Mikið fjandi er ég stolt

Mér gjörsamlega valdalausri konunni hefur tekist að ögra sjálfstæðisflokknum svo að þeir hafa séð sig knúna til þess að skrifa um mig heilan pistil af skítkasti á AMX.

Segið svo að tjáningafrelsið sé ekki vopn í baráttunni við kúgarana


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Ég er ekkert smáforvitin Þú verður að vísa mér á þetta því ég gafst upp á leitinni af pistlinum

Rakel Sigurgeirsdóttir, 30.3.2009 kl. 23:47

2 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Þeim leiðist ekki að snúa út úr en það er greinilegt að þú hefur vakið athygli þeirra

Rakel Sigurgeirsdóttir, 31.3.2009 kl. 00:03

3 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Já en það er hálf hallærislegt þetta með að "það sé vitnað meir í aðra" eins og veffjölmiðlar séu ekki alveg sjálfbjarga án minnar aðstoðar

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 31.3.2009 kl. 00:07

4 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessuð Jakobína.

Áttu tengil inná heiðursgrein þína hjá Óla Kára.  Reyndi að finna hana í dag hjá AMX en fann hana ekki.

En skrif þín hafa gildi en það er alltaf gott að fá staðfestingu á því.

Kveðja, Ómar.

Ómar Geirsson, 31.3.2009 kl. 00:13

5 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Pistillinn er hallærislegur frá upphafi til enda! Móðgaður krakki að reyna að móðga á móti með einhverju fuðri og puðri um ekki neitt. Svona stefnulaust og innihaldslaust jamlijaml.

Rakel Sigurgeirsdóttir, 31.3.2009 kl. 00:16

6 Smámynd: Konráð Ragnarsson

http://www.amx.is/fuglahvisl/5592/ held að greinin sé á þessari slóða.

Kv

Konráð

Konráð Ragnarsson, 31.3.2009 kl. 00:48

7 Smámynd: Andri Geir Arinbjarnarson

Jakobína, Ég lít á þessi skrif þarna á amx sem gæðastimpil fyrir þig.  Þú ert að ná til fólksins.  Tókstu eftir að það er byrjað að fetta fingur út í menntun og skóla.  Ég hef fengið smá pillu á svipaðri nótu en undir nafni.  Ætli höfundurinn heiti nokkuð Hannes?

Andri Geir Arinbjarnarson, 31.3.2009 kl. 08:49

8 Smámynd: Ævar Rafn Kjartansson

Synd með amx vefinn. Hann byrjaði vel en þegar hann er skoðaður núna virkar hann bara eins og mykjudreifari fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Greinilega á að gera okkur öll sem fylgjum ekki FLOKKNUM að vinstrigrænum skatthækkandi ofbeldisfullum mótmælalýð. Ég segi bara: Verði þeim að góðu.

Ævar Rafn Kjartansson, 31.3.2009 kl. 10:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband