Er komið að erfðaprinsinum?

Fréttir á mbl herma að Björn Bjarnason láti nú af embætti dómsmálaráðherra eftir landsfund og images princefrændi hans Bjarni Ben muni erfa embætti dómsmálaráðherra.

Bjarni mun taka við öflugu konungsríki því skammtað hefur verið vel í fjárlögum til til embætta sem heyra undir ráðuneytið. Hann mun taka við voldugum her ríkislögreglustjóra sem frændi hans og fyrirrennari hefur eflt með hundruðum milljóna í stjórnartíð sinni.

Það kemur síðan í ljós hvort Bjarni hafi erft löggu- og njósnagenið sem gjarnan hefur verið heimfært upp á ættina.


mbl.is Fullyrt að Björn hætti eftir landsfund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Mér finnst nú Björn eiginlega sætari en þrátt fyrir apasvipinn er prinsinn nokkuð stílhreinn en það á eftir að koma í ljós hvort honum kippir í kynið. Hef miklar grunsemdir um að svo sé.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 10.1.2009 kl. 12:38

2 Smámynd: Björgvin R. Leifsson

Ójú, það getur versnað. Íhaldið hefur sérstakt lag á að koma á óvart þegar maður hélt að botninum væri náð.

Björgvin R. Leifsson, 10.1.2009 kl. 12:52

3 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Segið svo að það séu ekki kóngar á Íslandi. Og erfðaprinsar.

Rut Sumarliðadóttir, 10.1.2009 kl. 13:37

4 Smámynd: corvus corax

Við þurfum allt annað í íslensk stjórnmál en annan skíthæl af sömu ætt með þetta nafn.

corvus corax, 10.1.2009 kl. 15:21

5 Smámynd: Rúnar Sveinbjörnsson

Þetta er ekki frétt, þetta var var í raun ákveðið strax eftir síðustu kosningar. Þar af leiðir er þetta hálf hallærislegt.

Rúnar Sveinbjörnsson, 10.1.2009 kl. 17:42

6 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Það breytist ekkert þó hausinn sé högginn af þursinum..honum vex bara annar nákvæmlega eins. Þannig er sjálfstæðisflokkurinn. Einn kemur í annars stað en ekkert breytist því uppeldið er það sama. Einfalt.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 10.1.2009 kl. 20:44

7 Smámynd: Árni Gunnarsson

Tek undir með Katrínu Snæhólm. En hugsið ykkur niðurlæginguna sem við erum stödd í? Þegar við erum að ræða um þá stjórnmálamenn sem eiga að drýgja þjóðinni örlög til framtíðar þá neyðumst við til að hafa skoðanir á svona gripum! Mönnum sem ætti auðvitað að vera búið að afskrifa fyrir löngu ef hér væri virkt lýðræði.

Á nýbyrjuðu ári þarf þesi þjóð að berjast við afleiðingar fjöldagjaldþrota bæði fyrirtækja og einstaklinga. Bein útgjöld til félagslegra nauðþurfta munu fara svo margfalt fram úr fjárlögum að engan órar fyrir þeim upphæðum. En í fjárlögum okkar verður ekki séð að neinn skortur sé á fé ef horft er til verðlauna handa ónýtum stjórnmálaflokkum og flottræfilsháttar í varnarmálum og utanríkisþjónu.

Erum við ekki komin í flokk með Simbabve? Þar situr einvaldur og kemst upp með afneitun og gegnsæja lygi? 

Árni Gunnarsson, 11.1.2009 kl. 00:53

8 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Ja hérna. Flokkarnir hafa nú verið duglegir að skammta sér og sínum stöður í gegnum tíðina. Framsókn hefur nú ekki verið í neinu englahlutverki þar. Hins vegar hefur það verið gagnrýnt í allnokkurn tíma að Bjarni Benediktsson sé ekki kominn í ráðherrastól, réttilega. Ég hefði viljað sjá hann í stól fjármálaráðherra, því hann myndi standa sig vel í erfiðum hlutverkum. Mikið leiðtogaefni. Ber virðingu fyrir skoðunum annarra og tekur tillit til þeirra, þó menn séu ekki endilega í hans flokki. Það er áberandi að það er til ungt fólk í flestum flokkum, sem virðist nota fagmennsku fyrst og fremst, en er ekki í endalausum hanaslag, Barni er einn þeirra. Það er ekki að ástæðulausu að nafn Bjarna hefur komið upp aftur og aftur, sem einn af þeim fáu á þingi sem gætu leitt þessa þjóð upp úr því ástandi sem við erum í.

Sigurður Þorsteinsson, 11.1.2009 kl. 01:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband