Ríkisstjórnin velur fórnalömbin af kostgæfni

Í frétt Morgunblaðsins vekur Kristín Á Guðmundsdóttir athygli á fyrirætlun ríkisstjórnarinnar um að rukka meira af sjúklingum sem fyrst og fremst eru eldri borgarar. Barnafólk getur líka sveiflast til mikillar notkunar á heilbrigðisþjónustu þegar börn þjást af krónískri eyrnabólgu, astma eða langvarandi veikindum.  

Það eina sem getur firrt samfélagi hrikalegu ástandi er að auka jöfnuð. Það verður að rukka þá sem eru með ofurlaun um hátekjuskatt og koma á móts við þá sem verða verst settir.

Þegar atvinnulausir hafa unnið út umsóknarfrest, fengið 80% af launum í atvinnuleysisbætur í þrjá mánuði munu einstaklingar þurfa lifa á rúmlega 100 þúsund á mánuði sem setur þessu fólki mjög þröng kjör. Erfitt verður fyrir þessa einstaklinga að leita á náðir heilbrigðisþjónustunnar vegna kostnaðar. Það má ekki hrófla við hinum ríku og sterku í samfélaginu.

Ég hef skömm á því að ríkisstjórnin skuli frekar vilja horfa upp á mannlega eymd.


mbl.is Kastað 60 ár aftur í tímann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Jakobína. Þú veist að Ingibjörg Sólrún sagði hátekjuskattinn bara táknrænan. Það sem mér finnst táknrænt við aðgerðir ríkisstjórnarinnar er að allar álögur leggjast á þá sem minna mega sín. Þá sem minna mega sín, segi ég, og á þar jafnt við hátekjumanninn,sem lendir í slysi eða fær hjartaáfall og lágtekjumann, sem verður fyrir því sama. Að rukka fyrir neyðarhjálp er hneyksli og á ekki að þekkjast í íslensku samfélagi, sem hefur sem betur fer verið með samhjálp að leiðarljósi.

Haraldur Bjarnason, 18.12.2008 kl. 05:13

2 identicon

Það er með algerum eindæmum hvað þessi ríkisstjórn hefur skaðað okkur. Það er ekki séð fyrir endann á skaðseminni.

Mér finnst stundum að ég sé að hrópa út í loftið og enginn heyri eða kæri sig einfaldlega kollótta. Líklega er það gamla sagan. Allur almenningur mun ekki vakna fyrr en allt er farið, og lítið til að byggja með eftir.

Greppur Torfason (IP-tala skráð) 18.12.2008 kl. 08:01

3 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessuð Jakobína.

Þetta er fólk án æru.  Hrikalegt til þess að hugsa hvað margt efnilegt ungt fólk, sem átti framtíðina fyrir sér í stjórnmálum, er búið að gera í buxurnar við að verja þessa gjörninga og allar þær röngu ákvarðanir sem hafa verið teknar.

En mig langaði að vekja athygli á grein Ragnars Ögmundssonar í Morgunblaðinu í vikunni.  Ragnar færir þar sterk rök fyrir því að bóluhagnaðurinn hafi í raun verið sjálftaka frá þjóðinni (þarf ekki að rífast um í ljósi þess kostnaðar sem hefur fallið á þjóðina) og hann eigi að skattleggja sérstaklega.  Bóluhagnaður varð ekki til vegna "eðlilegrar" fjármunamyndunar og um hann eigi að gilda sérstakar skattareglur.  Sýnist að Ragnar sé að leggja til að hann verði að stærstu leiti gerður upptækur svo það komist á meira réttlæti í þjóðfélaginu.  Mjög athyglisvert innlegg og ekki er Ragnar sósíalisti svo hælbítarnir geta ekki glefsað í hann á  þeirri forsendu.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 18.12.2008 kl. 08:38

4 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Algerlega sammálaþér Jakobína

Hólmdís Hjartardóttir, 18.12.2008 kl. 10:19

5 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Takk Hólmdís

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 18.12.2008 kl. 12:30

6 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Haraldur þú kemur þarna að kjarna málsins. Þetta er spurning um sanngjarnt og heilbrigt þjóðfélag.

Kristinn fólk er mjög upptekið af smáatriðum og sér ekki heildarmyndina.

Ómar ég hef talað fyrir því líka hér í blogginu. Skatttakan byrjaði með hvótakerfinu en þá var viðurværið tekið af byggðarlögunum. Síðan voru bankarnir gefnir vinum sem notuðu þá til þess að hneppa fólk í skuldaánauð sem ekki hafði vaðið fyrir neðan sig og drógu þúsundir milljarða út úr bönkunum í skjóli aðstöðu sinnar. Þá var það einnig húnnæðislánakerfið er eitthvað var eftir þá var það kerfi notað til þess að að þurrvinda vasa almennings í vasann á byggingaraðilum og fasteignabröskurum.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 18.12.2008 kl. 14:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband