Vinnur hæstiréttur gegn mannréttindum?

Ásgeir H Ingólfsson skrifar grein undir yfirskriftinni "þöggun hæstaréttar" í Smugunni.

Þau Árni Kolbeinsson, Ingibjörg Benediktsdóttir og Ólafur Börkur Þorvaldsson Hæstaréttardómarar gerðu sig sek um aðför að tjáningarfrelsi blaðamanna sem og annarra þegna þessa lands nú í upphafi mánaðarins. Þau gerðu sig einnig sek um aðför að frelsi fjölmiðla landsins – og það er satt að segja synd hve mjóróma við fjölmiðlamenn höfum verið í að mótmæla þessum dómi, dómi sem svo sannarlega verðskuldar að við hópumst upp að Hæstarétti með búsáhöld og eldfæri.

Umrædd aðför er dómur sem lesa má hér. Þar er blaðamanni Vikunnar, Björk Eiðsdóttur, gert að greiða Ásgeiri Davíðs syni, eiganda Goldfinger, alls 900 þúsund krónur vegna ummæla sem viðmælandi hennar hafði um Ásgeir og starfsemi hans í viðtali. Hvort viðmælandinn, Lovísa Sigmundsdóttir, sagði þar satt frá eður ei um Ásgeir er ekki aðalatriði málsins (og sannleiksgildi orða hennar hefur hvorki verið sannað né afsannað). Aðalatriði málsins er að þarna er blaðamaður gerður ábyrgur fyrir orðum Lovísu. Þrátt fyrir að í dómnum standi:

„Við samanburð á handriti af viðtalinu og hljóðupptöku af því annars vegar og hins vegar umræddri blaðagrein og millifyrirsögnum er ljóst að ekki er orðrétt haft eftir viðmælanda. Jafnframt kemur þó glögglega fram að stefnda Björk hafði í greininni í meginatriðum efnislega rétt eftir viðmælanda sínum, sem síðar staðfesti eins og fram er komið að þar væri rétt farið með eftir henni.“


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Þetta er einn af góðkunningju sjálgræðgis, hljóta að vera stoltir að þyggja af svona manni sem hefur tekjur sínar af sölu á kvenlíkömum, auðvitað bara með dansi! En þessi dómur er til skammar, blaðamaðurinn er að segja satt og rétt frá því sem viðmælandi hennar heldur fram. Sammála lítið verið talað um þetta mál.

Rut Sumarliðadóttir, 24.3.2009 kl. 17:52

2 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Já bæði þetta mál og tilhneygingu hæstaréttar til þess að dæma gegn mannréttindum.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 24.3.2009 kl. 17:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband