Þegar paranojan verður að veruleika

Nú erum við komin á áður óþekkt mið í ný-fasismanum

Auðkýfingur kemur til landsins og byrjar á því að kaupa upp fjölmiðla.

Tilkynnir á stöð tvö að þaggað verði niður í þeim sem eru með vangaveltur um samstarfs menn hans (að tekið verði til viðeigandi aðgerða gegn þeim) Hann ætti ekki að vera í vandræðum með það með alla milljarðanna.

Verst er að þessir auðmenn eru eins og fjandans terroristarnir með ítök út um allan heim og varla nokkurstaðar vært fyrir þeim. Meðul þeirra eru bara hættulegri.

Auðmaðurinn ætlar að kaupa ríkiseignir og leigja landsmönnum þær síðan.

Hann ætlar að kaupa orkuauðlindirnar. Segist ætla að selja orku til landsmanna en hann ætlar örugglega líka að græða á sölu til Evrópu. Össur Skarphéðins í góðum málum.

Skyldi hann kaupa aflestrarmæla hitveitunnar af Finni Ingólfsyni?

Búin að vera margar vikur í landinu. Er hann að semja við yfirvöld?

Hvaða andskotans ríkisstarfsmenn eru að taka þátt í þessu leynimakki?

Og ég spyr hvers vegna hafa landráðamenn ekki verið kærðir?

Það er mín pólitíska skoðun að auðlindirnar eigi að vera í eigu þjóðarinnar. Um það snýst baráttan núna.

Ég held að þessi maður geti allt eins verið í samstarfi við forseta Íslands og Bjarna Ármannsson eins og Jón Ásgeir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ekki líst mér á þennan Ástrala, svona fólk er hættulegt fyrir okkur á þessum óvissutímum.

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 25.2.2009 kl. 01:04

2 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Já þetta er skelfilegt

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 25.2.2009 kl. 01:06

3 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Spyr mig nákvæmlega þessara sömu spurninga og þú Jakobína... og reyndar fleiri spurninga með. Mér finnst það sem ég veit um ástandið í samfélaginu vera afar óhugnanlegt en því miður koma alltaf fleiri og fleiri atriði upp á yfirborðið, sumar bara eins og hreinlega af tilviljun, sem vekja mér enn meiri óhug.

Mér finnst það t.d. afar grunmsamlegt að þessi maður sé búinn að vera hérna í einhverjar vikur án þess að það vekji neina athygli en svo allt í einu þá er sama umfjöllunin um manninn og erindi hans á báðum sjónvarpsstöðvum sama kvöldið???

Rakel Sigurgeirsdóttir, 25.2.2009 kl. 01:36

4 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Já það er verið að kýla þessu inn. Og heyrði þú hótanir hans. Almenningur á að halda kjafti.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 25.2.2009 kl. 01:42

5 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Ég gerði það svo sannarlega! Athyglisvert hversu mikið rými það fékk í fréttatíma Stöðvar 2 án þess að það væri neitt spurt út í það frekar...

Rakel Sigurgeirsdóttir, 25.2.2009 kl. 01:45

6 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Við erum þá loks í góðum höndum. En ég spyr eins og þú Jakobína: hvers vegna er ekki búið að handtaka landráðamennina???

Arinbjörn Kúld, 25.2.2009 kl. 02:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband