Icesave málið versta klúður sögunnar


Búið er að skilgreina samninginn inn í einkarétt úr þjóðarrétti og hann er nú kallaður lánasamningur. Síðan eru ákvæði samningsins kölluð eðlileg miðað við lánasamning. Samningurinn er ekki eðlilegur milliríkjasamningur og fyrirgerir rétti Íslands á vettvangi alþjóðasamfélagsins.

Endalausar blekkingar og flækjubúningar Ríkisstjórnarinnar er þreytandi. Endalaust réttlætingarkjaftæði Ríkisstjórnarinnar er hámark lágkúrunnar.

Ráðherra var að segja af sér í Lettlandi vegna þess að hann neitar að leggja nafn sitt við niðurskurð í heilbrigðiskerfinu. Þetta er greinilega maður sem skilur að ákvarðanir valdahafanna og hlýðni við AGS kostar mannlíf.

Ákvarðanir Ríkisstjórnarinnar varða líf og heilsu fólks. Ég held að íslenskir stjórnmálamenn hafi mjög takmarkaðan skilning ábyrgð sinni.


mbl.is Allar eignir ríkisins lagðar að veði?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessuð Jakobína.

Þetta er kjarni málsins.  Ógnaröfl, sem kristallast í Nýfrjálshyggju IFM, eru ógn við framtíð mannkyns.  Það að fórna mannslífum, og jafnvel heilum samfélögum eins og á að gera í Lettlandi og vilji Jóhönnu stendur til um íslenskt samfélag, er eitthvað sem allt hugsandi fólk lýtur að berjast gegn.  

Það er ekkert sem réttlætir kröfur geðvillingana hjá IFM gagnvart Lettlandi og þó þeir séu ennþá skárri hér á landi,  þá skín geðvillan í gegn.  Svona hugarfar er það hugarfar sem bandarískir krimmahöfundar reyna að eigna raðmorðingjum sínum.

Siðvilla, geðvilla nær ekki að lýsa þeim hörmungum sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er að gera Lettlandi og Ukraníu.  Að kalla þetta hjálp er hámark öfugmælanna.

Sjálfbært Ísland sem tekst á við hörmungar loftlagsbreytinga og berst gegn kúgun og ofríki siðvillinga heimsins, er  valkostur við þrælahlekki Samfylkingarinnar.  Það er alltaf val.  En það er ekki val að selja börnin sín í skuldaþrældóm, jafnvel þó eitthvað jakkafatalið dreymir um ódýrt rauðvín á barnum í Brussel. 

Og það er siðvilla á hæsta stigi að mæla gjörðum Jóhönnu og Steingríms bót.  

Það er tími til kominn að kalla hlutina réttum nöfnum.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 18.6.2009 kl. 13:27

2 Smámynd: Guðni Karl Harðarson

Ég vil aðeins vekja athygli á þessu:

af island.is

>Það varð að samkomulagi milli aðilja að um bæði hollenska og breska lánasamninginn giltu bresk lög. Í því felst að hægt er að bera ágreining um túlkun og framkvæmd samninganna fyrir breska dómstóla, eða aðra dómstóla sem hafa lögsögu en ber þá að leggja bresk lög til grundvallar.  Til samanburðar má nefna að í lánasamningum sem eru í burðarliðnum við stjórnvöld Norðurlandanna eru sambærileg ákvæði um lagaskil og lögsögu þeirra.

Eitt enn dæmið um undirgefni íslensku ríkisstjórnarinnar. Að bera ágreining um túlkun og framkvæmd samningana fyrir breska lögsögu? Guð minn góður! Þetta er algjört rugl. Hvernig eigum við að geta komið með okkar túlkun eða ágreining þarna inn án þess að vera mismunað? Þetta er jú vegna lánareikninga í Bretlandi en það erum við íslendingar sem eigum að borga.

Það sem ég er að segja að allur ágreiningur ætti að bera undir hlutlausan dómstól algjörlega. Með lagalegum fulltrúum beggja aðila en á hlutlausu svæði! Þar sem jafnræði er fyrir öllu.

svo segir: í burðarliðnum samningur á Norðurlöndum? og ekkert nánar um það! Það segir hvergi að slíkir samningar séu til sem segi að slík mál skuli bera undir í dómstólum lánadrottnaaðilans!

Það á greinilega að þvinga þennan samning á íslendinga. Hér er algjört dæmi um kúgun erlends stórríkis yfir smáríki. Og undirgefni þess litla.

Maður hlítur að spyrja sig hvað sé í gangi á bak við tjöldin.

Guðni Karl Harðarson, 18.6.2009 kl. 13:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband