Hvaða ismi er þetta?

Spurt hefur verið hvað er frjálshyggja og hvað er ný-frjálshyggja. Frjálshyggjumenn telja margir hverjir að hinir séu á móti markaðsbúskap. Ég hef aldrei hitt neinn sem er á móti markaðsbúskap hversu langt til vinstri eða í átt að félagshyggju hann telur sig vera.

Viðskipti eru óhjákvæmileg í nútímasamfélagi og það er almenn sátt um að viðskipti skuli fara fram á frjálsum markaði. Margir þeir sem telja sig til frjálshyggjumanna trúa því að hinir vilji setja höft á viðskipti, banna þau eða eitthvað slíkt. Sú villutrú hefur verið ríkjandi að skattar lækki ef við stjórnvölinn eru aðilar sem aðhyllast frjálshyggju.

Á Íslandi hefur þróast stjórnarfar í átt að ný-fasisma. Ég vil hér gera grein fyrir því hvað það er í íslensku stjórnafari sem réttlætir þessa fullyrðingu mína.

  1. Samsuða stjórnmála og viðskiptahagsmuna
  2. Einokun og samráð ráðandi í viðskiptalífi
  3. Samþjöppun valds
  4. Leynd hvílir yfir aðgerðum, ákvörðunum eða samningum valdhafanna
  5. Fjölmiðlar komnir í eigu auðvalds eða undir valdi valdhafanna
  6. Fjölmiðlar notaðir markvisst til þess að blekkja almenning og rangtúlka stöðuna í samfélaginu
  7. Þöggun, hræðsluáróður og andlegt ofbeldi verður hluti menningar
  8. Markvisst unnið gegn mannréttindum í dómskerfinu
  9. Meiri hluti almennings skattpíndur og skattalögin hönnuð í þágu hinna ríku
  10. Almannafé notað í þágu valdhafanna, ættingja þeirra og góðvina
  11. Stofnanir landsins standa vörð um valdakerfið
  12. Valdhafar vernda glæpamenn
  13. Gengdarlaust er gengið á höfuðstól náttúrunnar í þágu auðvaldsins en af litlu tilliti við þá sem eiga að taka við landinu
  14. Mismunun eykst kerfisbundið í samfélaginu og sá hópur sem líður skort stækkar sífellt
  15. Markvisst dregið úr almennri velferð en fámennur hópur lifir í allsnægtum
  16. Gengdarlaus þjófnaður á eigum hins opinbera og auðlindum þjóðarinnar

Samfélagið ber þess skýr merki hvernig það stjórnarfar sem ég greini hér að ofan hefur sundrað innviðum þess. Ísland var velferðarríki en er það ekki lengur.

Margir hafa valið að rugga ekki bátnum og þagað yfir ástandinu. Flestir hafa ekki gert sér grein fyrir þróuninni sem hefur átt sér stað vegna stöðugs áróðurs sem hefur þann tilgang að draga hulu yfir þessa þróun.

Menn gleymdu sér í græðginni og nú eru þeir uppteknir í algleymi valdabaráttunnar

Framundan er hjá valda- og auðmannaklíkunni að hrekja almenning úr landi og síðan ætla þeir að sitja hér að auðlindunum. Þeir slást nú um ránsfenginn, vatnið, orkan, landið og miðin skulu verða þeirra hvað sem það kostar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vilja ekki flestir landmenn lifa í réttlátu og góðu samfélagi ?.

Það er erfitt að sjá að þau atriði sem þú telur upp hér að ofan þjóni því.

Sem áhugamaður um  neytendamál leit ég á daginn á bensínverð til að glöggva mig á stöðunni í dag. 

Nú sem aldrey fyrr væri gott fyrir neytendur að hafa virka samkeppni.  Hér er niðurstaðan. Hún styður fullyrðingu þína númer 2.

Svo má fylgjast með bensínverði einstakra bensínsala á verði á vef NS. Tek þó fram að það er óspennandi lestur, því þeir eru flestir með sama verðið.

Hákon Jóhannesson (IP-tala skráð) 25.2.2009 kl. 14:17

2 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Það er einmitt kjarni málsins Hákon. Almenningur vill ekki lifa í vondu samfélagi. Til þess að breyta þessari þróun þarf tvennt að koma til.

Almenningur þarf að átta sig á þessari þróun

Almenningur þarf að bregðast við henni með samstöðu og hafna þessum öflum.

Erfitt er um vik því þetta þrífst í skjóli blekkinga.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 25.2.2009 kl. 14:34

3 identicon

öggun, hræðsluáróður og andlegt ofbeldi verður hluti menningar"

Hef rætt við marga sem eru greinilega hræddir við að mæta á Austurvöll.

Ótrúlegt en satt.

Enda er allt krökkt þar af ljósmyndurum og myndbandstökumönnum og það eru ekki allir sem vilja fá af sér mynd á mótmælafundi.  Sumir ljósmyndaranna vilja ekki láta mynda sig heldur 

Reyndar finst mér þöggunni alvarlegust því þar er verið að vega að grundvallaratriðum s.s. málfrelsi og tjáningarfrelsi.  En þöggunin þrífst í þeim sjúka jarðvegi sem hér er.

Hér verður breyting að eiga sér stað.

Hákon Jóhannesson (IP-tala skráð) 25.2.2009 kl. 15:01

4 identicon

Frábær pistill.

Sveinn hinn Ungi (IP-tala skráð) 25.2.2009 kl. 16:05

5 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Þetta er með betri greiningum sem ég hef séð á þróuninni og ástandinu eins og það er. Þessum pistli þarftu að halda til haga. Við hin megum ekki gleyma.

Arinbjörn Kúld, 25.2.2009 kl. 18:19

6 Smámynd: Ómar Geirsson

Takk fyrir Jakobína.

Þú ert að mörgu leyti að lýsa því sem átti sér stað í Mexico á síðustu öld undir stjórn flokksins.

En við vorum sátt við þetta meðal annars vegna þeirrar blekkingar sem þú lýsti fyrst.  Og svo má benda á kaldhæðnina í þessum meinta þjófnaði frjálshyggjunnar að á Bretlandi á 19. öld þá voru íhaldsmenn helstu andstæðingar óheftrar frjálshyggju og mannvonsku hennar.  Í dag trúa margir íhaldsdrengir því að þú þurfir að vera frjálshyggjumaður  til að aðhyllast frjáls markaðsviðskipti.  Þess vegna lenda þeir svo oft í að verja siðleysið.  Þeir halda að það sé óhjákvæmilegur fylgifiskur markaðsviðskipta.  En svo er ekki.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 25.2.2009 kl. 18:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband