Hálfvitaháttur allt að drepa

Mér finnst ég lifa í skrípasamfélagi Bakkabræðralags.

Borgarendurskoðun var lögð niður en það gleymdist að leggja niður embætti borgarendurskoðanda sem hafði það brýna verkefni undir höndum að stjórna stofnuninni fram til 2003 og frekar óljóst hvað hann hefur verið að gera síðan.

Samfylkingin fattar ekki að það eru engin tengsl á milli "verðtryggingar og hárra stýrivaxta" og inngöngu í ESB.

Einstaklingar í samfylkingunni sem halda að það séu einhver tengsl á milli verðtryggingar og þess að k0373077vera utan ESB ætla að stjórna aðildarviðræðunum um inngöngu í ESB. Sennilega verður valdhöfunum í Brussel skemmt þegar íslenskir sveitamenn mæta þar og biðja þá um að afnema verðtrygginguna.

Íslendingar eiga ekki fyrir mat en ríkisstjórnin má ekki vera að því að hugsa um það vegna þess að strákum í samfylkingunni langar svo í gullstóla í Brussel

Stjórnmálamenn föttuðu ekki að bankarnir væru að fara á hausinn þótt þeir sæti í ríkisstjórninni sem hafði yfirumsjón með því að kollvarpa bönkunum.

Háskóli Íslands er eins og leikhús fáránleikans en þaðan er sérfræðingar sífellt kallaðir til rugla sífellt með eigin skoðanir, fræðilega þekkingu og pólitík.

Jón Baldvin sá eðalkrati kvartaði undan því í vetur að í stjórnsýslunni starfaði undirmálsfólk í embættum vegna klíkuráðninga en nú er samfylkingin að raða inn undirmáls-ESB-sinnum í embætti. Ég býð eftir því að Jón Baldvin þeysi fram á völlinn og skammi samfylkinguna fyrir þennan ósóma.

Prófessorar við Háskóla Íslands, ríkisstjórn Íslands og ýmsir sérfræðingar virðast hafa það sem helsta markmið sitt að forheimska þjóðina með því að bera á borð fyrir hana alls konar þvætting nema þá að þessir aðilar séu svo vitlausir að þeir hafi ekki hugmynd um hvernig hlutirnir hangi saman.


mbl.is Dælustöð Norðurorku olli torkennilegu hljóði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Margrét Sigurðardóttir

Þeir eru allir eins og dregnir upp úr sama hattinum: Dagur Egg, Helgi Hjör, Árni Páll, Skúli Helga -- allir þessir gefa álit áður en kemur að ungu konunum. Steinunn Valdís er í felum...

Margrét Sigurðardóttir, 7.5.2009 kl. 22:52

2 Smámynd: Nýja Lýðveldið Ísland

....já eða eihverstaðar í boði útrásarvíkinganna...

Nýja Lýðveldið Ísland, 7.5.2009 kl. 22:57

3 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Úbs þetta var vitlaus haus.....erfitt að vera tveir bloggarar 

Minni þá sem eru orðnir þreittir á þessu samfélagi hálfvita að stofnað hefur verið nýtt lýðveldi fyrir hugsandi fólk sjá hér

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 7.5.2009 kl. 23:03

4 Smámynd: Nýja Lýðveldið Ísland

...og líka þá sem nenna ekki að hugsa en vilja réttlæti

Nýja Lýðveldið Ísland, 7.5.2009 kl. 23:36

5 Smámynd: Margrét Sigurðardóttir

LOL -- það er erfitt fyrir heiðarlegt fólk að reyna að villa á sér heimildir

Margrét Sigurðardóttir, 8.5.2009 kl. 00:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband