Valdhafar á Íslandi harðlega gagnrýndir

Geir H Haarde forsætisráðherra og Ingibjörg Sólrún... "Carsten Valgreen, fyrrum hagfræðingur hjá Danske bank, gagnrýnir Seðlabankann og viðbrögð stjórnvalda við bankahruninu harðlega í grein sem birt er í Fréttablaðinu í dag. "

Carsten gagnrýnir vanhæfi og náin tengsl milli stofnana sem hann telur vera Hluta af þess sem skýri vanhæfa stjórnsýslu.

Hann leggur til að stjórnmálamenn séu ekki settir í stjórnunarstöðu hjá því opinbera. En í mbl segir einnig "hann segir þar m.a nauðsynlegt að auka sjálfstæði Seðlabankans og afnema verðtryggingu hér á landi"

Ég las grein Carstens í morgunblaðinu en hann telur ekki króna sé sá sökudólgur sem valdhafar vilja vera láta en bendir á að þegar valdhöfum var orðið ljós sú hætta sem stærð efnahagsreikninga bankanna stefndi þjóðinni í þá myndaðist einskonar hjarðhegðun meðal þeirra.

Viðvarandi pólitískar ráðningar, klíkutengs og spilling virðist hafa heft aðgang aðila að eigin dómgreind.


mbl.is Íslensk stjórnvöld harðlega gagnrýnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Veistu það, Jakobína, að mér finnst Carsten Valgreen vera að segja nákvæmlega það sama og við mótmælendur erum búin að margítreka frá bankahruninu um mánaðarmót september/október. Háværar úrtöluraddir og aðrar stórvirkari áróðursvélar ríkisstjórnarinnar vinna hörðum höndum við að drepa athygli okkar á dreif. Með endurskoðuðu fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar hentu ráðherrarnir stórkostlega niðurskurðarhnífa sína á lofti og reiða þá að velferðarkerfinu...

Mér finnst ég alltaf vera að segja það sama!" Við sem krefjumst breytinga erum öll að segja það sama! Það er furðulegt að öll þjóðin skuli ekki sjá það að okkur stendur beinlínis ógn af þessari ríkisstjórn. Þess vegna ættum við að taka okkur öll saman og ryðja henni út með handafli ef annað dugir ekki til.

Líf okkar liggur við!

Rakel Sigurgeirsdóttir, 11.1.2009 kl. 05:08

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Stjórnvöld hlusta hvorki á íslenska né erlenda sérfræðinga, af því það hentar þeim ekki, það er þeirra pólitík.

Gangi þér vel í dag Jakobína

Sigrún Jónsdóttir, 11.1.2009 kl. 11:24

3 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Horfði á þessa sömu frétt í gærkveldi. Það var ekki hlustað á nein við vörunarorð sama hvaðan þau komu.

P.s. hitti pabba þinn í gær, hef ekki séð hann í hundrað ár gamla manninn.

Rut Sumarliðadóttir, 11.1.2009 kl. 12:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband