Og hefur hann þó áralanga reynslu af störfum meðal þjóða í fjárhagsvanda. Hann mun hafa sagt ótrúlegt að við ætlum að reka ríkissjóð með 150 milljarða króna halla. Hann sagði enga vilja lána okkur til að fjármagna hallann. Nú séum við með peninga frá Aþjóðagjaldeyrissjóðnum og helstu vinaþjóðum. Fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins mun hafa sagt að ekki væri mögulegt að halda að við getum fjármagnað umframkeyrsluna með ófengnu lánsfé. Niðurstaðan er þessi. Staða okkar er enn að versna. Á næstu vikum mun meiri vandi koma í ljós. Við erum að einangrast þar sem aðrir vilja ekki lána okkur peninga. Það mun láta nærri að við verðum að skera enn frekar niður. Þess vegna um 100 milljarðar. Átakatími verður strax eftir áramót."


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Hvað ætli honum hafi fundist um vaxtastigið hjá okkur?

Hólmfríður Bjarnadóttir, 18.12.2008 kl. 01:17

2 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Spurning kvaðan þessi krafa um hátt vaxtastig kemur.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 18.12.2008 kl. 01:18

3 identicon

Nú er þetta komið.

Nú vitum við hvað er að gerast og í hvers konar leðju við sitjum.

HJÁLP.

Lilja Skaftadottir (IP-tala skráð) 18.12.2008 kl. 14:10

4 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Sæl Lilja

 Ég var að lesa greinina þína á Smugunni. Flott grein. Já það virðist ekki vera bjart framundan en það er í fullu samræmi við þá tilfinningu sem ég hef haft lengi.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 18.12.2008 kl. 14:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband