Já við erum skítblönk

Það þýðir ekkert að loka augunum fyrir því að efnahagsástandið á Íslandi kallar á bæði hagræðingu og harkalegan niðurskurð í heilbrigðiskerfinu. Langstærstur hluti kostnaðar í heilbrigðiskerfinu er kostnaður vegna launa. Hvað þýðir hagræðing (sem óneitanlega hljómar betur en niðurskurður). Jú hagræðing í því tilfelli sem talað er um hér þýðir að draga á úr kosnaði en ekki ná fram skilvirkari þjónustu í sjálfu sér þótt hagræðingin feli í sér aukna skilvirkni.

Hagræðingu er hægt að ná fram með ýmsu móti, t.d. sameiningu, tilfærslu á þjónustu, breyttu skipulagi eða breyttu þjónustustigi. Sparnaðurinn næst þó ekki fram nema að dregið sé úr launakostnaði. Þetta verða fagstéttir innan heilbrigðisgeirans að horfast í augu við og skapa umræðu innan sinna hópa um það hvernig þeir vilji að þessi byrði dreifist. Valkostirnir eru í meginatriðum tveir:

Annars vegar uppsagnir og það bitnar bæði á afmörkuðum hóp starfsmanna og sjúklingum en jafnvel líka þeim sem eftir sitja í auknu vinnuálagi

Hins vegar að fagstéttir taki á sig launaskerðingar en með því dreifist byrðin meðal þeirra og sjúklingar finna minna fyrir breytingum.

Ef fyrri leiðin er valin mun hún á lengri tíma leiða til launahjöðnunar meðal fagstétta vegna minnkaðs framboðs á atvinnu. Það er því ljóst að enginn góður kostur er í stöðunni en mikilvægt er að sátt ríki um hvaða leið er farin og að leiðin sé valin í samráði við fagstéttir

 


mbl.is Stutt á milli hagræðingar og niðurskurðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessuð Jakobína.

Ég man að ég skrifaði  um þetta á Silfrinu í haust en með litlum undirtektum.  Ég held að kjarnin sé sá sem þú segir  að fagstéttarnar þurfi að ræða þetta sín á milli.  Hér er vandinn.  Þetta er það sem við þurfum að skera niður.  Hvað viljið þið gera?  Og þær munu koma með tillögur.  Það er aðeins valdboð af ofan sem mun mæta mikilli andstöðu.

Takk fyrir góðan pistil

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 5.3.2009 kl. 18:03

2 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Takk fyrir Ómar. Það var of snemmt að koma með hugmyndir í haust. Fólk var ekki móttækilegt vegna þess að það var ekki búin að átta sig á stöðunni. Ég trúi því að skilningur á aðstæðum muni auðvelda breytingar. Annars kemur kergja í fólk.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 6.3.2009 kl. 00:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband