2009-02-07
Komnir af stað með skítadreifarann
Stjórnmálamenn taka sér vald í orðræðunni. Frasaskothríð dynur á landsmönnum úr kastalavirkjum stjórnmálanna.
Sjálfsstæðisflokkur, samfylking og framsókn leiddu þjóðina í þá alvarlegu kreppu sem við öllum blasir. Þetta gerðu þessir aðilar í blindu eiginhagsmunapoti. Flokkarnir hafa sannað svo ekki verður um villst að þeir hafa ekki dómgreind og heilindi til þess að leiða þessa þjóð í gegn um erfitt tímabil.
En valdaklíkan ætlar ekki að sleppa krumlunum af þjóðinni. Hysterískir stjórnmálamenn reita af sér frasanna sem aldrei fyrr. Þessu má helst líkja við að keyrt sé yfir landsmenn með skítadreifara.
Algjört vantraust ríkir nú meðal þjóðarinnar á stjórnmálamönnum og það með réttu. Þingmenn eru algjörlega úr tengslum við þjóðina og skortir skilning til þess að leiða hana í gegn um erfiðleikana sem fram undan eru og þeir eru ábyrgir fyrir. Þeir geta ekki horft með skilningi í aðstæður því þeir eru í vörn og viðurkenna ekki afglöp sín.
Stjórnmálamenn eru fastir í frasaframleiðslunni. Á þingi situr fólk sem skortir lífsýn og áræðni til þess að takast á við breyttar aðstæður. Þau eru föst í gömlu leikreglunum.
Nú þegar völdin eru í húfi verða flokkarnir gjörsamlega óskammfeilnir í kenningasmíðum sem þeir drita yfir landsmenn. Þeir hafa 500 milljónir til að dreifa, úr vasa almennings, sem þeir nýta við þá iðju að heilaþvo þjóðina og ljúga að henni. Herferðin er hafin.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur í áratugi smíðað lygina ofan í almenning og lagt undir sig og spillt öllu valdakerfinu. Þeir hafa útrýmt mannréttindum og lýðræði með dyggri aðstoð valdastofnana í landinu. Þeir hafa hannað leikreglurnar í stjórnmálunum sem hinir flokkarnir beygja sig nú undir.
Stjórnmálin á Íslandi eru orðin afmarkaður menningarheimur sem þjónar bara sjálfum sér. Innan marka þessa heims fyrirfinnst ekki hugsun sem leifir fórnir fyrir almannahag.
Stal þessari flottu mynd frá Rakel vinkonu
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:19 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Tenglar
Heimsóknir
Greinar og viðtöl
- Jakobína rasende på Halvorsen
- Jeg er en av islendingene som den norske finansministeren Kristin Halvorsen mener skal ta konsekvensen av «vår egen gambling».
Icesave
- Fyrsti Icesave samningurinn
- Grein eftir Jón Daníelsson
- Grein á Íslensku eftir Jón Daníelsson
- Sjálfstæðisflokkurinn klúðrar Icesave
- Brot á tilskipun ESB að veita tryggingasjóð ríkisábyrgð
- Icesavelög
- Seinni lög um ríkisábyrgð
- Fyrri lög um ríkisábyrgð
- Icesave Nauðurgarsamningur I
- Nauðungarsamningurinn á Íslensku
- Settlement agreement
- Meira klúður sjálfstæðisflokks
- Uppkast sjálfstæðisflokksins að Icesavesamningi
Mínir tenglar
- Opinn borgarafundur
- Nei
- Smugan
- Nýir tímar
- Nýja Ísland
- Göngum til lýðræðis
- Íslendingar í ánauð
- Raddir fólksins
- Hver veit?
- VALD
- Ákall til þjóðarinnar
- Nafnlaus upplýsingagjöf
- Atvinnutækifæri
- Betra Ísland
- Eyjan
- Borgaraleg óhlýðni
- Leyniþjónusta götunnar
- Neyðarstjórn kvenna
- Ábyrgðarstöður: fjarvera kvenna
- stjórnarskrárnefnd
- Interpool corruption
- Bloomberg
- Íslendingar í ánauð
- Sigurbjörg Sigurgeirs
- Hagfræðiskólar
Skýrslur
- Bankahrunið
- Skýrsla Roberts Wade
- Skýrsla Danske Bank
- Mishkin skýrslan
- Skýrsla IMF
- Hagkerfi bíður skipbrot
- Aliber
- Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
- Franska skýrslan um innistæðutryggingar í ESB
- Doktorsritgerð Herdísar Drafnar
Lög og frumvörp
- Fjárlög
- Norska stjórnarskráin
- Frumvarp til stjórnskipunarlaga
- Ríkisfjárlagafrumvarp
- Frumvarp til fjárlaga 2010
Greinar
Landflótti/þjóðflótti
- Innlimun í Nýja Lýðveldið Ísland Rakið fyrir þá sem vilja vera þátttakendur í nýju samfélagi án þess að flýja land
ESB efni
Leyniskjöl
- The settlement agreement Leynisamningur milli ríkisstjórnar Íslands og breskra yfirvalda
- Útlán Kaupþings
Svikul Ríksisstjórn
Kreppu-greinar
Áróður
Góð blogg
Spurt er
- Við megum ekki gefast upp (þið verðið að sætta ykkur við að vera skuldaþrælar)
- Óyndisúrræði (ef að fólk stendur með sjálfu sér)
- Leiða ófarnað yfir okkur öll (skaða markmið alþjóðagjaldeyrissjóðsins)
- Fólk á að hugsa sinn gang (sýna þrælslund)
- Takmörk sett sem menn geta gert við þessar aðstæður (það segir Rozwadowski)
Efni
Færsluflokkar
Bloggvinir
- alla
- malacai
- andres08
- andrigeir
- volcanogirl
- arikuld
- gumson
- skarfur
- axelthor
- franseis
- ahi
- reykur
- hugdettan
- thjodarsalin
- gammon
- formosus
- baldher
- baldvinj
- creel
- kaffi
- veiran
- birgitta
- launafolk
- bjarnihardar
- bjarnimax
- brell
- gattin
- binnag
- ammadagny
- dagsol
- eurovision
- davpal
- diesel
- draumur
- egill
- egillrunar
- egsjalfur
- einarolafsson
- elinerna
- elismar
- estheranna
- evags
- eyglohardar
- jovinsson
- ea
- finni
- fhg
- geimveran
- gerdurpalma112
- gesturgudjonsson
- stjornarskrain
- gretarmar
- vglilja
- bofs
- hreinn23
- dramb
- duna54
- gudrunmagnea
- gudruntora
- zeriaph
- gunnaraxel
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- silfri
- sveinne
- hallibjarna
- veravakandi
- maeglika
- haugur
- haukurn
- heidistrand
- skessa
- heimssyn
- diva73
- helgatho
- hehau
- helgigunnars
- hedinnb
- hildurhelgas
- drum
- himmalingur
- gorgeir
- disdis
- holmdish
- don
- minos
- haddih
- hordurvald
- idda
- ingibjorgelsa
- imbalu
- veland
- isleifur
- jakobk
- jennystefania
- visaskvisa
- johannesthor
- islandsfengur
- jon-dan
- joninaottesen
- fiski
- jonl
- jon-o-vilhjalmsson
- jonerr
- jonsnae
- prakkarinn
- nonniblogg
- jonvalurjensson
- jonthorolafsson
- kaffistofuumraedan
- karlol
- katrinsnaeholm
- askja
- photo
- kolbrunh
- leifur
- kreppukallinn
- kristbjorggisla
- krist
- kristinm
- kristjan9
- larahanna
- liljaskaft
- ludvikjuliusson
- ludvikludviksson
- maggiraggi
- vistarband
- marinogn
- manisvans
- morgunbladid
- natan24
- nytt-lydveldi
- offari
- bylting-strax
- olimikka
- olii
- oliskula
- olafurjonsson
- olinathorv
- omarbjarki
- omarragnarsson
- huldumenn
- iceland
- rafng
- ragnar73
- rheidur
- raksig
- rannsoknarskyrslan
- rannveigh
- raudurvettvangur
- reynir
- rutlaskutla
- undirborginni
- runarsv
- runirokk
- samstada-thjodar
- fullvalda
- sigrunzanz
- amman
- duddi9
- sigurfang
- siggi-hrellir
- sij
- siggisig
- siggith
- sigurjonth
- stjornlagathing
- slembra
- scorpio
- lehamzdr
- summi
- susannasvava
- spurs
- savar
- tara
- theodorn
- ace
- nordurljos1
- tryggvigunnarhansen
- kreppuvaktin
- valdimarjohannesson
- varmarsamtokin
- vefritid
- vest1
- eggmann
- ippa
- vilhjalmurarnason
- villidenni
- vga
- thorsteinnhelgi
- valli57
- toti1940
- thordisb
- tbs
- thorhallurheimisson
- thj41
- thorsaari
- iceberg
- aevark
Des. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 28
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 23
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já og svo verða þessir flokkar bara í boði í vor.
Offari, 7.2.2009 kl. 20:40
Ef ekki breytingar nú, þá hvenær
hilmar jónsson, 7.2.2009 kl. 20:50
FLOKKURINN er samur við sig - þó talsvert margir fyrri kjósendur sjái nú gegn um aðferðir hans. Nóga hafa flokkseigendurnir peningana - eftir samfelld 18 árin við kjötkatlana og áratugi þar áður. - Þeir vita að nú þarf að keyra áróðurs-vélina á fullu - HVAÐ SEM ÞAÐ KOSTAR!
Hlédís, 7.2.2009 kl. 21:13
Þeir lífa í öðrum heimi en flest okkar.
Aðalfréttin í Ríkisútvarpinu kl. 18, var að sjálfstæðismenn ætlar að eyða minna í prófkjörsbaráttunna.
Að það var frétt, finnst mér vera frétt um fréttamatið hjá RUV.
Heidi Strand, 7.2.2009 kl. 21:54
Skýt þessu hér að, Jakobína, þó viti að þér sé efnið velkunnugt! Það er fjallar um sama mál og pistill þinn.
Undirrituð tekur þá áhættu að teljast sjálfmiðuð og vísar hér á eigin pistil frá því 27. jan sl. : http://disdis.blog.is/blog/dis/entry/786142/
Þar bendi ég á að áróðurs-kór Flokksins sé stax byrjaður - með því að kyrja um forsetann. Ábendingin reyndist rétt og er söngurinn orðinn hár og margradda!
Pistill þessi færði mér, samdægurs, "dulbúna hótun" um kynferðislegt ofbeldi sem dregið hefur nokkurn dilk á eftir sér, þó bloggvini þyki ekki enn öll kurl til grafar komin: http://thj41.blog.is/blog/thj41/entry/797435/
Hlédís, 7.2.2009 kl. 21:56
Ég er ekki að kaupa það að Samfylkingin sé í liði með Sjálfstæðisflokki og Framsókn í blindu eiginhagsmunapoti eða með jafan ábyrgð og þeir hvað varðar hunið. Aðdragandi þess er miklu miklu lengri en líftími Samf.
Sjálfstæðisflokkur og Framsókn hafa verið í þannig bandalagi áratugum saman og ekki verið að fela það neitt að ráði. Framsókn hafði landsbyggðina að mestu fyrir sig og Sjálfstæðisflokkurinn Höfuðborgarsvæðið.
Þetta fór svo smámsaman að skarast eftir því sem leið á og er trúlega orðið nokkur samflækt í dag.
Samfylkingin hefur það eitt gert af sér að fara í stjórn með Íhaldinu vorið 2007 og hefur verið við völd síðan.
Mér finnst raunar að þjóðin muni standa í þakkarskuld við Samfylkinguna þegar upp verður staðið. Hún er nú komin í flórinn stóra með VG og byrjuð að moka.
Framsókn reynir af veikum mætti að ná sé í prik með því að verja stjórnina falli. Það eitt og sér er samt ekki nægjanlegt til að ég sé tilbúin til að treysta þeim.
Sjálfstæðisflokkurinn þarf að fara í langt og gott frí, sem ég ætla bara rétt að vona að það takist, meðan verið er að taka til.
Hólmfríður Bjarnadóttir, 7.2.2009 kl. 22:27
Haldi (Nýja)-Framsókn áfram eins og gerði sl. viku, fær hún fleira en eitt prik hjá mér sem efaðist um stuðninginn fyrirfram.
Hlédís, 7.2.2009 kl. 22:32
Ákveðnir aðilar innan allra flokka að mínu mati. Svo kallaðir ESB ný-aðalskandídatar[:stjórnmálamenn] . Stór hluti almennings líkar ekki þær þjóðfélagsbreytingar sem hafa átt hér sér stað undanfarna ára tugi. Stjórnmálmenn hafa ekki upplýst þjóðina um að samningurinn um Evrópskt Efnahagsvæði [ESS] er ástæða breytinganna og nauðsynleg forsenda innlimunar inn í ESB einokunarbandalag fornra Evrópskra nýlenduvelda þar sem virðingarstiginn er löngu ákveðinn. Regluverkið: lög og reglur ESB gera ráð fyrir Seðlabanka, OMX kauphöll Íslandsog breyttu eignarhaldsfyrirkomulagi ríkisfyrirtækja svo þau geti fjármagnað sig á eigin spýtur með útgáfu verðskuldabréfa á ESB fjármálamörkuðu, svo gildir eining um sveitarstjórnir. Allt gefur þetta núlifandi stjórnmálamönnum tækifæri til að mata krókinn og skella skuldinni fram í tímann. Frjálsa flæðið er á öllu sviðum samkvæmt ESS. Við höfum því alltaf átt það á hættu að Seðlabankar Evrópu gætu kippt í spotta og þrengt að fjárhag landsins. Þegar þyrfti að flýta fyrir formlegri innlimun sem myndi hækka meðaltekjur Evrópusambandsins og koma okkar auðlindum undir þeirra fjárfesta yfirráð.
Í mínum augum eru Íslenskar stjórnaklíkur meira að minna forréttindasinnaðar ESB aðalkratastefnur frá vinstri: VG, Framsókn,Fylking, Frjálslyndir, Sjálfstæðiflokkur til hægri við það sem þær kalla miðju eða gullna meðalveg þeirra ofur jafnari. Sá flokkur sem þykkist öðrum þjóðhollari það er Fylking og þeir sem henni fylgja svo sem stórhluti eignarhaldsaflanna og af því er virðist Forsetinn. Enda skýrist það best að því hvernig hún forðast að ráðast að spilltum rótum vands [henni sjálfri m.a.] og beina athygli frá ESS samningum og afleiðingum hans og telja almenningi trú um að stofnum eins og [óþarfur] Seðlabanki og nafngreindir embættismenn hans séu ástæðan fyrir þeirri frelsissviptingu sem grunnur þjóðarinnar hefur orðið fyrir vegna ESS.
Lissabon samningurinn um að taka upp stjórnarskrá Evrópu 250 blaðsíður sem felur líka í sér markið gömlu nýlenduveldanna, gerir skránna rétt hærri þeim sem fyrir eru þannig að þjóðareignir verða Evrópu eignir handa ESB fjárfestum að spila með í Kauphöllunum. Þegar jöfnunarmarkið hennar hafa litið dagsins ljós verða allar launastéttir [án tillits til búsetu] án forréttinda með sömu heildarlaunatekjur. Ný-aðalinn fær svo hefðbundin aðalsæti í Brussels: Frakkar, Þjóðverjar, Englendinga, Austurríkismenn, Svíar, Ítalir, Hollendinga, Danir, Belgar, Spánverjar, Portúgalar,... Hefðirnar eru til staðar svo ekki er að sökum að spyrja hvað Íslensku Ný-aðals Kandídatarnir fá mikið af völdum eða sætum.
En hvað græðum við sem ekki tilheyrum ný-aðlinum, Íslensku þjóðinni. Ekkert við borgum brúsann. Missum þjóðréttindin og þurfum að lifa hér það sem eftir er á Evrópskum forræðis, skrifræðis, og ráðstjórnarhefðum. Samkvæmt Evrópskum forsemdum með heildarhagsmuni lágvörumarkaða hennar að leiðarljósi er Ísland ekki svæði sem borgar sig að byggja með þeim heildarlaunatekjum sér tíðakast núna. Íslendingar komust á kortið þegar þeir urðu fullvaldaríki sjálfstætt þjóðríki 1947 þökkum eldri kynslóðum. Innlimuð verðum við sömu mörlandarnir og áður í augum hinna Evrópulandanna. Það ber engin virðingu fyrir þeim sem geta ekki séð fyrir sér sjálfir og þeir verða éta það sem úti frýs hverju sinni. Aumingjar í Evrópu eru í samkeppni um bætur ná ESB aðlinum og hvernig haldið þið hann forgangsraði?
Júlíus Björnsson, 7.2.2009 kl. 23:38
hjá ESB aðinum
Júlíus Björnsson, 7.2.2009 kl. 23:39
Er ekki sjálfsstæðisflokkurinn búinn að skapa þessa stöðu?
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 8.2.2009 kl. 00:01
Góð mynd hjá vinkonu þinni!
Konráð Ragnarsson, 8.2.2009 kl. 00:32
Flokksmafíurnar eru búnar að því. Sjálfsstæðisflokkurinn hefur ákveðna sér stöðu flokksmenn hans er svo margir að Valhöll hýsir þá ekki alla í einu.
Júlíus Björnsson, 8.2.2009 kl. 00:39
Júlíus! Valhöll þarf ekki að rúma nema aðals- og stríðs-menn. Almúganum er smalað að meðaltali annað hvert ár í kosningaréttir - en gengur sjálfala og getur étið það sem úti frýs þess í milli. Stríðaldir gæðingar Valhallabúa eru brúkaðir til smölunar - haldið í húsi - ekki beitt á gaddinn.
Hlédís, 8.2.2009 kl. 09:06
Ég held að Valhöll hýsi varla alla vitleysuna sem fer þar fram
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 8.2.2009 kl. 17:23
Það eru ekki alls ekki allir Sjálfstæðismenn sáttir við stefnu flokksins undanfarin ár í þjóðarmálum. T.d. sem vilja ekki innlimast ESB og þeir sem trúa á litlu gulu hænuna og þeir sem trúa á stétt með stétt, þeir sem eru á móti frjálsu gagnrýnilausu flæði eða ESS. Það eru prófkjör í uppsiglingu. Í því felst styrkur Sjálfstæðisflokksins um fram aðra sem innhalda ekki þessar raddir og búa við algjöra miðstýringu í samræmi við stefnur sínar.
Júlíus Björnsson, 8.2.2009 kl. 20:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.