Mótmælendur beittu ekki ofbeldi

Lögreglan lýsti því strax yfir að þeir sem að voru ofbeldisfullir í mótmælum hefðu ekki verið mótmælendur heldur góðvinir lögreglunnar.

Það er ekki samboðið þingmanni þótt óbreyttur sé að ásaka vinstri græna um að hafa skipulagt ofbeldisfull mótmæli því engin slík voru skipulögð hvorki af vinstri grænum né heldur mótmælendum.

Það er einnig lágkúrulegt að vera að stela mótmælunum frá almenningi og eigna þau vinstri grænum.

Almenningur er fullfær um að skipuleggja sín mótmæli sjálfur og taka þátt í þeim. Tilefnin hafa verið æði mörg og sum þeirra í boði Sturlu Böðvarssonar.


mbl.is Deildu hart í þingsal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Ég trúi ekki að VG hafi skipulagt árásir á lögregluna í þessum mótmælum.

Hilmar Gunnlaugsson, 5.3.2009 kl. 19:07

2 identicon

Þetta er svo þreytandi umræða og ég skil ekki afhverju er verið að eyða tíma í þetta á þingi?

Hinsvegar finnst mér ömurlegt að sjá þessa könnun sem var birt núna áðan.  29% sem styðja xD... hvað er að? 

Mér finnst líka ótrúlegt að 95% styðji fjórflokkana....

Treystir fólk virkilega þessum flokkum fyrir því sem þarf að gera?

Yfir og út

Unnsteinn Jóhannsson (IP-tala skráð) 5.3.2009 kl. 19:16

3 identicon

Er Hallgrímur Helgason gódvinur lögreglunnar? Er Íslandstrúbadissan thad? Var ekki fólk ad rydjast inn á lögreglustödina med valdi og kasta skyri í lögregluna. Ég sem bý erlendis hef aldrei skammast mín eins mikid fyrir land og thjód eins og thegar myndir frá mótmaelunum voru sýndar hér í sjónvarpi -  frá morgni til kvölds thegar verst var.

Vissulega sýna fjölmidlar gjarnan thad versta en bara hálfa hefdi verid nóg!

S.H. (IP-tala skráð) 5.3.2009 kl. 19:53

4 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

S.H. Ég veit ekki til þess að þessir menn sem þú nefnir hafi beitt ofbeldi og mér finnst vægast sagt ósmekklegt og heigulslegt af þér að ásaka þá í skjóli nafnleyndar. Sem Íslendingu skammast ég mín fyrir þetta framferði þitt.

Ég er stolt af mótmælendum sem tókst að fella spillta ríkisstjórn. Hefði þó viljað sjá alla ráðherra samfylkingar taka sér frí.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 5.3.2009 kl. 20:19

5 identicon

Heyrdu!

Verknadurinn er sá sami hjá thessum einstaklingum hvert svo sem nafn mitt er!

HH sást rádast á bíl forsaetisrádherra og berja í rúdur bílsins. Thad kalla ég ofbeldi.

En ólíkt höfumst vid ad: Thú ert stolt af thessu fólki en ég skammast mín :)

S.H. (IP-tala skráð) 5.3.2009 kl. 20:45

6 Smámynd: Ævar Rafn Kjartansson

Þetta var aum grein frá aumu möppudýri sem hefur það helst sér til frægðar unnið að vera á þingi. Verk hans skrifa enga sögu svo ég viti.

Ævar Rafn Kjartansson, 5.3.2009 kl. 21:00

7 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Sturla er ekki af þessum heimi.

Arinbjörn Kúld, 5.3.2009 kl. 21:03

8 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

ja, hérna hér, þetta verða líklega einu orðin sem frá Stulu sem nokkur maður maður man eftir!

Rut Sumarliðadóttir, 5.3.2009 kl. 21:11

9 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Ég segi bara margur heldur mig sig! Þessar ásakanir og málfutningur Sturlu er svo svívirðilega lágkúrulegur að maður veltir óneitanlega fyrir sér hvað liggur honum að baki?? Hvernig dettur heilbrigðu fólki í hug að einhver stjórnmálaflokkur sé með alla þá sem tóku þátt í mótmælunum á sínum snærum og mati þá eins og viljalaus verkfæri til ofbeldisverka??? Er það reynsla Sturlu af þeim styðja hann og hans flokk að það sé hægt að skipa þeim til hvaða verka sem er?? Jafnvel ofbeldisverka???

Ég er svo rasandi bit á því að nokkrum detti í hug að birta álíka hugmyndir og Sturla opinbera í skrifum sínum og inni á þingi að mig brestur eiginlega orð til að lýsa hneykslun minni. Hvernig dettur honum líka í hug að taka upp þessa kjaftæði um að mótmælendur hafi beitt lögregluna ofbeldi? Er ekki fyrir löngu búið að leiðrétta það og það m.a.s. af lögreglunni sjálfri. Þrífst Sturla á órökstuddum kjaftasögum? Hvers vegna gerir þann það? Hvaða hag hefur hann af því?

Er það von þó maður spyrji sig þar sem þetta er svo rakalaust kjaftæði að maður hlýtur að spyrja sig í hvaða tilgangi maðurinn tekur það upp á þeim vettvangi sem hann hefur gert??

Rakel Sigurgeirsdóttir, 5.3.2009 kl. 21:18

10 identicon

Ég vona að flokkssystkini Sturlu taki upp þessa framkomu eftir honum - það er vísasta leiðin til að skoðanakönnun frá því í dag verði ekki að veruleika. Alltaf best þegar flokkar útrýma sér sjálfir.

Haldi Geir áfram að vera geðvondur og sjá ýmsa vankanta á því að hleypa lýðræðinu að og Sturla að agnúast út í sjálfsprottna lýðræðishreyfingu þá er sigurinn unnin - Sjálfstæðisflokkurinn minnkar og minnkar og minnkar og minnkar og hverfur síðan. Til hamingju!

Helga (IP-tala skráð) 5.3.2009 kl. 21:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband