Dómgreindarskortur

Það lítur út fyrir að stór hluti þjóðarinnar hafi ekki sérlega sterka dómgreind.

Sjálfstæðisflokkur hefur brotið niður velferðarríkið á Íslandi hægt og bítandi í þau átján ár sem þeir höfðu tækifæri til þess og til eru þeir sem vilja leifa þeim að halda því áfram.

Þetta er mér hálfgerð ráðgáta. Annars hitti ég mann í gær sem spítti þegar hann af mikilli áfergju reyndi að halda því fram að yfirvöld bæru enga ábyrgð á hruninu.

Sem betur fer er stór hluti þjóðarinnar skynsamur og áttar sig á því að þeir glæpir sem voru framdir hér voru framdir í því skjóli sem valdhafarnir höfðu skapað. Sjálfstæðisflokkur og framsókn bera mesta ábyrgð en samfylking ber einnig mikla ábyrgð.


mbl.is Sjálfstæðisflokkur með mest fylgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Ef ég segði eitthvað slíkt um vinstri menn fengi ég aldeilis fyrir ferðina.

Yrði kallaður "fasistasvín" eða eitthvað álíka!

Þið eruð svo skemmtilega ósamkvæm ykkur sjálfum

Guðbjörn Guðbjörnsson, 5.3.2009 kl. 23:14

2 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Nei, nei sagan stendur nefnilega með okkur Guðbjörn.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 5.3.2009 kl. 23:20

3 Smámynd: TARA

Sjálfstæðismenn hafa engan einkarétt á því að vera ósamkvæmir sjálfum sér....en þeir nýta sér það manna mest.

TARA, 5.3.2009 kl. 23:44

4 Smámynd: Þórður Björn Sigurðsson

http://tbs.blog.is/blog/tbs/#entry-821001

Þórður Björn Sigurðsson, 5.3.2009 kl. 23:56

5 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Mér verður bara flökurt. Las blogg þessa Guðbjörns - ég held ég hafi ekki fleiri orð um það.

Arinbjörn Kúld, 6.3.2009 kl. 02:28

6 identicon

Sjálfstæðisflokkurinn er sértrúarsöfnuður spilltra veruleikafirrtra landráðamanna sem eru búnir að gera Ísland gjaldþrota.
Að Sjálfstæðisflokkurinn skuli nú bjóða fram til Alþingiskosninga má líkja við að nasistaflokkurinn með Göring í fararbroddi hefði verið í framboði til þýska  ríkisþingsins eftir stríðið.

Það ætti að banna Sjálfstæðisflokkinn með lögum eins og gert var með nasistaflokkinn i Þýskalandi.

 Það er móðgun við Íslensku þjóðina að þessi landráðaflokkur sé vaðandi um á skítugum skónum inn á virðulegu löggjafarþingi Íslenska lýðveldisins.

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/03/05/hrunin_frjalshyggjutilraun/
http://www.icenews.is/index.php/2008/10/13/richard-portes-analyses-the-shocking-errors-of-icelands-meltdown/

Jón (IP-tala skráð) 6.3.2009 kl. 02:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband