2009-05-01
Frekjur sem vilja frítt far
Ég held satt að segja að þessir Hollendingar hafi ekki hugsað þetta mál til enda. Þeir lögðu peninga inn á Icesave. Þeim var fullkunnugt um hvað þeir voru að gera og tóku greiðslu fyrir þá áhættu sem þeir tóku með því að leggja peningana inn á þessa reikninga.
Vitsmunaþroski þessara Hollendinga er eins og hjá smákrakka. Þeir heimta núna að Íslenskir skattborgarar taki að sér að standa undir áhættunni sem þeir tóku sjálfir og töpuðu. Þeir völdu sjálfir að eiga viðskipti við Björgólf Thor!
Nú heimta þeir að ríkissjóður sem þeir hafa aldrei greitt neinn skatt í veiti þeim sömu þjónustu og íslenskum borgurum sem bera hér þó skatta. Ef við líkjum Íslandi við tryggingafélag þá hefur tryggingafélagið gefið út að þeir sem greiddu iðgjöld og voru tryggðir hjá þeim fái bætur en aðrir fái ekki bætur. Er það mismunun?
Ef þeir ætla að halda fram jafnræðisreglu hljóta þeir að innt af hendi þær skyldur sem skjólstæðingum ríkissjóðs Íslands ber að gera, þ.e. greitt skatta á Íslandi.
Telja Hollendingarnir, að þar sem íslensk stjórnvöld hafi ábyrgst innistæður sparifjáreigenda á Íslandi felist í því mismunun og þar með brot gegn reglum Evrópska efnahagssvæðisins, ef reikningseigendur íslensku bankanna í öðrum EES-ríkjum njóti ekki sama réttar.
Er ekki eitthvað frekjulegt við þetta?
Allt ferlið í kjölfar bankahrunsins bar vott um vanhæfni ríkisstjórnarinnar, vonda ákvarðanatöku og taugaveiklun en...
...eftir stendur að þessum Hollendingum kemur ekkert við hvernig heimskum stjórnmálamönnum á Íslandi dettur í hug að verja peningum skattgreiðenda.
Ríkissjóður Íslands ber enga ábyrgð á þeim sem greiða skatt sinn í annarra manna ríkissjóði.
Kæra Ísland vegna Icesave | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:37 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Tenglar
Heimsóknir
Greinar og viðtöl
- Jakobína rasende på Halvorsen
- Jeg er en av islendingene som den norske finansministeren Kristin Halvorsen mener skal ta konsekvensen av «vår egen gambling».
Icesave
- Fyrsti Icesave samningurinn
- Grein eftir Jón Daníelsson
- Grein á Íslensku eftir Jón Daníelsson
- Sjálfstæðisflokkurinn klúðrar Icesave
- Brot á tilskipun ESB að veita tryggingasjóð ríkisábyrgð
- Icesavelög
- Seinni lög um ríkisábyrgð
- Fyrri lög um ríkisábyrgð
- Icesave Nauðurgarsamningur I
- Nauðungarsamningurinn á Íslensku
- Settlement agreement
- Meira klúður sjálfstæðisflokks
- Uppkast sjálfstæðisflokksins að Icesavesamningi
Mínir tenglar
- Opinn borgarafundur
- Nei
- Smugan
- Nýir tímar
- Nýja Ísland
- Göngum til lýðræðis
- Íslendingar í ánauð
- Raddir fólksins
- Hver veit?
- VALD
- Ákall til þjóðarinnar
- Nafnlaus upplýsingagjöf
- Atvinnutækifæri
- Betra Ísland
- Eyjan
- Borgaraleg óhlýðni
- Leyniþjónusta götunnar
- Neyðarstjórn kvenna
- Ábyrgðarstöður: fjarvera kvenna
- stjórnarskrárnefnd
- Interpool corruption
- Bloomberg
- Íslendingar í ánauð
- Sigurbjörg Sigurgeirs
- Hagfræðiskólar
Skýrslur
- Bankahrunið
- Skýrsla Roberts Wade
- Skýrsla Danske Bank
- Mishkin skýrslan
- Skýrsla IMF
- Hagkerfi bíður skipbrot
- Aliber
- Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
- Franska skýrslan um innistæðutryggingar í ESB
- Doktorsritgerð Herdísar Drafnar
Lög og frumvörp
- Fjárlög
- Norska stjórnarskráin
- Frumvarp til stjórnskipunarlaga
- Ríkisfjárlagafrumvarp
- Frumvarp til fjárlaga 2010
Greinar
Landflótti/þjóðflótti
- Innlimun í Nýja Lýðveldið Ísland Rakið fyrir þá sem vilja vera þátttakendur í nýju samfélagi án þess að flýja land
ESB efni
Leyniskjöl
- The settlement agreement Leynisamningur milli ríkisstjórnar Íslands og breskra yfirvalda
- Útlán Kaupþings
Svikul Ríksisstjórn
Kreppu-greinar
Áróður
Góð blogg
Spurt er
- Við megum ekki gefast upp (þið verðið að sætta ykkur við að vera skuldaþrælar)
- Óyndisúrræði (ef að fólk stendur með sjálfu sér)
- Leiða ófarnað yfir okkur öll (skaða markmið alþjóðagjaldeyrissjóðsins)
- Fólk á að hugsa sinn gang (sýna þrælslund)
- Takmörk sett sem menn geta gert við þessar aðstæður (það segir Rozwadowski)
Efni
Færsluflokkar
Bloggvinir
- alla
- malacai
- andres08
- andrigeir
- volcanogirl
- arikuld
- gumson
- skarfur
- axelthor
- franseis
- ahi
- reykur
- hugdettan
- thjodarsalin
- gammon
- formosus
- baldher
- baldvinj
- creel
- kaffi
- veiran
- birgitta
- launafolk
- bjarnihardar
- bjarnimax
- brell
- gattin
- binnag
- ammadagny
- dagsol
- eurovision
- davpal
- diesel
- draumur
- egill
- egillrunar
- egsjalfur
- einarolafsson
- elinerna
- elismar
- estheranna
- evags
- eyglohardar
- jovinsson
- ea
- finni
- fhg
- geimveran
- gerdurpalma112
- gesturgudjonsson
- stjornarskrain
- gretarmar
- vglilja
- bofs
- hreinn23
- dramb
- duna54
- gudrunmagnea
- gudruntora
- zeriaph
- gunnaraxel
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- silfri
- sveinne
- hallibjarna
- veravakandi
- maeglika
- haugur
- haukurn
- heidistrand
- skessa
- heimssyn
- diva73
- helgatho
- hehau
- helgigunnars
- hedinnb
- hildurhelgas
- drum
- himmalingur
- gorgeir
- disdis
- holmdish
- don
- minos
- haddih
- hordurvald
- idda
- ingibjorgelsa
- imbalu
- veland
- isleifur
- jakobk
- jennystefania
- visaskvisa
- johannesthor
- islandsfengur
- jon-dan
- joninaottesen
- fiski
- jonl
- jon-o-vilhjalmsson
- jonerr
- jonsnae
- prakkarinn
- nonniblogg
- jonvalurjensson
- jonthorolafsson
- kaffistofuumraedan
- karlol
- katrinsnaeholm
- askja
- photo
- kolbrunh
- leifur
- kreppukallinn
- kristbjorggisla
- krist
- kristinm
- kristjan9
- larahanna
- liljaskaft
- ludvikjuliusson
- ludvikludviksson
- maggiraggi
- vistarband
- marinogn
- manisvans
- morgunbladid
- natan24
- nytt-lydveldi
- offari
- bylting-strax
- olimikka
- olii
- oliskula
- olafurjonsson
- olinathorv
- omarbjarki
- omarragnarsson
- huldumenn
- iceland
- rafng
- ragnar73
- rheidur
- raksig
- rannsoknarskyrslan
- rannveigh
- raudurvettvangur
- reynir
- rutlaskutla
- undirborginni
- runarsv
- runirokk
- samstada-thjodar
- fullvalda
- sigrunzanz
- amman
- duddi9
- sigurfang
- siggi-hrellir
- sij
- siggisig
- siggith
- sigurjonth
- stjornlagathing
- slembra
- scorpio
- lehamzdr
- summi
- susannasvava
- spurs
- savar
- tara
- theodorn
- ace
- nordurljos1
- tryggvigunnarhansen
- kreppuvaktin
- valdimarjohannesson
- varmarsamtokin
- vefritid
- vest1
- eggmann
- ippa
- vilhjalmurarnason
- villidenni
- vga
- thorsteinnhelgi
- valli57
- toti1940
- thordisb
- tbs
- thorhallurheimisson
- thj41
- thorsaari
- iceberg
- aevark
Des. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.12.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 16
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég kann mjög vel við alla þá Hollendinga sem ég hef kynnst. Þeir passa bara alls ekki við lýsingu þína.
Ég hlustaði á Jón Baldvin útskýra þessi mál hjá Inga Birni og er sammála þeim.
Voru ekki innistæður allra Íslendinga tryggðar uppí topp. Þar gætu sennilega nokkrir útrásarvíkingar, kvótakóngar og aðrir "auðmenn" átt mikið fé af þeim ca. 600 milljörðum eins og talað var um. Jafnvel Samson, sem stakk af með Evrur þeirra hollensku, sem voru auðvitað tryggðar af íslenska ríkinu
Páll A. Þorgeirsson (IP-tala skráð) 1.5.2009 kl. 01:05
Ég var algjörlega á móti því að innistæður Íslendinga umfram það sem tryggingasjóður átti að standa undir skildi bættur.
Ég kann líka ágætlega við alla Hollendinga sem ég hef kynnst en þessir Hollendingar eiga sjálfir að standa skil á gjörðum sínum og þeirri áhættu sem þeir taka.
Eftir stendur að þessum Hollendingum kemur ekkert við hvernig heimskum stjórnmálamönnum á Ísland dettur í að verja peningum skattgreiðenda.
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 1.5.2009 kl. 01:17
Er ekki einmitt mergurinn málsins sá, að við erum nú að súpa seyðið af vanhæfni eigin stjórnvalda ?
Að ósekju ? Já, vissulega flest okkar.
Lái Hollendingum, Bretum, Þjóðverjum og öðrum erlendum fórnarlömbum svikamyllu útrásarinnar, að þeir beiti öllum tiltækum ráðum t.þ.a. ná til sín sem mestu af því sem af þeim var haft. Þeim er nokk sama hvaðan það kemur.
Þegar búið er að setja heilt land á hausinn, er engin elsku mamma eftir í alþjóðasamfélaginu.
Hildur Helga Sigurðardóttir, 1.5.2009 kl. 01:49
Því má bæta við að ef Bandaríkin ættu í hlut myndi þessum mönnum ekki detta í hug að hafa sig svona í frammi.
Bretar og Hollendingar eru að gera kröfur til íslensku þjóðarinnar sem þeim myndi aldrei detta í hug að gera til stærri þjóða. Þeir þrýsta á að fá að hirða sem mest af þjóðinni og þeir láta sig þessa þjóð engu varða.
Það gera þeir ekki heldur sem réttlæta þetta framferði.
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 1.5.2009 kl. 01:51
Já Hildur Helga þeim er einmitt sama hvaðan það kemur bara ef þeir fá sitt.
Mergur málsins er að rökin í málinu eru út í hött.
Það er venjan í viðskiptum að aðilar málsins beri ábyrgð en ekki aðrir sem ekki komu að viðskiptunum.
Það eru ekki einu sinni til reglur eða lög sem styðja þetta atferli.
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 1.5.2009 kl. 01:55
"Það er venjan í viðskiptum að aðilar málsins beri ábyrgð en ekki aðrir sem ekki komu að viðskiptunum".
Nákvæmlega Jakobína. Þess vegna væri áhugavert að vita hvers vegna íslenska þjóðin ber ábyrgð á fjármálaklúðri löngu einkavæddra banka og eigenda þeirra, sl. ár.
Því miður höfum við enga staðfestingu á því að svo sé ekki. Sjö mánuðum eftir hrun erum við engu nær.
Menntaðasta, hamingjusamasta, fegursta og algáfaðasta þjóð í heimi er gjörsamlega úti á túni !
Hvað gerðist ? (Sjálfsblekking ? Kannski örlítil spilling í bland ?)
Hildur Helga Sigurðardóttir, 1.5.2009 kl. 05:02
Voðalega ertu pirruð út í þessa Hollendinga, Jakobína. Þeir voru ekki í neinum vafasömum viðskiptum heldur lögðu pening inn á bankabók. Nú er stór hlut þess horfinn. Hvað varð um peningana? Af hverju fær fólkið ekki peninginn sinn? Er þetta ekki þjófnaður?
Einar Karl, 1.5.2009 kl. 08:08
Það er eðlilegt að svona deilumál fari fyrir dómstóla, til þess eru þeir að leysa úr deilum.
Það getur verið að Hollendingar séu smákrakkar fyrir að hafa lagt fé inn á íslenska banka. Þessi mistök verða ekki endurtekin af útlendingum næstu áratugina. Þeir munu heldur ekki haga sér eins og smákrakki og lána íslendingum peninga.
Vandamálið er að það er erfitt fyrir útlendinga að gera sér grein fyrir hvar "Björgúlfur Thor" eða hans líkir leynast. Eru svona karakterar út um allt eða hefur þeim verið útrýmt? Nei brennt barn forðast eldinn svo betra að hafa vaðið fyrir neðan sig og stimpla allt íslenskt "toxic".
Andri Geir Arinbjarnarson, 1.5.2009 kl. 08:12
Ég sé ekkert að því að Hollendingarnir séu arfavitlausir út í Björgólf Thor. En þangað eiga þeir að snúa sér vegna þess að þeir gerðu viðskipti við hann en ekki heimta að ég og fleiri bæti þeim þetta.
Ef þessum Hollendingum verður illa við mig og vantreysta mér vegna þess að þeir hafa kynnst viðskiptum Björgólfs Thors þá eru þeir annað hvort sérlega heimskir eða hitt sem ég trúi betur þeir halda að ég sé sérlega heimsk og taki þetta á mig.
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 1.5.2009 kl. 11:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.